Vikan


Vikan - 04.08.1966, Page 28

Vikan - 04.08.1966, Page 28
Úlfhildarþáttur Framhald af bls. 23. engin hurð, var því oftast nægur hiti þaðan til baðstofu. í þessari baðstofu hélt Úlfhildur sig með sín tóvinnuáhöld, rokk, kamba og kembulár, frá vordögum, að hlýna tók í veðri, fram til haust- nátta, þá fluttist hún með vinnu sína til aðal baðstofu, inn í hlýj - una. Þar inni sat allt heimilis- fólkið, við vinnu sína á kvöldin, eftir að útiverkum var lokið. Ég var víst ungur, þegpr ég fór fyrst að venja komur mínar að hnjám Úlfhildar, og komst fljótt að því, að ég var þangað ekki óvelkominn. Snemma ævi minnar mun Úlfhildur hafa tekið við mig nokkru ástfóstri, þótt lítt sýndi hún það í fleðulátum, en kom fram af heilbrigði, sem huggari og hluttakandi ef eitt- hvað amaði að mér, og amma var ekki við höndina. Þegar hér er komið, vorum við fjögur systkin á lífi. Það elzta stúlka, sem aldrei steig í fætur, lömuð af hinni illræmdu enskusýki, frá því á öðru ári, en náði þó átján ára aldri. Hin þrjú, sem á fótum vorum, var stúlka fimm árum eldri en ég, og önnur tæpum fimm árum yngri. Fjögur systkin okkar voru áður dáin. Öllum okkur var Úlf- hildur mjög góð. Þó finnst mér enn, að mest ítök ætti ég í eða hjá henni, og held ég að þetta sé ekki óeðlilegt, þar eð ég mun, eftir að ég komst vel á legg, hafa verið bezt við hennar hæfi, þar sem önnur systir mín var fimm árum yngri en ég, sem fyrr er sagt. Þess utan var ég einn drengja á bænum. í þá tíð, voru aðal leikföng sveitabarna heimanfengin, þ. e. horn, leggir og kjálkar, á sumrin úti, á vetrum inni, að einhverju. Mest dálæti hafði ég á horn- unum, og þegar mér bættust á haustin og fram eftir vetrinum ný horn, sem flestir nema ég munu hafa talið að helzt til oft bæri við, þar eð bráðapestin hranndrap úr unga fénu þá, á flestum jörðum, þá lagði ég strax leið mína til Úlfhildar, til þess að fá hennar álit á þessum nýju sauðum, ám eða lömbum, sem mér höfðu bæzt í hjörðina, sem þó var talin all stór fyrir. Að sjálfsögðu gerði Úlfhildur mér það til geðs, og skoðaði þetta rækilega, og lét álit sitt í Ijós, og var það álit hennar oftast á einn veg. Úr því að ég minntist á leik- föng okkar systkina, þá bætt- ust okkur á hverjum vetri, með- an faðir okkar lifði, margskonar munir, sem hann tálgaði út úr ýsuklumbum á meðan hann var í verinu. Þetta voru einkum margskonar fuglar, kindur, hundar, tófur, — og menn. Gripi þessa bar hann í vettlingum sín- um, þegar hann kom heim um helgar eða á frátökudögum. Oft- ast sá ég þetta á vettlingunum þegar hann hengdi þá af sér, en aldrei dirfðist ég að forvitnast frekar um það, fyrr en han tók til vettlinganna, þá fór ég að færa mig nær. Þegar búið var að skoða þetta, þá lagði ég leið mína til Úlfhildar, og sýndi henni hvern grip fyrir sig. Þetta var allt fagurlega smíðað, en einna minnst var henni um tóf- una, en sagði þó: Það á við að tófan fylgi fénu, því á meðan tófa fylgir fénu, þá verður ekki bitið úr þeirri hjörð á meðan. Þetta var trú gamla fólksins, og ef til vill reynsla. Þannig var það einnig, þegar ég fékk eitthvað nýtt að klæðast í, þó ekki væri nema skó á fæt- urna. Þá var sjálfsagt að arka til Úlfhildar, til að sýna henni. — Fyrir löngu veit ég, að hún hafði ánægju af þessari hugul- semi minni, þótt hún léti lítið á því bera hverju sinni. Þegar ég komst að því, að spil voru ekki einasta handa börnum til þess að byggja úr bæi og borgir, sem hrundu, ef gengið var harkalega um, það mátti einnig nota þau til leiks þess, sem fullorðna fólkið nefndi að „spila á spil“, þá fékk ég strax löngun til að læra þá list, og ég arkaði til Úlfhildar. Að deginum, höfðu flestir annað að gera en að kenna krakka að spila, þótt ég hefði hinsvegar nægan tíma. Og þegar til Úlf- hildar kom, þá hafði hún ávallt einhverja stund fyrir mig. Ég kom að hnjám Úlfhildar, með spil í höndunum, þar sem hún sat í sínu venjulega sæti, við fótagafl rúms foreldra minna, með barnaspil, sem lítið voru stærri en venjulegur eldspýtna- stokkur, (eldspýtur voru þá oft- ast nefndar fírspýtur eða fí- spýtur). Úlfhildur sléttaði úr svuntu sinni yfir hné sín og sagði, að þetta yrði að vera spilaborðið. Ég settist á fótaskör móður minnar, og Úlfhildur tók til að gefa spilin. Þá kom svolítið vandamál, viðvíkjandi smæð spilannna, og Úlfhildur sagði: Eg er orðin svo dauffingruð að ég góma þau ekki, og varð ég þá að gefa, eftir hennar fyrir- sögn. Nú skulum við spila hund, sagði Úlfhildur, og var ég hinn ánægðasti. Þegar hún ætlaði að fara að fletta spilunum, þá kom í ljós, að þessi smáu spil, voru hinum daufu fingrum Úlfhildar óviðráðanleg. Hún varð því að breiða úr þeim á keltu sína, og spila þannig úr þeim. Þannig lærði ég að spila hund. Ekki spiluðum við á hverjum degi, og aldrei lengi í einu. Það tók því drjúgan tíma að læra að spila hund. Þegar ég taldi mig fullnuma í þeirri grein, þá spurði ég Úlfhildi, hvort hún gæti ekki kennt mér annað en hund? „Jú, ég skal kenna þér tveggja manna alkort," svaraði hún. Næst þeg- ar ég kom til Úlfhildar með spil, byrjaði kennsla í fyrrnefndu spili. Það er spilað eins og fjög- urra manna alkort, og öll spil 28 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.