Vikan


Vikan - 03.11.1966, Qupperneq 46

Vikan - 03.11.1966, Qupperneq 46
.jáesíK^ HOLLRÁÐ ★ Sé venjulegur baöherbergisspeg- ill settur í baölierbergiö, rammálaus og skrúfaöur d vegginn, þarf aö sjá fyrir svolitlu rúmi milli hans og veggjarins, ftannig aö loftiö geti leik- iö þar um. Sé þaö ekki gert, safnast vökvi af gufunni bak viö hann og eyöileggur bakiö og skellur lcoma á spegilinn. Þetta má gera meö því aö nota litla gúmmí- eöa korktappa meö skrúfunum, þannig aö loftrúm mynd- ist bak viö. •k Hefur ykkur dottiö í hug, aö hafa nokkurs konar innbyggöan spegil í baöherberginu? Ef þiö foafiö stórar flísar á veggnum, má láta skera speg• ilflísar í sömu stcerö og fella þær inn í hinar flísarnar og hafa spegil- inn í þeirri stcerö sem óskaö er eft- ir. 1 Englandi er liægt aö kaupa slík- ar spegilflisar. Auövitaö byggist þetta á því, aö flísarnar séu sæmi- lega stórar, þannig aö andlitiÖ veröi ekki allt í röndum, þegar horft er í spegilinn, en til aö þetta sé fallegt Jmrfa spegilflísarnar aö vera í ná- kvœmlega sömu stærö og veggflis- arnár. k Til þess aö koma í veg fyrir of mikla gufumyndun, þegar rennt er í baökeriö, er gott ráö aö láta kalda vatniö renna fyrst u.þ.b. 10 sm. hátt yfir botninn og bæta síöan heita vatninu i. Látiö elcki renna kalt og heitt vatn samtímis. ■k . Séu börn á heimilinu, getur ver- iö heppilegt aö velja hverju barni vissan lit á handklæöi, þvottapok- ufn, tannbursta og tannburstaglösum. Meö því móti getur hvert barn geng- ið aö sínum hlutum og mamman þarf ekki aö vera sífellt á hlaupum til aö sjá um að allt gangi eins og vera ber. »■ : HALDIÐ BRUNA HUÐAR LITNUM VIÐ Þær, sem hafa lagt á sig dýr ferðalög til þess að fá fallegan brúnan lit á húðina — þótt vonandi hafi þær haft gagn og gaman af ferðinni á ann- an hátt líka — verða oft fyrir vonbrigðum, þegar hausta tekur og húð- in fölnar. Stundum er líka eins og hún verði óvenjulega gráleit og muskuleg, meðan brúni liturinn er að hverfa. Litnum er hægt að halda töluvert við með því að nota Ijósalampa. Þó er ekki hægt að vera í ljósum allan veturinn. það er bæði áreynsla, fyrirhöfn og ekki hollt fyrir húðina, en að taka t.d. annan hvern mánuð í ljósakúr ætti að vera hæfilegt. Eðlileg húð þolir 10—15 mínútur á dag. Berið sólolíu á húð- ina. áður en þið farið í ljósin og gerið það nokkru áður, þannig að húð- in geti sogið hana vel í sig, áður en farið er í ljósin. I»að er mjög áríð- andi að nota fituríkt andlitskrem þann mánuðinn, sem verið er í ljós- unum, því að þau þurrka húðina mikið. PRJONAÐ PILS Hér sýnum vi8 sniS af þröngu stuttu pilsi með klauf að fram- an og heilu á hliðum: Efni: Ein sídd + faldur af tvíbreiðu ullarefni (1,40 sm. á breidd). Hafið fóður ef vill. Rennilás í klaufina um 21 sm. og 2ja sm. breitt rifsband til frágangs í mitti. Búið til sniðið eftir uppgefnum málum skýringarmyndanna. Mátið og gerið breytingar ef með ' þarf. Leggið sniðin á tvöfalt efnið á röngu og látið miðju að aftan liggja að tvö- -faldri og þráðréttri efnisbrúninni. Ath. einnig þráðr. merkingu sniðsins. Sníðið saumfarslaust. Merkið fyrir sniðsaumum og sneið- ingum með sniðahjóli og kalkipappir. Saumið fyrst sniðsauma og sneiðing- ar, byrjið efst og ath. að saumarnir eyðist út með nákv. svo ekki myndist föll við enda Þeirra. Framhald á bls. 40.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.