Vikan


Vikan - 09.03.1967, Side 21

Vikan - 09.03.1967, Side 21
ívar FriSþjófsson, skrifvélavirki Citroen 2 CV Ég hef áður átt marga bíla, og sá sem ég á nú, er númer tvö í röðinni af gerðinni Citroen 2CV. Og þessi bíll hefur reynzt mér hreinasti demant- ur, algerlgea laus við alla kvilla, og að sitja í honum er eins og bezt gerist með stóra bíla, því hann er ótrúlega mjúkur og þægilegur. Og ( reksturskostnaði er hann eins og skellinaðra. Hann er að vísu Ijótur að sjá hann, en manni fer að þykja svo vænt um hann, að þar ber fátt hærra nema konuna. Það er rangt að sjá og fordæma eftir útliti, menn verða að fá að prófa hlutinn og kynnast honum í blíðu og stríðu, til að •geta dæmt um hann. Ég hef fengið ákúrur fyrir að geta látið sjá mig f þessu, en ég skammast mín síður en svo fyrir það, og ég hugsa ekki fyrir aðra. Örn Johnson, forstjóri Austin Gipsy Meginástæðan er sú, að mér er mikil ánægja að því að geta farið út af alfaraleiðum, án þess að vera með stöðugar áhyggjur af þvi, hvernig maður fer með bílinn. Ég hef átt vandaðri bíla, en þá líka fundið tij þess, að um leið og maður fer út fyrir aðalvegina, skemmir maður vagn- inn og kemst ekki þangað, sem maður gjarnan vildi fara. Þess vegna hef ég valið mér jeppa. Að vísu fórnar maður þannig dálitlum þægindum í bæjarakstri, en það vil ég gjarnan gera fyrir það, sem ég fæ í stað-; inn með þessu móti. Magnús Árnason, hæstaréttarlögmaður Peugeot 404 Ástæðan til að ég keypti mér Mustang er einfaldlega sú, að þegar ég sá Mustang fyrst fyrir einu og hálfu ári, ákvað ég að ef ég hefði nokkurn tíma efni á að fá mér svona bíl, myndi ég gera það. Og það var aðal- lega vegna þess, að ég var svo heillaður af laginu á honum. Og ég ek honum vegna ánægjunnar af því að aka svona fallegum bfl. Þar við bætist, að Mustang er ekki dýrari bíll en margur annar ekur á, ódýrasta útgáfan kostar minna en sá frægi Mercedes Benz. Og einn aðalkosturinn er sá, að Mustang sameinar kosti einkabíls og sportbíls, er sem sagt einstaklega skemmtilegur að eiga. Framhald á bls. 35. Mustang Ómar Ragnarsson, fjöllistamaöur rorioo Ég þarf í mínu starfi á að halda bíl, sem ég get í fyrsta lagi ekið hratt, öðru lagi treyst að komist það, sem ég þarf að fara, í hvaða veðri og undir hvaða kringumstæðum sem er. Og þá er ekki um annan bíl að ræða. — Annars eru víst margir óánægðir með Bronco, sérstaklega hef ég tekið eftir því, að Land Róver eigendur hér í næstu húsum eru mjög óánægðir með hann. Þegar ég hugðist kaupa mér nýjan bíl árið 1963, kynnti ég mér um- sagnir erlendra sérfræðinga um hinar ýmsu tegundir, sérstaklega Evrópu- bíla. í þeim verðflokki, sem ég hafði f huga, reyndist Peugeot 404 fá langbeztan vitnisburð amerískra og enskra gagnrýnenda. Ameríska bíla- blaðið Road & Track taldi hann meira að segja meðal 7 bezt gerðu bíla í heimi. Voru þó hinir sex allir miklu dýrari. Þegar þetta var, á miðju ári 1963, voru aðeins tveir eða þrír bílar í Reykjavfk af gerðinni Peugeot 404, og bíllinn næstum alveg óþekktur hér á landi, þrátt fyrir það, að verksmiðjurnar hafa framleitt bíla síðan 1889, og eru því næst elztu bfla- verksmiðjur f heimi. Ég hef nú ekið Peugeot 404 f þrjú og hálft ár samfleytt, rúmlega 85 þúsund kílómetra, á vegum og vegleysum hér á landi, og reynslan mín er fullkomlega í samræmi við framangreinda reynslu erlendis og álit sérfræð- inga. Bfllinn fer mjög vel á vegi, er kraftmikill og snöggur í viðbrögðum, hefur mjög þægileg sæti og sérstaklega þýðgenga vél. í einu orði sagt: Ég hef ekki nokkurn áhuga á að skifta um bíl, nema þá til þess að fá mér annan af sömu gerð. Kolbeinn Kristinsson, verzlunarstjóri 10. tbi. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.