Vikan


Vikan - 11.01.1968, Side 4

Vikan - 11.01.1968, Side 4
LJOTAR NEGLUR. Kæra Vika! Við erum hér tvær vin- konur, sem alltaf erum að fárast yfir nöglunum á okk- ur. Þær eru endemis ljótar. Þær eru röndóttar og vilja klofna og naglaböndin eru svo Ijót. Við biðjum þig því, kæra Vika, að ráð- leggja okkur eitthvað svo að við getum safnað nögl- um. Svo langar okkur að biðja þig að stinga ekki upp í okkur, heldur svara þessu bréfi í fullri alvöru. Með fyrirfram þökk, M. E. og S. E., 14 ára. Okkur er tjáð, að Iangar neglur séu ekki í tízku núna. En hvað um það. í apótekum mun fást efni, er herðir neglurnar. Þið ætt- uð að kaupa það. Einnig væri gott að taka kalktöfl- ur, því að slæmar neglur munu stafa af kalkskorti. MEÐ HJÓNABAND FYRIR AUGUM. Kæra Vika! Ég hef ekki skrifað þér fyrr. Það er nú svo margt sem þér er skrifað og mis- jafnt sem þú ert beðinn um að koma í lag. Nú langar mig til að biðja þig að hjálpa mér, því að ég er í vandræðum. Ég er ókvæntur og mig langar til að komast í bréfasamband við góða stúlku á þrítugsaldri með hjónaband fyrir augum. Ég mun ekki setja fyrir mig, þótl hún eigi eitt barn. Nokkrar giftar konur hafa hvatt mig í þessum efnum. Þær segja, að ég sé svo myndarlegur! Hins veg- ar finnst mér undarlegt, að allar hinar, sem ekki eru enn giftar, skuli ekki taka eftir þessu! En ekki meir um það. Ég er farinn að hæla sjálfum mér, og þá er bezt að hætta þessu pári. Ég vona svo, að þú takir erindi mínu vel og reynir að hjálpa mér, og leyfir þeim sem sinna þessu bón- orði mínu að senda bréf- in sín til Vikunnar. Einn óheppinn og hlédrægur. Það hefur nokkrum sinn- um borið á góma hjá okk- ur í Póstinum, að hér á landi vanti tilfinnanlega hjónbandsmiðlun. Þetta bréf er ein sönnun þess. Við birtum það, en tökum fram um leið, að við höf- um ekki í hyggju að fara að reka hjónabandsmiðlun í stórum stíl. AÐ STELA FRÁ ÆSKUNNI. Kæri Póstur! Ég er reið og rasandi og ekki að ástæðulausu, að mér sjálfri finnst. Æ og eilíflega er verið að tala um, hve vel sé búið að ungu kynslóðinni nú á dögum, og má eflaust rök- styðja það á margan hátt. Húsakynnin eru ólíkt betri og nýrri en áður var. Þau eru orðin svo góð og rúm, að krakkarnir hafa hvert sinn bás sem þeim ber að vera í, svo að þau óhreinki ekki fínu stofuna og trufli helzt ekki foreldrana, a. m. k. ekki á sunnudögum. Þá fá þau líka peninga til að fara í bíó og borða popp- kom sér til hugarhægðar. En mitt í allri þessari dýrð og dásemd er verið að stela frá æskunni. allt frá blautu barnsbeini, og ekki því veigaminnsta, t. d. jól- unum. Hvernig má það vera? Ef við athugum mál- ið betur, sjáum við, að það er búið að gera allt og eyða öllum hughrifum, sem fylgdu aðfangadagskvöldi og jólahaldi, löngu áður en að þessum dögum kemur. Ekkert getur maður gert til skreytingar í heimahús- um, sem kemur börnum á óvart og jafnast á við það, sem þau eru búin að hafa fyrir augunum langan tíma fyrir jól. Hér á ég auðvitað við borgarbörnin. f skólum og á skólaskemmtunum hefur verið sargað á jóla- sálmum. Auðvitað þurfa greyin að kunna þessa sálma, en er ekki hægt að kenna þeim þá á annan hátt? Jafnvel útvarpið heldur jólamessu fyrir börnin viku fyrir jól. Hún hefst á því. að sungið er ,.í Betlehem er barn oss fætt“ og síðan er lesið sjálft jólaguðspjallið! Ég hélt í sakleysi mínu, að það heyrði jólunum einum til. 4 VIKAN 2. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.