Vikan - 03.11.1966, Page 28
Akstur
stefnu-
Ijósum
Því miður er það svo, að í umferðinni í dag er mikill fjöldi öku-
manna sem nota stefnuljósin þannig að þau koma að litlu sem
engu gagni í umferðinni. Stefnuljós eiga fyrst og fremst að sýna
öðrum vegfarendum hvað viðkomandi ökumaður ætlar að gera,
en ekki hvað hann er búinn að gera.
Hve oft sjóum við ekki ökumann nota stefnuljósin þannig,
að hann skellir þeim ó um leið og hann skiptir um akrein, eða jafn-
vel eftir að hann hefir beygt, svo ekki sé minnzt ó þó, sem beygja
í öfuga ótt við merkin sem þau gefa.
Samkvaemt umferðarlögum hvílir sú skylda ó hverjum ökumanni
að gefa merki um breytta akstursstefnu og merkið skal gefið með
stefnuljósum ó þeim ökutækjum sem hafa skulu slík tæki, og skal
það gefið ó greinilegan og ótvíræðan hótt.
Gæta ber þess sérstaklega að hætta merkjasendingum, þegar
þær eiga ekki lengur við og að gefa stefnuljós í öfuga ótt getur
verið stórhættulegt.
Gefa skal merki í tæka tíð um fyrirhugaða breytingu ó aksturs-
stefnu:
a. Þegar beygt er ó gatnamótum.
b. Þegar skipt er um akrein ó vegi.
c. Þegar ekið er af stað fró brún akbrautar.
Þó hafa margir ökumenn tekið upp þann hótt að nota stefnuljós
í sambandi við framúrakstur ó þjóðvegum og hefur það ón efa
skapað öruggari umferð ó okkar mjóu þjóðvegum.
Okumanni er skylt að gæta þess vandlega, óður en merki er gef-
ið, að breyting ó akstursstefnu eða hraða valdi ekki hættu eða
verulegum óþægindum fyrir aðra vegfarendur. Ökumenn verða að
hafa það hugfast ,að stefnuljós veita engan ókveðin rétt í um-
ferðinni, þau eru fyrst og fremst leiðbeiningarmerki til þess að
gefa öðrum vegfarendum í skyn hvað ökumaðurinn ætlar að fram-
kvæma og merkjagjöf leysir ökumann ekki undan varúðarskyldu.
HafiS það hugfast, að stefnuljósin eru nauðsynlegt leiðbeining-
artæki til þess að skapa öruggari og greiðari umferð. Þau eiga að
sýna hvað ökumaður ætlar að gera, en ekki hvað hann hefur gert.
Notkun stefnuljósa þarf að beita hiklaust og af ókveðni, þannig
að ökumenn geti treyst þeim og hagað akstri sínum eftir þeim. Rétt
notkun stefnuljósa getur dregið úr umferðarslysum og óhöppum
í umferðinni og hún er merki vaxandi umferðarmenningar.
28 VIKAN tbL
Smíöum allar gerðir eldhúsinnréttinga, útveg-
umteikningar eftirvali kaupenda. - Framleið-
um og þiljur, fataskápa, sólbekki og allskonar
innréttingar.
02542 FRAMLEIÐANDI í : NO.
HUSGAGNAMEISTARA-
FÉLAGI REYKJAVÍKUR
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA
Jóns Pétursonar
SKEIFAN 7 - SÍMI 31113.