Vikan - 28.09.1967, Síða 20
Eiríkur.
Magnús.
Óðmenn
Eiríkur Jóhannsson, gítarleik-
ari Óðmanna, hefur nú ákveðið
að leggja gítarinn á hilluna, en
í hans stað kemur ungur Kefl-
víkingur, Magnús Kjartansson.
Magnús mun jafnvígur á allflest
hljóðfæri en hann mun leika á
orgelið með hljómsveitinni, og
kannski blása í trompetinn við
og við, ef þurfa þykir, en Magn-
ús leikur einmitt með Óðmönn-
um á trompett á hinni ágætu
hljómplötu hljómsveitarinnar. ■—
Hljómsveitin mun að sjáfsögðu
fá á sig annan svip með tilkomu
orgelsins. Óðmenn binda miklar
vonir við hinn unga en efnilega
nýgræðing í hljómsveitinni. Þeir
standa líka í þakkarskuld við
Eirík, sem hefur leikið með þeim
frá því hljómsveitin var stofn-
uð. Eiríkur er bróðir Jóhanns
G. Jóhannssonar, eins og margir
vita eflaust, en Jóhann hefur
samið öll lög á hljómplötu
hljómsveitarinnar og textana að
auki.
RÍO
Flestir munu kannast við þessa pilta — Halldór Fannar, Ólaf Þórðarson
og Helga Pétursson í Ríó tríóinu. Þeir hafa að undanförnu verið á ferða-
lagi í Þýzkalandi og Danmörku og sungið á ýmsum stöðum. Ríó tríóið
mun birtast á sjónvarpsskerminum af og til í vetur og verða þeir eflaust
aufúsugestir, en þeim til aðstoðar verður Margrét Steinarsdóttir, sem leik-
ur á flautu listavel. Þessi mynd var tekin í sumar við upptöku á söng
þeirra. Undirspilið er fyrst leikið inn á segulband en síðan er sungið yfir
það, og það eru þeir einmitt að gera, þegar myndin er tekin. Við munum
segja nánar frá þessum hýru piltum, áður en langt um líður.
Flautuleikarinn og puntið í tríóinu —
Margrét Steinarsdóttir.
Suptseyjappíma
og
brúðarskópnfr
Á þessari mynd sjáum við Þóri Baldursson,
hinn ágæta liðsmann Savanna tríósins, stjórna
Lúðrasveit Keflavíkur. Við höfðum spurnir af
því fyrir skömmu, að Þórir hefði sungið inn á
tveggja laga plötu í London og væri platan
komin á markaðinn. Þegar við ræddum þessi
mál við Þóri, sagði hann, að hér hefði verið um
að ræða lögin „Surtseyjarríma" og „Brúðar-
skórnir". Þórir syngur bæði lögin á ensku og
heitir hið fyrra „The Little Tin Soldier". Það
var auðvitað Sigurður Þórarinsson, sem gerði
hinn ágæta brag við Surtseyjarrímuna, en í
ensku útgáfunni er hvergi minnzt á Surt. Þór-
ir söng þessi lög á plötu, er hann var staddur
í London ásamt félögum sínum í Savanna tríó-
inu þeirra erinda að syngja inn á nýja hæg-
genga plötu fyrir SG-hljómplötur. Undirleik á
hinni nýju tveggja laga plötu Þóris annast fé-
lagar hans í Savanna tríóinu en að auki kemur
strengjasveit við sögu.
Dumbó og Stelnl
Eins og vænta mátti hefur hljómplata Dumbó
og Steina fengið sérstaklega góðar viðtökur. —
Fyrstu tvö þúsund eintök plötunnar seldust upp
á örfáum dögum og lengi var hún ófáanleg í
Reykjavík, en úr því hefur nú verið bætt. Hljóð-
ritun plötunnar var gerð í London, eins og við
höfum áður sagt frá, en því miður hefur hún
ekki heppnazt sem skyldi, en það stafar með-
fram af mistökum hinna brezku tæknimanna
við pressun og endanlegan frágang. Þó hefur
lagið Angelía tekizt allvel, enda er þetta lang-
vinsælasta lag plötunnar og hefur um langa
hríð verið „langvinsælasta lag vikunnar“, eins
og þau segja í óskalagaþáttunum. Von er á ann-
arri piötu innan tíðar með fjórum lögum og
eftir að hafa heyrt þau erum við ekki í vafa
um, að þau munu verða vinsæl. UF-hljómplöt-
ur, sem gáfu fyrri plötuna út, munu hins vegar
ekki standa að útkomu hinnar síðari. Og þá
er þess að geta, að Dúmbó hefur bætzt nýr
liðsmaður, Brynjar Sigurðsson, sem leikur á
bassa. Brynjar kemur í stað Trausta Finnssonar,
sem hætt hefur spilamennsku enda fluttur suð-
ur til Reykjavíkur þar sem hann er að nema
rafvirkjun.
*