Vikan - 04.08.1966, Blaðsíða 21
+r*
Zsa Zsa Gabar, sem Hilton kvæntist 1942. Hún cr hér
með Francesku, dóttir þeirra. Hjónabandið stóð í íjög-
ur ár.
glampa tvö infrarauð Ijóstæki, og undir þeim þorn-
ið þér eins og í sólarhita ó baðströnd.
Fötin sem þér voruð í, hafið þér hengt inn í hurð-
ina að herbergi yðar, hún er hólfur metri að þykkt
og um leið skópur, sem hægt er að opna bæði
innan og utan fró. Þannig getur þjónninn sótt föt-
in og lótið hraðþvo þau eða hreinsa, ón þess að
gera yður ónæði.
Með öðrum orðum, yður líður vel. Þér lifið í allri
þeirri viðhöfn og þægindum sem amerískt hug-
myndaflug og nútímatækni getur framleitt. Og ef
þér njótið þess vel, hefir Conrad Hilton orðið að
ósk sinni.
Því Hilton er húsróðandi yðar og veitandi, þeg-
ar þér búið ó Hótel Statler í Washington. En það
væri hann líka þótt þér byggjuð ó Plaza eða
Waldorf-Astoria i New York, ó Castellana Hilton í
Madrid, ó Nile Hilton í Kairó eða ó Tóktó Hilton (
Tókíó. Eru þó aðeins nefnd nokkur af þrjátíu og
fjórum viðhafnargistihúsum, sem hann á víðsvegar
um heim.
Hilton er einn þessara ódæma viðskiptasnillinga
sem Ameríka hefir alið fjölda af á liðnum tímum.
Faðir hans fluttist þangað frá Noregi og bjó í San
Antoníó í Nýja Mexíkó. Lifði hann meðal annars
af því að leigja út fimm herbergi til ferðalanga í
verzlunarerindum. Það var starf Konráðs litla að
standa á járnbrautarstöðinni þegar næturlestir voru
á ferð, og tryggja karli föður sínum örugga leigj-
endur.
Hann hlýtur að hafa staðið vel í stöðu sinni,
því árið sem hann varð þrítugur, sem sagt 1919,
gat hann keypt sér reglulegt hótel. Það var Mobley
gistihúsið í Cisco í Texas. Reksturinn á því gekk
svo vel, að fimm árum síðar var hann orðinn eig-
andi að mörgum smærri gistihúsum í Texas.
Efnahagskreppan er skall yfir Ameríku árið 1929
og varð meðal annars til þess, að fjögur af hverj-
um fimm hótelum í Bandaríkjunum fóru á höfuðið,
kenndi Hilton að reka starfsemi sína við verstu
skilyrði sem hægt var að hugsa sér. En honum tókst
að komast fram úr þeim vandræðum, og þegar
kreppan var liðin hjá, keypti hann niðurlögð gisti-
hús fyrir smámuni.
Framhald á bls. 34.
1 irrr*
Hilton hefur gert vel við Mexikana; annað
hétel hans þar í landi stendur í Acapulco,
sem cr fjölsóttur ferðamannastaður.
Á fögrum stað við sundið Bosporus stendur
Istanbul Hilton.
Á hæðunum vestan við Tiber, þar sem vel
sést yfir borgina eilífu, stendur Cavalieri
Hilton.
í Mexícó City heitir það Continental Hilton.
VIKAN 21