Vikan


Vikan - 11.01.1968, Qupperneq 10

Vikan - 11.01.1968, Qupperneq 10
□□ Loftárásin á Dresden 13 -14. febrúar 1945 - Síðari hluti. DAGUR ÞORLEIFSSON TÖK SAMAN. Ojsinn í eldbylnum var slíkur að liann reif risatré upp með rótum eða Jcubbaði þau í tvennt. Tiann feylcti í háaloft fólJci, braJci og farartæJcjum og bar þetta allt inn í bálhvirfil- inn, þar sem það varð að dufti og ösJcu á fáeinum seJcúnd- um. Eldurinn myndaði eitraðar gufur, sem smugu nvður í yfirfyllt loftvarnabyrgin og Jcæfðu þar hvert mannsbarn . . . . Valkestir sem þessi voru oteljandi á torgum hinnar eyddu borgar fyrstu vik- urnar eftir árásina. Yfir hrækösina gnæfir stytta af Germaníu — ímynd Þýzka- lands. Táknræn mynd fyrir örlög Þriðja Ríkisins. Klassísk fegurð andspænis hryllingi eyðileggingar og dauða. Styttan — ein hinna fáu, sem stóðu í borginni eftir árásina — sýnist virða fyrir sér rústirnar í máttvana harmi. DAGUR REIDI DAGUR RRÆDI Ákveðið var að leggja til at- lögu við Dresden að kvöldi þrett- ánda febrúar 1945. Mikillar ná- kvæmni þurfti við til að ákveða árásartímann, því að um þetta leyti var þrútið loft yfir mest- um hluta Þýzkalands. Þetta kvöld reiknaði veðurstofa brezka flughersins þó með að bjart yrði yfir Dresden og nágrenni fram yfir miðnætti, og þá stund varð að nota. Árásin skyldi gerð í þremur atlögum, en slíkt fyrir- komulag töldu brezku flugfor- ingjarnir hafa margar viðkunn- anlegar hliðar. Eftir fyrstu at- löguna, álitu þeir, myndu þýzku orrustuflugvélarnar, sem sendar yrðu upp til varnar borginni, leita á ný til flugvalla sinna, þar eð Þjóðverjar myndu þá telja hættuna um garð gengna að sinni; yrði því fátt um varnir þegar næsta atlaga yrði gerð. Þá yrði líka brunavarnarlið borgar- innar komið í fullan gang við að slökkva eldana sem gosið hefðu upp í fyrstu atlögunni. Önnur atlagan hlyti að koma yf- ir það eins og þruma úr heið- skíru lofti og tortíma því; fengju svo bálin að loga óhindrað það- an af. Þessi djöfuliegi nákvæmi útreikningur stóð í alla staði heima. Ákveðið var að Bretar, Kan- adamenn og Ástralíumenn gerðu fyrstu atlögurnar tvær, en Bandaríkjamenn þá þriðju. Klukkan hálfsex til sex hófu tvö hundruð fjörutíu og fjórar brezkar Lancaster-flugvélar sig upp af völlum sínum í Miðlönd- um Englands. Hér var kominn af stað floti sá, er fyrstur skyldi bombalda höfuðborg Ágústs sterka. Á undan þeim höfðu far- ið nokkrar flugvélar af Moskító- 10 VIKAN 2-tbl

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.