Vikan


Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 29

Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 29
sér aftur yfir sætisbakið í áttina til Johnsons. Hann var ekki eins viss í sinni sök og hann lét, og lmgsaði sem svo, að afstaða lians yrði heltlur neyðarleg ef það sýndi sig, að liann hefði haft á röngu að standa. En rödd lians var ákveðin. „Niður með yður!“ hvæsti hann að Johnson. Aftarlega í lestinni starði dr. Burkley annarshugar á húð- arglugga. Líflæknir forsetans hafði ekkert lieyrt. Til þess var hann of langt frá vettvangi atburðanna. Forsetinn var særður, en ekki til ólífis. 6,5 millimetra kúla hafði hitt hann aftan á hálsinn, sært hægra lungað, rispað harkann og gengið út um hálsinn að framan, fast við hindishnútinn. Sumarið 1966 gaf slúdent frá Cornell-háskóla út ritgerð, sem gaf í slcyn að þessi kúla hefði farið aðra leið. Með þvi var látið að því liggja að Oswald liefði ekki einn um vélt. ÍJr því hljóta að skera röngtenmyndir þær og Ijósmyndir, er teknar voru frá öllum liugsanlegum hliðum af líki forset- ans, er það var skoðað. Robert Kennedy hefur slegið því föstu, að þessar myndir séu of óhugnanlegar til að verjandi sé að nokkrir, ekki heldur reyndir sérfræðingar, fái að sjá þær fyrr en árið 1971. Með því fororði liefur hann fengið myndirnar þjóðskjalasafninu í hendur. Að vísu liefur höfund- ur þessarar bókar ekki séð myndirnar, en hann liefur rætt við þrjár sérfróðar manneskjur, sem rannsökuðu þær áður en þær voru innsiglaðar. Engin þeirra þekkti hinar tvær, en allar þrjár gáfu samhljóða vitnishurð um það, sem myndirnar hefðu sýnt. Röntgenmyndirnar sýna ekkert sár, sem benti til að kúlari liafi farið inn „neðan við öxlina“, eins og stúd- entinn hélt fram. Það skal viðurkennt, að kúlnaför gegnum mjúka hluti koma illa fram á röntgenmyndum. En hér styðja ljósmyndirnar vitnishurð röntgenmyndanna —- og leiða það greinilega í ljós, að sárið var í liálsinum. Og læknar þeir, er viðstaddir voru líkskoðunina, þar á meðal líflæknir forset- ans, gcla ekki heldur munað hetur en svo liafi verið. Eflir að kúlan hafði farið gegnum Kennedy, þaut lnin áfram gegnum hak, brjóst, hægri úlnlið og í vinstra læri Connallys, þótt ríkisstjórinn yrði þess ekki var á sama andar- taki. Þegar Lincolninn var kominn framhjá hrautarskiltinu, sem horið hafði á milli hans og Abe Zapruders, sá áhugakvik- myndarinn strengda drættina í andliti forsetans og varð sem þrumu lostinn. Nellie Connally sneri sér við i sætinu og leit hvasst á Kennedy. Hann hélt höndunum að hálsi sér, en andlit lians var ekki afmvndað. Hann hafði sigið lítið eitt saman í sætinu. Roy Kellerman taldi sig lieyra forsetann kalla með sín- um sérlcennilegu áherzlum: „Guð mirin góður! Ég hef ver- ið skotinn!“ Roy leit um vinstri öxl sér. Greer horfði um liægri öxl sér. Bíllinn Ijeygði nú silt á livað og rann að lok- um út af akstursstefnu lestarinnar og háðir öryggisverð- irnir sáu, að Kennedv var hæfður. A þessu andartaki kenndi John Connally áverka síns. Hann liné áfram, sá að kelta lians var löðrandi í hlóði og valt til vinstri, í áttina til konu sinnar. Skvndilega fannst ríkisstjóranum sem hann væri dauða- dæmdur. Hann varð gripinn óstjórnlegri hræðslu. „Nei, nei, nei, nei, nei!“ lnein hann. „Þeir ætla að drepa okkur háða.“ Jacqueline Kennedv heyrði lil hans. í einskonar leiðslu liugleiddi hún: „Hversvegna veinar hann?