Vikan - 03.11.1966, Síða 16
Athugið að undirstaðan beri húsgagnið
rétt og eðlilega.
Standi fætur t.d. mikið á ská, er mjög
hætt við sigi og að hurðir og skúffur
festlst.
Ábyrgðarmerkt húsgagn er örugg-
lega vel úr garði gert. En margir eru
þann veg gerðir, að þeir vilja sjá,
skoða og sannfærast sjálfir - og
enn er mikið framboð af húsgögn-
um án ábyrgðarmerkinga. Hér birt-
um við nokkrar leiðbeiningar fyrir
þá, sem þurfa að kaupa sér hús-
gögn, ef vera kynni að það auðveld-
aði þeim að velja sér góða vöru.
Þetta eru aðeins fáein atriði, en að-
alatriðið er þetta: Reynið að skoða
sem gleggst það sem ekki blasir
beint við auganu - sé það vel gert
og nosturlega, má gera því skóna
að öll varan sé góð.
GleymiS ekki að strjúka
hendi um skúffur og
skápa að INNAN og að
AFTAN. Sé áferðin
mjúk og þægileg við-
komu er húsgagnið f
flestum tilfellum vandað
að öllum öðrum frá-
gangi.
Oruggasta samsetningin á
skúffum er að jafnaði geir-
neglingin.
Sé skúffan negld saman,
endist hún oftast mjög
skammt.
m
MeOfylglandi skissur Og leiöbeínlngar eru eftir
Helga Hallgrímsson, húsgagnaarkitekt.
nrrrr
• f'1 t;
Sé hurðin spónlögð bcggja mcgin helzt hún örugglega bein.
Ilurð, spónlögð aðeins annarsvcgar, bognar og vcrður
ónothæf.
6
Mikilsvert cr að skúffu-
forstykki og hurðir séu
kant-límdar á út-brún-
um, það er notaður
massivur timburrenn-
ingur en ekki þunnur
spónn.
Sé spónn límdur á kant-
ana, er mjög hætt við
flaska úr spóninum fyrr
eða síðar.