Vikan


Vikan - 03.11.1966, Qupperneq 17

Vikan - 03.11.1966, Qupperneq 17
Það er líkasttil einsdæmi, að krafa um ábyrgðarmerk- ingu og vöruvöndun komi frá framleiðendunum sjálf- um. Og við vitum þess ekki fordæmi, að samtök neyt- enda og framleiðenda standi saman að slíku. En þetta hefur gerzt hér, húsgagnasmíðameistarar ákváðu að taka upp ábyrgðarmerkingu á framleiðslu sinni og buðu Neytendasamtökunum aðild. Og þannig varð ábyrgðarmerkið til: Vegna kröfu framleiðenda en ekki neytenda. KANTUtflHG Undanfarið hafa lesendur dagblaðanna veitt athygli lítilli og látlausri auglýsingu frá Húsgagnameistarafélagi Reykja- víkur, um ábyrgð á húsgögnum. Þar hefur verið mynd af framleiðsluseðli og til hliðar er ábending til húsgagnakaup- enda um það, að þeir gangi úr skugga um, að þetta merki sé á húsgögnum, sem ábyrgðarskírteini fylgi við sölu. Það er svo sem allt í lagi að gá að því, en til hvers? Það er vegna þess, að húsgagn, sem hefur þetta litla merki, er unnið af fagmönnum sem vilja vanda vinnu sína og taka fullkomna ábyrgð á efni og vinnu. Það var fyrir um það bil tveimur árum, að Guðmundur Ó. Eggertsson bar upp á fundi í félagi húsgagnasmíðameist- ara í Reykjavík tillögu þess efnis, að húsgagnasmiðir kysu nefnd til að semja reglugerð um vöndun efnis og vinnu félagsmanna sinna sem síðan tækju upp ábyrgðarmerkingu. Þetta mál hafði að vísu áður verið til umræðu á félagsfund- um, en nú fyrst kom fram ákveðin tillaga og var samþykkt. Strax eftir áramót 1965 hófst nefndin handa um samn- ingu laga um ábyrgðarmerkingar og reglugerðar til að vinna eftir. Þetta var erfitt verk, ekkert til hliðsjónar innanlands, en eftir nokkuð langa bið fékk hún fyrir milligöngu Lands- sambands iðnaðarmanna, dönsk lög hliðstæð. Þá hafði nefnd- in samið sitt uppkast frá rótum, furðulega líkt dönsku lög- unum. Mjög snemma á sínum ferli hafði nefndin samband við Neytendasamtökin og bauð þeim aðild að samtökum um ábyrgðarmerkingu, og þau voru þvi mjög hlynnt. Síðán var uppkastið sent félagsmönnum og þeir beðnir um breyting- artillögur, en engar komu. Og loks, 22. júní 1965 voru lö^- in samþykkt. 20. maí í ár voru svo fyrstu merkin afhent, og var það einn nefndarmanna, Lárus Sigurgeirsson, sem fékk fyrstu merkin og merkti skrifborð sem hann framleiðir. Síðan hafa fleiri komið á eftir, og þegar þetta er skrifað, merkja 15 félagsmenn framleiðslu sina með ábyrgðarmerkinu. Alls munu vera 57 félagar í Húsgagnameistarafélagi Reykjavík- ur, sem gætu öðlazt rétt til að ábyrgðarmerkja, en félagið gerir strangar kröfur til þeirrar framleiðslu, sem þannig er merkt. Fjögurra manna matsnefnd, skipuð tveimur frá félaginu og tveimur frá Neytendasamtökunum, dæmir um framleiðslu félagsmannsins, áður en hann fær leyfið. Um leið skuldbindur hann sig til að fara eftir allströngum reglum. sem tryggja fyrsta flokks framleiðslu: 1. grein. Viður skal vera vel þurr, ca. 8%. Þetta á jafnt við um plötur sem annan við. 2. grein. Skúffuhliðar skulu vera úr góðri furu, birki, brenni, eik eða öðrum liarðvið (ekki úr mjúk- viði). Ef skúffuforstykki eru spónlögð eiga þau að vera kantlímd að ofan. 3. grein. Spónleggja skal alla hluti beggja megin, sem spónlagðir eru. 4. grein. Spónplötur og hörplötur í hurðum og öðrum hreyfanlegum hlutum skulu vera kantlímdar á tveim köntum. 5. grein. Séu notaðar spónplötur og hörplötur verður að gera sérstakar ráðstafanir til þess að fá gott skrúfuhald þar sem festingar er þörf. 6. grein. Allar samsetningar skulu vera traustar, falla vel saman og snyrtilega frágengnar. 7. grein. Skrár, lamir, höldur og önnur málmvara skal vera úr góðmálmi. 8. grein. Áferð skal loka vel viðnum, svo að fita og óhreinindi komist ekki í hann, vera mjúk við- komu og hluturinn' allur vel frágenginn. 9. grein. Allar brúnir skulu vera mjúkar viðkomu og fleitir auðveldir í hreinsun. Ekki eru þeir, sem rétt hafa til að nota ábyrgðarmerki, skuldbundnir til að merkja alla sína framleiðslu, en sá hlutur, sem merktur er, er allur í ábyrgð. Þannig verður framleiðandinn einnig að ábyrgjast bólstrun á framleiðslu sinni, ef hann setur merkið á bólstraða vöru. Þetta var al- gert skilyrði af hálfu Neytendasamtakanna, enda hálfgert Framhald á bls. 34) 44: tbi. VIKAN Í7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.