“ Gripin ólla var hún á þessu andartaki farin að snúa sér að manni sinuin. Greer sneri sér að stýrinu. Kellerman var hikandi og leit aftur um öxl. Hvorugur liafði enn áttað sig á því, sem var að gerast, eða livað gera skyldi til að hindra að verr færi. Og nú var líka orðið um seinan fyrir þá að átla sig. Howard Brennan, opinmynntur af furðu og skelfingu, sá Oswald miða i annað sinn. Hann beygði handlegginn og færði nýtt skot inn i hlaupið á ílalska rifflinum sínum. Skotmark hans var í átlatíu metra fjarlægð og sást ótrúlega vel liandan kross- rákanna í sjónaukanum. Hann þrýsti aftur á gikkinn. Forsetafrúin laut lirædd að forsetanum — og það var það síðasta, sem hún gerði sem forsetafi’ú. Það var hálfstríðnis- legur spurnarsvipur á andliti hans. Hún liafði oft séð þennan svip, þegar hann var að hrjóta heilann um erfiða spurningu á blaðamannafundi. Þokki, sem aldrei hrást honum, ein- kenndi hreyfingu hans er liann lyfti liægri liendi svo sem til að strjúka aftur úfið, hrúnt hárið. En hreyfingin varð hik- andi. Höndin féll máttlaus niður. Hann liafði ætlað að bera hana að livirfli sér. En hvirfillinn var horfinn .... Það var liroðalegt um að litast í Lincolnvagni forsetaem- hættisins. Síðari kúlan hafði rifið sig i gegnum litla lieila Ivennedys. Sem Jacqueline laut að eiginmanni sinum, sá hún hluta af höfuðkúpu hans klofna frá. Fvrst hlæddi ekkert. Og síðan, á næsta andartaki, voru þau öll, hún, Connally- hjónin, Kellerman og Greer, löðrandi í blóði, sem spýttist yfir þau. Áklæðið i hílnum varð einnig alblóðugt. Blóðflaum- urinn, þvkkur sem hendi manns, flóði yfir bilgólfið framan við aftursætið. Föt forsetans voru gegndrepa í hlóði og það lak af rósunum í dropatali. Lögreglumaðurinn Bohby Hargis, sem var á bifhjóli rétt á eftir Lincolninum, fékk stóra slettu rauða framan i sig. Kellerman fannst sem loftið væri fullt af röku sagi. John Connallv veinaði aftur og aftur i angist sinni og kvöl; á þessu andartaki fór Nellie, skelfingu lostin, að veina líka. Bæði voru þau gegnvot af hlóði. Jacqueline reis upp á blóðug hnén, sneri sér út að gangstéttinni og hrópaði: „Guð minn, livað eru þeir að gera? Guð minn, þeir hafa drepið Jack, þeir liafa drepið manninn minn, Jack, Jack!“ I framsæti SS 100 X tóku menn nú einnig við sér. „Komdu okkur út úr þessu“, sagði Ivellerman við Gi’eer. í senditækið, sem notað var til samhands milli bílanna, kallaði liann: „Lawson, þetta er Kell- erman. Við höfum orðið fyrir skoti. Komdu oklcur á sjúkra- hús.“ Báðum megin á afturenda Lincolnsins voru handföng úr málmi og fótstig beggja vegna við varahjólbarðann. Clint Hill hafði náð fingrahaldi á vinstra handfanginu og táfeslu á vinstra þrepinu 1,6 sekúndum eftir að siðara skotið reið af. Hann var í þann veginn að rykkja sér inn i bilinn þegar Greer steig á bensíngjafann. Lincolninn geystist áfram, Clint missti fótfestuna og dróst með bílnum eins og dauður hlutur. Frú Kennedy sneri sér við og teygði liöndina eftir honum. Hendur þeirra sriertust, gripu hvor í aðra og liéldu fast. Það er með öllu óvíst hvort þeirra hjargaði hinu. Hvorugt þeirra man það og mvndin, sem Abe Zapruder tók, sker ekki úr um það. Frú Kenncdy, sem fengið hafði alvarlegt taugaáfall, man alls ekkert eftir því að hafa farið upp á afturenda bílsins. Húri dró Clint upp á hílinn og hann ýtli við henni svo að hún luataði niður í sætið. Hann revndi síðan að þekja allt sætið með líkama sínum. Hann gat verndað þau nú, en það var til lítillár huggunar. Þegar utan af götunni liafði Clint séð höfuðsár Kennedys. Ilann vissi að það var hanvænt, vissi að leyniþjónustunni liafði mistekizt, og fullur angistar og vonbrigða lamdi hann þeirri hendinni, sem laus var, í skott- lolc bilsins. í sömu svipan og forsetahíllinn gevstist af stað áleiðis lil sjúkrahússins, féll Connally ríkisstjóri i óvit. Hann hélt sig vera deyjandi. Kona hans liélt það líka. Nellie lagði varirnar 10. tbi. VIKAN 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.