Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 47
Buxur eru enn í
tízku bæði að degi
og kvöldi. Þetta er
samkvæmis- eða
heimaklæðnaður,
hnepptur með stór-
um hnöppum á öxl-
um, en lausar slár
koma í ermastað.
Þessar hettur virðast
ætla að verða mikiö
notaðar í vetur, en
fyrir nokkru sýndum
við mynd af einni
slíkri skinnfóðraðri
frá Cardin. Þessi er
úr stungnu og fóðr-
uðu nælonefni, silf-
urgrá, en silfurlitur-
inn er alls ráðandi
um þessar mundir.
.. . : ::i1|lll
-£> Fötin þurfa ekki að
vera ný til þess að verða
nýtízkuleg. Á myndinni
hér að ofan og neðan er
sýnt hvernig endurnýja
má gamlar peysur. Á
þeirri efri er meðal-
breitt, hvitt rifsband sett
í hálsmál og í beltis-
stað (fest með smáspor-
um) og rúllukraga-
peysan er sem ný.
Enn fallegri er þó breyt-
ingin á neðri myndinni.
Úr hvítu piqué er gerð-
ur enslcur prestakragi —
hólkur um hálsinn
hnepptur með tölu i
sama lit og peysan (helzt
yfirdekktur með sama
efni. Hálsmálið siðan
saumað við að neðan.
Böndin á úrunum eiga
að vera breið núna, sum
eru miklu breiðari en
hér er sýnt. Þetta band
er gert úr röndóttu rifs-
bandi og spenna þakin
með því sama. Hægt er
að eiga mörg bönd og
skipta um lit eftir föt-
unum í hvert skipti.
Þessi tegund af skokkum, sem sagt er að Cardin
hafi teiknað, eru sérstakiega skemmtilegar flíkur.
Ég hef það reyndar fyrir satt, að hann hafi fengið
þessa hugmynd frá brezka tízkuteiknaranum fræga,
Mary Quant, en Bretar eru orðnir á undan París
oft og tíðum hvað tízku snertir. Stúlkan er með
mikinn og nýtízkulegan skartgrip framan á mjóstu
rönd skokksins, en eins og sjá má, er það alveg
tilvalinn staður fyrir áberandi skartgripi.