Vikan


Vikan - 04.08.1966, Page 14

Vikan - 04.08.1966, Page 14
lilllllll ■ : ' y: iÉIÉlll;;; 'stmMS'm' ÍWMÍMW: Wmmmm ðjM : t •. ;V.: T: '/V'# / ér M ■ ■ ■ ; * '■ Kristmynd sem varð tveggja manna bani .lörgen Rosteck heitir nítján ára gamall listmálari í Bremen í Þýzkalandi. Hann naut lítillar alþýðuhylli og fáir töldu verk hans nokkurs virði. Varð honum því að jafnaði lítið ágengt, er hann gekk á milli húsa og bauð myndirnar til sölu. Kjör hans voru kröpp, enda bjó hann með iinnustu sinni, Marion Weigel, og áíti með henni harn. Meðal teikninga hans var eitt af Kristi, nokkuð sérstætt í stíl, og taldi Jörgen það hezt verka sinna. Hann hafði unnið að henni í viku samfleytt, jafnt nætur sem daga. Svo gekk hann á milli manna með Krist sinn og reyndi að selja. En enginn vildi kaupa. Einn stakk tuttugu mörkum í hendina á Jörgen. Annar skamm- aði hann: — Hversvegna vinnið þér ekki eins og allir aðrir, ungi maður? Iíann gafst upp í þetta sinn, en skömmu síðar lagði hann aft- ur af stað með myndina, enda skorti þau Marion fé og húseig- andinn, sem þau Ieigðu hjá, hafði hótað að henda þeim út, ef þau drægju lengur að greiða leiguna. —■ I dag sel ég myndina, sagði Jörgen hughreystandi við Mar- ion, áður en hann gekk af stað. Klukkan tvö um daginn kom Jörgen aftur heim. Þá var hann þögull og fölur. — Hefurðu fengið peninga? spurði Marión og hélt að honum hefði tekist að selja myndina. Hann tók ekki undir spurning- una, en bauð Marion á lítið veit- ingahús þar skammt frá. Hann pantaði drykk og sagði svo: — Nú verður þú að vera dug- leg stúlka, því dálítið hræðilegt hefur komið fyrir. Marion skildi ekki við hvað hann átti. Hann sat og þagði. Að lokum sagði liann: -— Þær eru báðar dánar. Ég skil það ekki. — Hverjar eru dánar? spurði Marion skelfd. Hvað ertu að tala um? — Alma Schiitt og Karin. Hin fyrrnefnda var stjúpmóðir Jörgens en hin dóttir hennar. ■: m Ein skelfilegasta uppgötvun, er vestrænir menn gerðu í sambandi við Kóreustríðið, var vitneskjan um hinn svokallaða heilaþvott, sem kommúnistar til- einka sér. Fangar úr liði Sam- einuðu þjóðanna, einkum banda- rískir, urðu að þola hinar hrylli- legustu andlegar og líkamlegar pyndingar, sem smátt og smátt brutu niður mótstöðuafl þeirra og fengu þá til að segja allt sem þeir vissu um stríðsfyrirætlanir landa sinna. Margir urðu öryrkj- ar æfilangt eftir meðferðina, sem þeir fengu í klóm hinna aust- rænu manndýra. Þegar Bandaríkjamenn hófu þátttöku í Víetnamstriðinu, gerðu þeir ráð fyrir — og sjálfsagt ekki að ástæðulausu — að Víetkong- menn myndu láta stríðsfanga svipaðri meðferð og tíðkuð var hjá skoðanabræðrum þeirra í Kóreu. Til þess að búa hermenn sína undir það, sem þeir geta átt von á, ef þeir falla í hendur víet- namskra kommúnista, hafa bandarísk hernaðaryfirvöld því komið sér upp sérstökum æfinga- búðum í nánd við borgina Col- umbus, og heitir staðurinn Fort Benning. Æfingarnar, sem þarna fara fram, eru mjög svo sérstæð- ar, því þær eru fólgnar í því að venja hermennina við alskonar pyndingar, sem trúlegt er að þeir vcrði að þola ef þeir verða hand- teknir af Víetkong. Það skal tekið fram, að að- eins sjálfboðaliðar eru við æfing- ar í Fort Bcnning, sem dátarn- ir í gríni kalla,, Hamingjubúð- irnar“. Hver hermaður er æfður í tuttugu og þr jár vikur samfleytt — ef hann heldur vistina svo lengi út — og grundvallarregl- an er: Sofðu og hvíldu þig hverja mínútu, sem þú færð Iausa, til að búa þig undir pyndingar næsta dags. Búðirnar eru byggðar sem ná- kvæm eftirlíking af kommúnísk- um fangabúðum, og kennararnir bera norður-víetnamska einkenn- sbúninga og útbúnað í samræmi við það. Frí er aldrei gefið og þeir, sem inn í búðirnar koma, verða að hugsa um það eitt að halda út þessar tuttugu og þrjár vikur. Flestum þeirra tekst það ekki. Til frekari skýringar má til-- færa noklcur dæmi um æfingarn- ar: „Fangarnir“ eru látnir standa. Einn „fanganna“ yfirheyrður af Víetkongmanni“ (með hatt). Yf- irheyrslurnar eru hafðar óhemju langar og þreytandi. „Fangarnir“ eru látnir liggja tjm- unum saman á hnjánum á trjá- bút með útréttar hendur. Ef ein- hver þeirra dettur eða hreyfir sig úr þessum stellingum, fær hann heldur ómjúklega meðferð. Námskeið í pindingum „Víetkongmenn“ halda „fanga“ föstum með hálstaki og einn þeirra slær hann fyrir bringspalirnar, ef hann svarar ekki sem þeim líkar.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.