Vikan - 09.03.1967, Page 23
út um dyrnar. Charles brosti, brá
upp vísifingri og löngutöng,
sigurmerki Churchills, svo sagði
hann Hank með bendingum, að
nú ætlaði hann raunverulega að
fara að sofa. Tuttugu mínútum
seinna, þegar Hank leit inn til
hans, hraut hann lágt.
Þegar Trask sagði drengnum
fyrir verkum, hlaut hann að hafa
gefið honum fyrirmæli um, hvað
hann ætti að gera eftir að
Gregory hefði tekið eða ekki
tekið hringinn. Charles hafði
skriðið aftur upp í rúmið og
farið að sofa. Það þýddi að sjálf-
sögðu, að Trask ætlaðist til, að
væri nóttina í Avila. Með Kay í
óvinahöndum var það óhugsandi,
óbærilegt, að sitja hér alla nótt-
ina, gerandi ekkert. Það hlaut
að vera eitthvað, sem hann gæti
gert, en hvað? Ef hann færi með
Charles til Madrid, nú gæti hann
skilið hann eftir í íbúðinni á
Palace hotel, og þá væri hann
frjáls til að... til að gera hvað?
Hann skellti saman hnefunum í
vanmáttka reiði.
Hann heyrði bíl settan í gang.
Gegnum gluggann sá hann Sun-
beambíl Gregorys renna út um
bogahliðið á veggnum og hverfa.
Nokkrum mínútum seinna komu
tveir menn með töskur og ein
kona út úr hótelinu, stigu inn í
dökkan fólksbíl og hurfu á eftir
bíl Gregorys.
Næstum í sama bili var bank-
að. Hank kippti upp hurðinni, og
þar stóð þybbni Ameríkaninn,
sem hafði sagt honum hvað rétt
klukka væri. Hann gekk inn í
herbergið.
— Ég heiti Cooper, sagði hann.
— Það er allt í lagi, við getum
talað. Þau eru öll farin. Tók hann
hringinn?
— Já, svaraði Hank.
— Þá er hann fuglinn, sem
við erum að leita að, sagði hann.
Hann gekk að símanum, bað um
langlínu og gaf símastúlkunni
númer í Madrid.
— Ég er að hringja í Trask.
— Veit hann um Kay Taylor?
spurði Hank. — Og frönsku kon-
una?
— Já, ég gerði honum orð um
það um leið og við höfðum talað
saman.
— Var ekki Kay varin? Var
enginn til að fylgjast með, hvað
yrði um hana?
Cooper kinkaði kolli. Tommy
Bradley, maðurinn með teikni-
blokkina. Þeir náðu honum, áð-
ur en þeir náðu ungfrú Taylor.
— Ó, drottinn minn, sagði
Hank. — Er hann dáinn?
— Ég veit það ekki, sagði
Cooper og svo lyfti hann síman-
um. — Cooper biður um Trask.
— Ég vil fá að tala við hann,
sagði Hank.
— Rétt, sagði Cooper. Svo tal-
aði hann í símann. — Gregory
tók hringinn. Þau eru öll farin
héðan. Hann þagnaði, hlustaði
næstum mínútu, svo bætti hann
við: — Skil. Hank Wallace vill fá
að tala við þig. Hank tók símann.
— Kay hringdi nokkrar mínútur
fyrir níu, sagði hann. — Hún var
neydd til að hringja. Hún sagðist
vera í Madrid og gæti raunar
verið þar....
— Við erum að leita að henni,
sagði Trask.
— Er Gregory veitt eftirför?
Hann gæti leitt ykkur til hennar.
— Nei, við getum ekki hætt á
að veita honum eftirför. Ekki á
þjóðveginum. Ekki í myrkri. Ef
hann sæi sér veitta eftirför, væri
öllu lokið. Við reynum að ná
honum, þegar hann kemur inn í
Madrid. Cooper hefur fyrirmæli
handa þér, sagði Trask og lagði
á.
Hank fór að dæmi hans og
snéri sér að Cooper.
— Ræstu strákinn, sagði Coop-
er. — Við förum með hann til
Madrid. Ég segi þér allt á leið-
inni.
15.
Cooper ók; hann þekkti leið-
ina betur en Hank, og þeim lá á.
Hann var stórkostlegur öku-
maður, rétt aðeins réttu megin
við að aka hættulega. Ef þeir
væru heppnir, og ef umferðin á
götunum, sem lágu að borginni,
væri lítil, gætu þeir náð til Mad-
rid á aðeins rúmri klukkustund.
Charles teygði úr sér í aftur-
sætinu í Volvónum og var sofn-
aður, áður en múrar Avila voru
úr sjónmáli. Hank leit um öxl
til hans og hugsaði sem svo, að
drengurinn hefði staðið í ströngu
síðan hann yfirgaf skólann; þetta
höfðu verið langir dagar.
— Er hann sofandi? spurði
Cooper.
— Já.
— Hringurinn, sagði Cooper,
— var hringur framgjarns manns
í sendiráðsþjónustunni hér, sem
hefur greinilega selt sig komm-
únistum og orðið starfsmaður
þeirra. Hann átti að verða böð-
ullinn í launmorðinu á Ferraz,
Af einhverri ástæðu flúði hann.
Þeir náðu honum í New York og
myrtu hann. Þeir hafa sett einn
af sínum mönnum í íbúðina
hans í Madrid, og sá á að látast
vera hann og taka hlutverk hans
í morðinu. Þeir sendu hring
Glendennings hingað til að
sanna, hver morðinginn væri.
— Bíddu, greip Hank fram í
fyrir honum. — Glendenning?
— Homer Glendenning. Þekkt-
irðu hann?
Eftil nokkra þögn leit Cooper
Framhald á bls. 49.
MADRD
Eftip Wíllíam og Audrey Roos
13. HLUTI
10. tbi. VIKAN 23