Vikan


Vikan - 04.08.1966, Page 7

Vikan - 04.08.1966, Page 7
JÖSTURINN að minna hann á þekktar vísur, sem eitt sinn voru kveðnar um þrjá menn, sem allir unnu sömu stúlkunni, en höfðu allir meiri hlaup en kaup: Harmur er í Blönduósborg bugast Hafsteinn lætur. Ólafur ráfar enn um torg, Ásgeir sterki grætur. En svo slæmt varð ástandið ekki Iengi, því Tíminn læknar sérhvert sár: sést nú Hafsteinn glaður, Ólafur er orðinn nár en Ásgeir kvæntur maður. Og hafa vonandi allir mátt vel við una. ELSKAR MIKIÐ? Kæra Vika! Ég er í miklum vandræðum. Þannig er mál með vexti að ég er mjög hrifin af strák og hann hefur verið með mér í partýum undanfarið. En nú hef ég komist að raun um að hann heldur fram hjá mér. Hann hefur verið með stelpu sem ég þekki vel í þeim partýum sem ég hefi ekki ver ið í. Ég elska hann mikið. Á ég að segja honum upp eða halda þessari vitleysu áfram? Með fyrirfram þakklæti fyrir birtinguna. Gyða Magga, Vem. P.S. Viltu gjöra svo vel að svara mér án útúrsnúninga. Sama. Ertu alveg viss um, að þú elskir hann mikið? J>að myndi ég ekki gera í þínum sporum, enda hef- urðu svarað þér sjálf, þegar þú spyrð, hvort þú eigir að „halda þessari vitleysu áfram“. Ég sé enga ástæðu til að þú haldir því áfram, sem þér sjálfri finnst vit- laust. Niðurstaða: Segðu honum upp. ER SVO FEIMIN! Kæra' Vika! Þanng er mál með vexti, að ég roðna alltaf svo svakalega, þegar strákar horfa á mig. Ég er alltaf a'ð roðna hvað sefn skeð- ur varðandi mig. Ég veit ekkert hvað ég get gért Við þessum ó- géðfellda aváná. Því skrifa "ég þér í von um að þú munir hjálpa mér, Ég þakka þér annars fyrk- það skemmtilega lesefni, sem þú birtir og sérstaklega fyrir þátt- inn: Eftir eyranu. Viltu svo birta eitthvað um Donovan. Vertu þá blessuð elsku Vika. Ein í vanda. P.S. Hvernig er skriftin? Hafir þú lengi átt við þennan skolla að stríða, ertu sennilega húin að telja sjálfri þér trú um, að þetta sé svo til óviðráðanlegt. Afleiöingin er sú, að þú reiknar með því sem sjálfsögðum hlut, að þú hljótir að roðna, sé á þig yrt eða horft. Þennan misskilning þarft þú að uppræta með ein- hverjum ráðum, annað hvort á eigin spýtur eða með hjálp aim- arra. Hvernig væri a'ð sækja nám- skeiö hjá einhverjum tízkuskól- anum í haust. Eitt af höfuðverk- efnum þeirra er að temja fólki eðlilega framkomu og þægilegt viðmót, sem aftur leiðir af sér aukið sjálfsöryggi. Helzta orsök feimni er cinmitt skortur á slíku öryggi — og það er eflaust þar, sem skórinn kreppir hjá þér. — Skriftin er góð og frágangur snyrtilegur, svo ekki þarftu að roðna þess vegna! BIíbi Vikiinnar BLÓM VIKUNNAB fær Rann- veig Axelsdóttir, Glaðheimum 14, frá Rlómabúðinni Dögg fyrir eft- irfarandi sögu: Fyrir 15 árum. er einn drengj- anna minni var á 3. ári gleypti hann krónu-pening. Mér var brugðið, og þegar hann kvartaði um verki á þessum stað eða öðr- um, setti ég það í samband við krónuna. Sá ég, að við svo búið mátti ekki standa og dreif mig með hann í gegnumlýsingu nið- ur í gamla Líknarhúsið við hlið- ina á Alþingishúsinu. Þar tók á möti okkur mjög almennilegur og snaggaralegur læknir, sem sköðaði drenginn vel og vand- Iega og gegnumlýsti hann. Ég fylgdist með og spurði óþolin- móð, hvort'hann sæi ekki krón- úna. Læknir kvað neí • við, en bætti svo við kíminú á svip: „enda er krónan ekki svo mik- ■ill peningur nú á dögum“! ^bankett VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA Hreint og hressandi! Það er gaman að matreiða í nýtízku eldhúsi, þar sem loftið er hreint og ferskt. Það skapar létta lund, vinnuglcði og vcllíðan, hvetur hug- myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né ólireinka föt og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og hreingerningum fækkar. Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið' þér raunverulega loftræstingu, því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlllega og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins i cldhúsinu og næstu hcrbergjum. Sog- getan cr ein af ástæðunum fyrir vinsældum Balico Bankett. Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna heyrist varla i viftunni. Balico Bankett er sennilega hljóðasta viftan á markaðinum. Engin endurnýjun á síum! Athugið sérstaklcga, að Bahco Bankett þarfnast engrar endurnýjunar á lykt- og gufucyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bahco Bank- ett hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust. Fitusíur úr ryðfríu stáli! Bahco Bankctt hcfur hins vegar 2 stórar, varanlegar fitu- síur úr ryðfríu stáli, sem ekki einungis varna því, að fita setjist innan í útblásturs- stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, þvi að loftið fer fyrst gegnum síurnar. Fitusíurnar eru losaðar með einu handtaki og einfaldlega skolaðar úr hcitu vatni stöku sinnum. Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar. Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað svigrúm og sýn yfir eldavélina. Innbyggt ljós vcitir þægilega lýsingu og rofarnlr fyrir ljós og viftu eru vel og fallega staðsettir. Falleg, stílhrein og vönduð — fer alls staðar vel! Bahco Bankett er teiknuð af hinum fræga Sigvard Bernadotte, eins og mörg fallcgustu heimilistækin i dag, og er sænsk úrvalsframlciðsla frá einum stærstu, rcyndustu og nýtízkulegustu loft- ræstitækjaverksmiðjum álfunnar. ___ W—X-’TWV- n.l I BAHCO ER BETRI. Það er einróma álit ncytendasamtaka og reynslustofnana ná- grannaríkjanna, að útblástursviftur einar veiti raunverulcga loftræstingu. Hagsýnir húsbyggjendur gcra þvi ráð fyrir útblástursgati eða sérstökum loftháfi. Þeir, sem endurnýja eldri eldhús, brjóta einfaldlega gat á útvegg cða ónotaðan reykháf. Sú fyrirhöfn margborgar sig. NÝJUNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á boðstólum létta og sterka, hvita plaststokka með beygjum og öðru tilheyrandi, sem hver og einn getur raðað saman, án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra. Veljið því rétt, veljið viftu, sem veitir raunverulcga loftræstingu og heldur allt- af fullurn afköstum — kostnaðarlaust. Veljið BAHCO BANKETT. Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp- una og fóið allar upplýsingar um Bahco Bankett, stokka, uppsetningu, verð og greiðsluskilmóla. FONIX SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVÍK. Sendið undirrit. Bahco Bankett myndalista með öllum upplýsingum: Nafn: ............................................................. Heimilisfang: ...................................................... Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavík. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.