Vikan


Vikan - 09.03.1967, Page 9

Vikan - 09.03.1967, Page 9
þannig getur veðurfar á íslandi veriS frá því í nóvemberbyrjun til marzloka: eða því sem næst. Kveikjulásinn er vinstra megin við stýrislegg- inn, sem mér þykir heldur ó- þægilegra, en hann ásamt öllum tökkum er neðst á mælaborðinu og ökumaðurinn verður að halla sér fram til að ná til þeirra — sem er ókostur. Þurrkurnar taka góðan flöt en rúðusprautan mætti vera örlátari. Stefnuljósarofi er á venjulegum stað vinstra meg- in á stýrisleggnum, og hávært flaut heyrist, ef rofanum er ýtt inn. Stýrishjólið er látlaust, en einhvernveginn finnst mér ég aldrei ná verulega þægilegri stillingu með sætið, svo bæði stýrið og fótstigin lægju vel við í einu. Framsætin eru þokkalega sniðin og gefa góðan stuðning við bakið, en styðja ekkert við lærin. Fótstigin öll eru af gaffaltýpu en bensíngjöfin er heldur ó- þægileg, ekkert til að styðja við fótinn heldur verður að halda honum að verulegu leyti á lofti. Þetta er óþægilegt fyrst í stað og óþarfi að hafa það þannig, en í sjálfu sér er það ekkert megin- atriði; sá sem venst þessu fyrir- komulagi hættir mjög fljótlega að taka eftir því. Miðstöðin hefur stýringar í miðju mælaborði og virðist afl- mikil og hit avel, en blásarinn hefur allt of hátt. Öskubakki er í miðju mælaborði efst og annar fyrir aftursætin aftur í til hliðar. — Inniljós er ofan við bakspegilinn en rofinn á því afar leiðinlegur, þarf nákvæmni til að stilla hann á ljós eða myrkur. Og þá er komið að því skemmtilegasta við þennan bíl, en það er vinnslan og tökurnar. Vélin er aðeins 56ha. en bíllinn er léttur svo hlutfallið milli vél- arorku og þyngdar er mjög gott. Viðbragðið er röskar 5 sek. í 50 km. hraða en um 20 sek. í 100 km. svo Vívan svarar einstaklega vel miðað við sína stærð. Þar við bætist að hún liggur mjög vel á sléttum vegi og þolir harkalegar beygjur án þess að skríða út undan sér eða hallast mikið á hliðina. Fjöðrunin er gormar á öllum, svo bíllinn er allur stinn- ur og stöðugur, en á öldóttu mal- biki ber nokkuð mikið á hreyf- ingum upp og niður. Á holóttum malarvegi hristist hann töluvert og þess gætir í stýrinu, en Vívan er beinskreið þrátt fyrir holurnar og kastast lítið til. Höggin upp í stýrið eru til óþæginda, en að öðru leyti er stýrið létt og ná- kvæmt. Bremsurnar eru þokka- legar skálabremsur, en ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með þær. Vívan er fjögra gíra með gólf- skiftingu, einstaklega léttri og lipurri. Ég held að þessi gír- kassi sé með þeim skemmtileg- ustu, sem ég hef fyrir hitt. Skift- ingarnar eru stuttar og snöggar og hægt að skifta niður ótrúlega hratt, fara allt upp í 80 km. í þriðja og niður í 35—40 í fjórða og þannig fá alltaf beztu mögu- Framhald á bls. 43. \fS ofan. Viva á hlið. l’allegar línur, in algengar árið 1967. Til vinstri: Viv- m er laglcg líka að framan. ðll rúmgóöur, sætin spemileg, stýris- stelling gæti verið hetri, gírskipting og kassi frábært. Fcrskloftsristar y/.t í mælaboröi beggja megin gcra góöa loftræstingu. ) um 125 dagar snjór um 30 dagar sól eða 155 dagar MIVEA Ultra - Crem NIVEA-Ultra-Crem verndar hörundið — einmitt á veturna. Snjór, stormur og sól gera hörundið hrjúft og viSkvaemt. NIVEA-Ultra-Crem veitir hörundinu aftur þaS, sem veSurfarið sviptir það, jafnt og þétt. Öllu hörundi. NIVEA nœrir hörundið. Með aðstoð þess helzt hörund yðar alltaf hreint, ferskt og heil- brigt. Einmitt þess vegna eigiÖ þér ekki völ á betri „verndargœzlu". io. tbi. vnCAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.