Vikan


Vikan - 03.11.1966, Síða 40

Vikan - 03.11.1966, Síða 40
anna. Auðfundið var að það var mikið saert, og mér hló hugur í brjósti vð þó tilhugsun, að þegar við faerum að elta það með morgn- inum, yrði það orðið svo veikt af sórum sínum að við aettum í öllum höndum við það. Eftir klukkutíma ó að gizka voru sórin ó öxl minni og höndum hætt að blæða, og bjóst ég við að illt vaeri hlaupið í þau. Nóttin var heið- skír og ég só Sporðdrekamerkið færast yfir himininn, unz allar stjörnur bliknuðu fyrir döguninni, og frumskógurinn vaknaði við nýjum degi. Menn mínir komu klukkustund eftir sólarupprós og tveir voru þeg- ar sendir að sækja létta rffilinn minn. Tígrisdýrið var farið, og um sama leyti og við vorum að leggja af stað til að rekja slóð þess, fannst riffillinn, sem dýrið hafði tekið, undir runna í nokkurri fjarlægð. Ég lét ekki nema einn leitarmann fara með mér. Oxlin var svo bólgin og handleggurinn svo stirður að ég gat ekki lyft rifflinum hærra en móts við mjöðm. Eftir að leitarmaður minn hafði rakið slóðina með varúð [ klukku- tíma kom hann auga ó tígrisdýrið ofan úr tré og skaut á það úr litlu byssunni, sem ég hafði fengið hon- um. En það bærðist ekki. Læddist ég þá nær og fleygðum við stein- um á undan okkur, þangað til við komum alveg að því. Þar lá það upp í loft — steindautt. Nú þurfti að láta hendur standa fram úr ermum. Við bárum dýrið yfir að tjaldstaðnum. Ég reyndi að sótthreinsa sár mín eftir föngum. Svo var tígrisdýrið flegið, og að- stoðarmennirnir fengu kaup sitt ásamt aukaþóknun, og var svo far- in 15 km leið um frumskógana til' næstu járnbrautarstöðvar. Síðan fórum við til Itarsi og þaðan að lokum til Pachmarhi, og tók það þrjátíu klukkustundir. Læknirinn, sem við mér tók, var ekki skurð- læknir, en hann gerði þegar í stað aðgerð á mér og var það því að þakka, ásamt góðri hjúkrun á her- spítalanum, að öxlin læknaðist. En stundum finnst mér sem banabörnum mínum hefði þótt meira gaman að sögunni, ef tígris- dýrið hefði étið dálítið meira af mér. Pils. Framhald af bls. 46. Sé efnið þykkt er bezt að klippa af saumunum, pressa þá út og ganga frá saumförunum með Zig-Zag. Pressið annars sniðsaum- ana inn að miðju að aftan og framan og sneiðingarnar út. Klippið af þeim eins og lýst var með sniðs. á þykkum efnum. Saumið sauminn að framan að klaufinni. Gangið frá saumnum með Zig-Zag og um leið brúnum klaufarinnar. Brjótið klaufina þannig að hún sé þráðrétt í tvöföldu brúnina og stingið i hana rennilás eins og í buxnaklauf. Gangið frá pilsinu að ofan með rifsbandinu. Zig-Zagið fyrst pils- brúnina að ofan, leggið bandið réttu mót réttu við pilsið 1 sm. inn á pilsið frá brún þess. Sting- ið 2 mm. frá brún rifsbandsins. Brjótið bandið inn á röngu svo ekki sjáist frá réttu og stingið síðan um 2—3 mm. frá pilsbrún- inni frá réttu. Mælið rétta sídd og gangið frá faldinum. Sé pils- ið fóðrað er nauðsynlegt að sauma það með rifsbandinu, festa saumförum þess við saumför pils- ins og klippa fóðrið, niðri í fald- brúninni. Vösunum er þá fest á undan fóðrinu. Saumið að lok- um vasana á pilsið og fer vel að sauma þá á frá réttu. Einnig fer vel að hafa Þá á röngu og sauma rennilás í op þeirra frá réttu. ☆ Flóttinn til óttans. Framhald af bls. 25. an tárin streymdu niður eftir kinnum hennar. En þá gerðist dálítið undarlegt. Alan flýtti sér til hennar og tók hana £ fangið. — Mér þykir þetta mjög leitt, ástin mín, en ég neyddist til að hindra þig í að eyðileggja alit saman. Hún lagði höfuðið upp að öxl hans og grét lágt. Hún var allt of æst til þess að geta hætt, allt of full af undarlegri ham- ingjutilfinningu, til að geta hald- ið aftur af tárunum. Hann klapp- aði henni klunnalega á öxlina. — Svona, svona, Fay, hættu nú að gráta. Rödd hans var mjög þýð. — Ég hefði ekki átt að láta þig fá svona taugaáfall. Ég hélt að þú svæfir. Hún hætti að gráta. — Alan, þú gerðir mig svo hrædda. Þú varst eins og kúlíi þegar þú komst. Hann kinkaði kolli. — Ef dulbúningurinn hefði ekki verið svona sannfærandi, hefði það getað komið sér illa fyrir mig, sagði hann og brosti undirfurðulega. En hún skildi hvað hann meinti, og um hana fór léttur skjálfti. Dularbúning- urinn var sannarlega mjög sann- færandi, að því undanteknu, að Alan var miklu hærri en nokkur hinna innfæddu, sem hún hafði séð. Hann var í óhreinni, hvítri skyrtu og rifnum bómullarbux- um. En hvernig hafði hann farið að því að gera hárið á sér svona kolsvart og húðina súkkulaði- brúna? — Hversvegna dulbjóstu þig sem innfæddann? — Ég vildi líta út eins og við á hér, hvíslaði hann. — Ég hef notað svona dulbúning áður. Það var raunar í svona búningi, sem ég slapp frá Japönum, meðan á stríðinu stóð. Það kemur mér einnig til góða, að ég kann hrafl í máli innfæddra. Hreiilstistæki BAÐKER, hvít og lituð í stærðum 140, 150, 160, 170 cm. SETBAÐKER. STURTUBOTNAR. HANDLAUGAR, hvítar og litaðar í miklu úrvali. W.C., hvít og lituð, margar gerðir. BLÖNDUNARTÆKI og annað til baðsetta í miklu úrvali. Komið, skoðið og sannfærist um hið mikla úrval hreinlætistækja hjá okkur. J. Þorláksson & Norðmann h.f. Bankastræti 11 — Skúlagötu 30. 40 VIKAN 44- tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.