Vikan - 03.11.1966, Side 43
í HÓTEL SÖGU VAR EINGÖNGU NOTAÐ THERMOPANE
EINANGRUNARGLER
amwr wœm
Lhe/unofi
ÞÉR FAlÐ EKKI ANNAÐ BETRA
ane
E3GGK2UT li«ISUA\SSO\ A Cö. HF.
SÍMI 11400
— Hvernig ætti ég annars að
drepa tímann?
— Þú gætir lesið.
— Ég er ekki svo hrifinn af
vikublöðum, sem eru þriggja
vikna gömul. Fyrir mitt leyti
get ég aðeins sagt, að þú held-
ur þig svo mikið í barnaherberg-
inu, að það lítur helzt út fyrir
að þú sért að forðast mig.
— Hvers vegna ætti ég að
gera það? Hún var viss um að
eitthvað var að. Breytingin lá
í hennar eigin tilfinningum, hún
óttaðist að viðurkenna sannleik-
ann fyrir sjálfri sér. Af eðlis-
ávísun vissi hún, að ef þetta var
raunverulega satt, myndi það
ekki aðeins gera málið flóknara,
heldur alveg ómögulegt. Hvernig
gæti hún deilt herbergi með
manni, sem hún var ástfangin
af, án þess að láta undan ást
sinni? Það var ekki vegna þess,
að hún reiddi sig ekki á hann,
heldur treysti hún eklti sjálfri
sér. En auðvitað er ég ekki ást-
fangin af Alan, reyndi hún að
fullvissa sjálfa sig. Það er líka
bara vegna þessa falska hjóna-
bands, sem hann er sofandi í
tvíbreiðu rúmi við hliðina á
mér, sem ég get horft á hann
bursta hár sitt og raka sig, þeg-
ar hann lætur baðherbergisdyrn-
ar standa opnar. Mig hefði
aldrei grunað, að það gæti ver-
ið svona heillandi að horfa á
mann raka sig, eins og ég hef
séð marga af sjúklingum mínum
gera það. Ég hefði aldrei getað
trúað því, að mér ætti eftir að
þykja svona vænt um að brjóta
saman náttföt nokkurs manns,
og leggja þau undir koddann
hans. Eða að hengja fötin, sem
hann hefur kastað á stól, inn í
fataskápinn. Ég held, að ég hafi
eins og flestar aðrar, fengið ein-
hverskonar þrælsást. ... Æ,
hættu nú þessum fíflaskap, Fay!
Alan stóð beint fyrir aftan hana.
— Fau, snúðu þér við og líttu
á mig. Hún sneri sér hægt við,
því hún gat í rauninni ekki unn-
að honum þess, að hún gegndi
honum.
— Ég hef ekki áhuga fyrir
köldum, ljóshærðum, bláeygum
konum. Eftir á hefði hún getað
bitið af sér tunguna, en áður en
hún vissi af, hafði hún sagt:
— Það var önnur ljóshæi'ð og
bláeyg kona, sem þú virtist hafa
áhuga fyrir!
— Já, en hún var ekki köld
og bláeyg.
Allt í einu hallaði hann sér
fram og kyssti hana. Þau stóðu
grafkyrr og horfðu hvort á ann-
að. Að lokum hvíslaði hún:
— Hvers vegna gerðir þú
þetta? Hann yppti öxlum:
— Nú, ég er aðeins maður.
DULARFULLA PLANTEKRAN
Á hverju kvöldi kom John
Mantesa með nýja afsökun fyrir
því, að hann gæti ekki sýnt þeim
plantekruna, sem Alan langaði
til að eignast.
— Tafatækni, sagði Alan við
Fay. — Þau eru hrædd um, að
þegar við höfum séð hana, hafi
þau ekki lengur ástæðu til að
halda okkur hér.
— Ég get enn ekki skilið,
hvers vegna þau hafa áhuga fyr-
ir að halda okkur hér. Hann
hló hörkulega.
— í fyrsta lagi halda þau
okkur frá Eve. Þau vita að þeg-
ar við komum aftur til Singa-
pore, setjum við himin og jörð í
gang til að hitta hana. Hún reis
á fætur og horfði á hann með
hnotubrúnum augum sínum.
— Alan, ég er svo hrædd
vegna Eve. Þótt hún væri veik
eins og þau segja, gæti hún að
minnsta kosti skrifað mér.
— Það gerir hún líka áreiðan-
lega, en ég myndi ekki leggja
mikið upp úr því, sagði hann.
Hún varð allt í einu öskureið
út í hann og langaði mest til að
gráta.
— Það lítur ekki út fyrir, að
þú hafir miklar áhyggjur af Eve.
Ætli þá hafir ekki miklu meiri
áhuga fyrir að daðra við þessa
heimsku gæs, frú Mantesa? Hvað
eigum við að vera lengi hér?
Hún vissi vel, að hún var ó-
sanngjörn, en hún var með grát-
stafinn í kverkunum. Hún vissi
ekki, hvað var að henni, en síð-
an hann kyssti hana — þetta var
bara stuttur koss — hafði hún
verið jafnvægislaus, þegar þau
44. tbl. VIKAN 48
UNGFRU YNDISFRIÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá N Ö A .
HVAR E R ÖRKIN HANS NOA?
Það er alltaí sami leikurinn í hennl Ynd-
isfríð okkar. Hun hefur fallö örkina hans
Nóa elnhvers staðar í blaðinu og heitir
góðum verðlaunum handa þeim, sem getur
fundlð örklna. Verðlaunin eru stór 'kon-
íektkassi, fullur af bezta konfekti, og
framleiðandinn er auðvitað Saelgætisgcrð-
In Nól.
Siðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Hallfríður Karlsdóttir,
Ljósheimum 10, Reykjavik.