Vikan


Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 6

Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 6
Viðkvæmni.. 'lóía handar yðar Hin viðkvæma húð yðar þarfnast sérstakrar umhyggju og verndar Johnson barna- varanna, vegna þess, að sér- hver af hinum þekktu John- son barnavörum er aðeins búin til úr beztu og hreinustu efnum. Nólægt hundrað óra reynsla í framleiðslu ó púðri, kremi, sópu, olíu og vökva fyrir við- kvæma húð barna hefur gert Johnson & Johnson traust- asta nafnið á barnavörum. ; % s a m i @ iM HMÍfl HVEITIBRAUÐSDAGAR OG NOTAÐIR BÍLAR. Kæri Póstur! Þar sem þú hefur oftast góð svör á takteinum við hinum ýmsu spurningum lesenda þinna þá ætla ég að reyna þig sem upp- lýsingaþjónustu. Hvernig er orðið hveitibrauðs- dagar upp fundið og hvaða dag- ar eru það? Miðast þeir eingöngu við giftingu? Mér líkar vel við Vikuna, sér- staklega hef ég gaman af grein- inni „í fullri alvöru“ og Bílapróf- uninni. Ég er, eins og fleira pilt- ar að svipast um eftir bíl til kaups, en hef ekki efni á að kaupa nýjan bíl, þess vegna datt mér í hug að koma með tillögu: Vilduð þið birta grein um bíla- viðskipti, hvað maður ætti helzt að athuga við kaup á notuðum bíl og hvaða pappíra þarf að út- fylla við eigendaskipti á bílum? Vonast eftir árangri. Á. Ágúst. E.S. Hvernig er skrift og stíll á þessu bréfi? Hveitibrauðsdagar eru eðlislega skyldir enska heitinu Honey moon (hunangstungl) á fyrstu dögum hjónabands. Meiningin er sú, að þá sé allt svo gott og sætt og hnökralaust sem verða megi. Ekki höfum við upplýsingar um, hvenær eða hvers vegna orðið hveitibrauðsdagar var einmitt haft með hveitibrauði, sennilega hefur ekki verið um aðra mýkri fæðu að ræða. Sömuleiðis liggja engar upplýsingar fyrir um á- kveðinn fjölda hveitibrauðsdaga, en margir telja þá fyrstu 30 dag- ana eftir brúðkaupið. Hunangs- tungl bindur tímann nánar, eftir því standa þessir mjúku, bragð- ljúfu og cftirsóknarverðu dagar eitt tungl eftir brúðkaupið. Þeir miðast eingöngu við giftingu. Það er ákaflega erfitt að gefa tæmandi leiðarvísi um kaup á notuðum bílum. Veigamesta at- riðið er að okkar dómi það, að boddý og grind sé í góðu lagi og ekki ryðgað, sömuleiðis að sjálf- sögðu vél, gírkassi, drif, stýri, hemlar og svo framvegis. Fæstir bílakaupendur hafa sjálfir vit á þessum hlutum né aðstöðu til að rannsaka þá, en þeim er rétt að hafa með sér sérfróða menn, þótt þeir vcrði ef til vill að borga þeim kaup fyrir, ef vinátta dug- ir ekki. Og hér í Reykjavík er rekið fyrirtæki, Bílaskoðun h.f., sem einmitt grannskoðar bíla og gefur skýrslu um ástand þeirra fyrir vægt gjald. Slík skýrsla get- ur verið ómetanleg aðstoð í vali á notuðum bíl. Veðbókarvottorð þarf að liggja frammi við kaup á bíl, en að öðru leyti þarf ekki að útfylla önnur plögg en afsal og tilkynningu um eigendaskifti, en slík eyðublöð fást á lögreglu- stöðvum. Gættu þess að láta ekki kylfu ráða kasti, það er betra að missa af einum girnilegum bíl heldur en kaupa hann í bráð- ræði og sjá eftir því alla tíð síð- an. Skriftin er þokkaleg, en vafasamt að hægt sé að tala um stíl. Hinsvegar er bréfið þokka- lega fram sett. AF HVERJU VAR RIFIZT. Kæri Póstur! Við erum hérna tvær 16—17 ára stúlkur á gagnfræða og kenn- araskólastigi og okkur langar til að forvitnast um svolítið og spyrja yður um hvað eiginlega var rifizt við mæður okkar (eða maður tali nú ekki um ömmur) þegar ekki voru til mjólkurhyrn- ur, bítlahár, stutta tízkan, and- litsmálning eða bítlagarg? Já á hverju hneyksluðust kerlingarn- ar yfir kaffibollunum? Tekurðu við frumsömdum smásögum og atómum til birtingar? Hvernig er skriftin efri? Neðri? Svo kveðjum við þig með ást- arþökk. X2. Því er fljótsvarað. Það var rifizt yfir spillingu æskunnar, sem allt frá því að sögur hófust hefur ver- ið að fara í hundana. Æskan hef- ur al.la tíð verið löt og hyskin, lauslát og óreglusöm, ungling- arnir staðfestulausar óráðsíur. Og tæpast verður mikil breyting á því. — Við lesum allar frum- samdar smásögur af áhuga og velvilja, atómum eigum við erf- itt með að hafa hendur á og fremur lítinn áhuga fyrir atóm- ljóðum. Skriftin efri er gleið og ekki falleg, sú neðri afar svip- uð nema heldur smærri og mun þéttari, erfiðari að lesa. MÁLSHÆTTIR UM VEÐRIÐ Kæra Vika. Þú kannast auðvitað við máls- háttinn: „Á skammri stundu skipast veður í lofti.“ Ég heyrði einhverntíma annan ágætan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.