Vikan


Vikan - 04.08.1966, Blaðsíða 31

Vikan - 04.08.1966, Blaðsíða 31
löngu „er ég búinn að brjóta og týna“. f þessu sambandi, verð ég að játa með eftirsjá, hve margir munir, stærri og smærri, fóru á fyrri hluta ævi minnar, ein- hvern veginn út úr höndum mínum, sem mér finnst nú á efri árum, mikil eftirsjá að. Annar hlutur var í eigu Úlf- hildar, sem ég leit mjög hýru auga, þá sjaldan ég sá hann, sem var ekki mjög oft. Þessi hlutur var svuntuhnappur hennar. Þetta var hnappur í sjaldhafnar svuntu hennar, sem hún setti á sig aðeins á mestu hátíðisdögum ársins, svo og þá sjaldan að hún fór út af bænum til fornkunn- ingja sinna, sem ekki var oft, svo sem áður er getið. Þrátt fyrir forvitni mína spurði ég víst aldrei Úlfhildi, hvenær eða hvaðan hún hefði fengið hnapp þennan. Það var ekki fyrr en löngu eftir daga hennar, að ég fékk löngun til að vita það, en þá vitanlega allt um seinan. Ég vissi aðeins það, að Úlfhild- ur vildi ógjarnan tapa þessum hnappi. Úlfhildur var búin að segja það, löngu áður en hún dó, að eftir sinn dag, ætti móðir mín að eiga svuntu þá sem áður er nefnd, og þar með fylgdi vitan- lega hnappurinn. Eftir dauða móður minnar, tíu árum seinna en Úlfhildur dó, komst hinn forni svuntuhnappur Úlfhildar í eigu okkar tveggja systkina, mín og Vilborgar, sem héldum heim- ili saman, í nokkur ár. — Á þeim árum snerist hugur minn víst, að mestu um annað meir, en halda til haga ýmsum fornum fróð- leik, enda annað hentara, fyrir snauða unglinga, sem vildu ekki þá þegar verða annarra hand- bendi. Árin komu og liðu, svo sem þeirra er máti, gáfu og tóku. Það er gömul og ný saga, sem ekki þarf að rekja hér. Um langa stund, mun ég lítt eða ekki hafa hugsað um svuntuhnapp Úlf- hildar, vissi vist ekki hvoru meg- in hryggjar hann lá. Eflaust hef- ur hnappurinn þó komist í mín- ar hendur, áður en móðir mín dó, þótt ég minnist þess ekki glöggt, þar eð áratugum seinna verður hann fyrir mér, þar sem ég gat sízt vænst hans, þótt ég hefði ætlað að leita hans, hvað ekki var, að því sinni. Og þann- ig hefur þetta gengið fram tii þess, að ég fór að rifja upp með sjálfum mér, og festa á blöð, brot af minningum mínum, sem tengdar eru Úlfhildi, að hinn horfni svuntuhnappur hennar, hefur þráfaldlega orðið fyrir mér, þar sem ég hélt að hann ætti ekki að vera. Líklega verður að álykta svo, að flutningur hnapps- ins frá einum stað til annars, sé fyrir minn tilverknað, þótt ekki komi ég tilfærslu hans fyrir mig. Þó held ég, að standi ég að þessum flutningum, þá hafi það verið mér að mestu eða öllu ó- sjálfrátt. Og þá freistast ég til að halda, að þar hafi hugur Úlf- hildar átt einhvern þátt í, og hún þar með verið að minna mig á sig. Hvað sem um þetta er, þá á þessi forni afhaldshnapp- ur Úlfhildar, höfuðþáttinn að þessum minningum mínum, um hina löngu horfnu öldnu vin- konu mína, með marg- nefndan hnapp fyrir framan mig á borðinu, á meðan ég skrifa þennan þátt. Væri það svo, að. Úlfhildur vissi nokkuð til okkar vina sinna hér á jörð, vissi hvað ég nú hefðist að, þá vona ég að hún líti það mildum augum, svo sem hún leit á æskubrek mín, þá við voru hér bæði, vit- andi það, að í þætti þessum, hefi ég sagt sannleikann og ekkert nema sannleikann. Hitt er ann- að mál, að sjálfur veit ég ekki hvort ég á heldur að gleðjast eða hryggjast yfir verki þessu, þótt hér sé um raunveruleik að ræða, en ekki skáldskap. Ég veit, að hér hefði mátt halda betur á efni, en mér hefur tekist, þótt hvergi hafi verið út af sannleik- anum brugðið. Þó finn ég til gleði yfir því, að hér er lokið verki, sem ég hefði átt að vera búinn að gera fyrir löngu. Oft hefur mér á síðustu árum og áratugum orðið hugsað um það, þegar hugur minn hefur reikað til samveruára okkar Úlfhildar, hver kenni nú og hafi af fyrir á margan hátt, íslenzk- um börnum, í sveit og við sjó, það sem Úlfhildur kenndi mér og hafði fyrir mér í æsku. Aldrei hafði hún nema gott fyrir okk- ur, hvort heldur var til orðs eða æðis. Mér virðist, bæði af eig- in reynslu og annarra sögusögn- um, að nú sé á sorglega fáum heimilum þessa lands, nokkur Úlfhildur lengur. Þær munu, í það minnsta, í ofmörgum tilfell- um, komnar til veru þar, sem börn og unglingar eru ekki fyrir, til að læra af lífsreynzlu og oft, fróðum, öldnum konum, sem áð- ur voru oft drýgstu kennarar barna og unglinga, á flestum heimilum, í sveit og við sjó. Full- yrða má, að nám það, varð mörgum unglingum hollt vega- nesti á för þeirra út í lífið, því: „Hvað ungur nemur, gamall Hvítara hvítt.. Hreinni litir! NotiS Blaa Omo, nyjasta og bezta [avottaduftið næsta þvottadag. SjaiS hvernig Omo freyðir vel og lengi og gerir hvíta þvottinn hvítari og liti mislitu fatanna skærari en nokkru sinni fyr! Reynið Omo. Sjáið með eigin augum hvernig Omo þvær hreinast I VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.