Vikan - 03.11.1966, Side 8
BORÐSTOFUSKÁPAR - BORÐ - STÖLAR
SÖFABORÐ - 14 GERÐIR
RAÐSTÓLAR
SKRIFBORÐ - RITVÉLABORÐ - TENGI-
BORÐ.
PÍRA - RAÐHÚSGÖGN - SKÁPAR -
HILLUR,
FRAMLEIÐANDI - HELGI EINARSSON
- HÚSGÖGN EINGÖNGU SELD
I
HÚSGAGNAVERZLUN
HELGA EINARSSONAR
LAUGAVEG 168 - SÍMI 23855
önnumst allskonar
innréttingar
Trésmiðlan h.ff.
Brautarholti 30 — Sími 16689. -
EIN ENN FRfl KEFLflVÍK:
r
- OG BUXURNflR FRfl
Fons
Óðmcnn í IMmmuborg-
um — frá vinstri: Eirík-
ur, Jóhann, Valur og
Engilbert.
(Myndir: Mats VVibc
I.uncl jr.)
Sú hliómsveit, sem einna mesta athygli hefur vakið undanfarna mánuði,
er vafalaust hliómsveitin Óðmenn frá Keflavík. Þessi hliómsveit, sem var
stofnuð í marz s.l. hefur einkum vakið athygli fyrir góðan söng, enda eru
allir liðsmenn góðir söngmenn — einkum Engilbert og Jóhann. Óðmenn
fóru á flakk um landsbyggðina í ágúst og september og hlutu hinar beztu
undirtektir þar sem þeir komu við á Norður og Austurlandi.
Það var Engilbert Jensen, sem stóð að stofnun hliómsveitarinnar á sín-
um tíma, og það var sannarlega happ að hann skyldi fá í lið með sér
bræðurna Jóhann og Eirík. Þeir eru báðir óvenju efnilegir músikantar og
hafa samið ógrynni af fallegum lögum. Sum þeirra hafa heyrzt í þátt-
um unga fólksins í útvarpinu og hlotið mikið lof. Það væri sannarlega
vel þegið að fá einhver þessara laga á hljómplötu, og skulum við vona
að svo verði, áður en langt um líður.
Heiti hljómsveitarinnar, Óðmenn, kom mörgum spánskt fyrir sjónir
fyrst í stað, en flestir eru víst búnir að átta sig á því núna, hvernig orð-
myndin er til komin. Að vísu ætti hljómsveitin að heita Óðsmenn — því
að hér er um að ræða eignarfallsmynd af orðinu óður — en piltunum
fannst Óðmenn fara betur í munni og þeir um það.
A yfirreið sinni um landið vöktu Óðmennirnir nokkra athygli fyrir frum-
legan klæðaburð. Jóhann gekk til dæmis í einkar skrautlegum buxum og
héldu margir, að hann væri í náttbuxunum, en aðrir spurðu. hvort hann
hefði klippt þetta út úr gardínu hjá mömmu sinni. Hvorugt er rétt, því að
Jóhann keypti umræddar buxur í Fons og honum þykir mikið til þeirra
koma.
Jóhann og Valur eru unglömbin í hljómsveitinni — 19 ára báðir — og
lausir og liðugir. Eiríkur er 21 árs og trúlofaður, en Berti er aldursforset-
inn, 25 ára gamall, kvæntur og á þrjá hýrlega stráka.
8 VIKAN «•tbl-