Vikan


Vikan - 09.03.1967, Side 20

Vikan - 09.03.1967, Side 20
Hvers veona eisiO bér oo akiO....? Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri og rithöfundur Falcon í fyrsta lagi er það síðan ég var leigubílstjóri, að ég get ekki sætt mig við nema ameríska bíla. Það er gamall vani, síðan ekkert var til nema amerískir bílar hér. í öðru lagi er ég ekki þannig búinn að ég geti ekið í neinu tryllitæki, svo ég valdi mér lítinn, amerískan bíl. I þriðja lagi ek ég ó Ford vegna þess að í gamla daga ók ég h|á Kr. Kr. á Akureyri og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með skiftin við hann og varahlutaþjón- ustu hans. Og hennar vegna get ég átt þennan bíl í 10 ár ennþá. Verk-* stæðisþjónustu sæki ég út í Kópavog til afbragðsmanns og hef svo góða reynslu af honum, að ég hef meira að segja lagt af þann vana að standa yfir bílnum meðan gert er við hann. Bíllinn er þannig valinn, að þetta er sex sýlindra bíll og sjálfskiptur. Fyrirfram hafði ég ótrú á skiptingunni og þótti leiðinlegur mati að hafa ekki beina skiptingu á bíl. En síðan ég vandist henni, tek ég til orða eins og brennivínskarl og segist ekki geta án hennar verið, og get ekki hugsað mér að eignast bíl í framtíðinni nema hann sé sjálfskiptur. Ég tel, að Ford Falconinh sé ákaflega vel heppnaður bíll, einkanlega frá 1960—63. Þar á ég einkum við útlitið. Það er svo hlutlaust, að það getur gilt gegnum ýmsar byltingar og útlitsbreytingar á bílum. Það þýðir, að bíllinn er alltaf í góðu gildi. Mér finnst útlitið ekki breytast til batnað- ar. Þeir komu með brot í hliðina á honum, og mér þótti það slæmt. Hann varð líka kubbslegri hjá þeim. — Ég hef hugsað mér að eiga þennan bíl nokkuð lengi. Erling Edwald, lyfjafræðingur Cortfna Ég valdi Cortínu af því það var sú stærð, sem ég var að leita að, og mér fannst hún lagleg og snotur að öllum frágangi. Ég hef nú ekið Cortínu í tæp tvö ár og er mjög ánægður með hana, þetta er liðlegur vagn sem hefur reynzt mér ágætlega, auk þess sem þjónustan hjá umboðinu hefur verið með miklum sóma. Ég hef engan áhuga á að skifta og fá mér öðru vísi bíl, jafnvel þótt buddan leyfði. 20 VIKAN 10-tbl- Stefán Jónsson, útvarpsmaður Ég keypti hann af því ég heyrði vel látið af honum, og líka vegna þess að ég er sá karakterleysingi að ég lána börnunum mínum bílinn stund- um, þótt þeim finnist það reyndar sjaldan, og mér skilst að hann legg- ist ógjarnan saman utan um fólk, sem ekur út af á honum. Ég á hann af því að mér finnst hann góður, og af því að SAAB verkstæðið hér í Reykja- vík er mjög gott. Það eru góðir fagmenn, sem vinna þar, og þeir vinna vel. Ég ek honum af því að mér finnst gaman að þvi, ég er nefnilega ennþá með bíladellu, og það er hreint og beint yndi að aka honum. Guðmundur Jónatan Guðmundsson, bílasali Volkswagen Ég hef átt flestar gerðir bifreiða, en Volkswagen hefur reynzt mér bezt af þeim öllum. Hann er sérstaklega þægilegur í bæjarakstri og lipur í umferð, og mér líkar einnig afar vel við hann í langferðum. Hann er bíla beztur í endursölu, fæst alltaf hátt verð fyrir hann og oftast útborgað, Varahlutaþjónustan er alveg sérstök og varhlutirnir ekki dýrir.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.