Vikan - 28.09.1967, Blaðsíða 2
BARA HREYFA EINN HNAPP og
§-!y^!4^FlJUMATIC þvottavélin fer sigurför um alla evrópu. -
HAKA GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST.
SJÁLFSTÆÐ
ÞVOTTAKERF!
1. SuSuþvottur 100“
2. Heitþvottur 90“
3. Bleijuþvottur 100’
4. Mislitur þvottur 60“
5. ViSkvæmur þvottur 60“
6. ViSkvæmur þvottur 40“
7. Stífþvottur/Þeytlvinda
8. Ullarþvottur
9. Forþvottur
10. Non-lron 90*
11. Nylon Non-lron 60*
12. Gluggatjöld 40*
M/%B4^FULLMATIC
aSEINS H/%B*/^FULLMAT!C ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚIÐ EINUM SNERLI
OG HAKA SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. — SJÁLFVIRKT
HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM-
ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL-
IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ
GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁl.
ábyrgð
KOMBÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST
2 YIKAN 39-tbl-
í FULLRI ALVÖRU
Heilfig kír
Það er ekki svo ýkja langt síð-
an fyrst var rætt um náttúru-
vernd á opinberum vettvangi.
Mörgum varð þegar ljóst, að
þarna var þjóðþrifamál á ferð-
inni. Það fékk byr undir vængi
á augabragði. Maður gat varia
opnað blað, án þess ekki blasti
við sýn pistill um nauðsyn nátt-
úruverndar; náttúran væri það
dýrmætasta sem við ættum, og
henni mætti með engu móti
spilla með verklegum fram-
kvæmdum.
Það er auðvitað hverju orði
sannara, að við verðum að gera
okkar bezta til þess að vinna
ekki spjöll á náttúrunni, ef hægt
er að komast hjá því með góðu
móti. En það vill oft brenna við,
þegar þjóðþrifamál eins og þetta
kemur fram, að þeim sé gert of
hátt undir höfði. Umræðurnar
um þau teygjast út fyrir mörk
heilbrigðrar skynsemi, fara út í
hreinar öfgar, þannig að hinum
góða málstað er unnið mein,
þvert ofan í það sem ætlunin var
í upphafi. Hið nauðsynlega fyrir-
bæri verður að heilagri kú, sem
getur valdið erfiðleikum.
Náttúruverndin lítur afskap-
lega vel út á pappírnum. Hún
veitir líka góðum stílistum tæki-
færi til að syngja hinni óspilltu
náttúru lof: Ó, fagra land, litlu
fuglarnir og blessuð blómin! En
raunveruleikinn grípur í taum-
ana þegar minnst varir, og hann
getur verið ærið miskunnarlaus.
í sumar reis upp deila um það,
hvar leggja skyldi nýjan veg við
Mývatn vegna kísilgúrverksmiðj-
unnar. Vegurinn varð að þrætu-
epli, og framkvæmd hans stöðv-
aðist vegna mótmæla náttúru-
verndarráðs og fleiri aðila. Hinn
gífurlegi áróður sem rekinn hef-
ur verið fyrir náttúruverndinni
gerði það að verkum, að flestir
snerust gegn þeim sem áttu að
leggja veginn og því jarðraski,
sem slík framkvæmd hlýtur að
hafa í för með sér. En þegar
deiluaðilar leiddu saman hesta
sína í sjónvarpinu, hefur al-
menningi vonandi orðið ljóst, að
málið var ekki eins einfalt og
það sýndist.
Landið er fagurt og frítt. Það
höfum við alltaf vitað, og okkur
ber að vernda fegurð þess að
vissu marki. En við getum ekki
lifað í landi, þar sem ekki má
skerða hina minnstu þúfu.
G.Gr.