Vikan - 11.01.1968, Page 13
VIÐ BSRTUM FYRIR SKEMMSTU MYNDIR AF ROLL-
INGUNUM, SEM TEKNAR VORU Á FRUMBERNSKU-
ÁRUM ÞEIRRA. HÉR BIRTUM VIÐ SAMSKONAR
MYNDSR AF LIÐSMÖNNUM ANNARRAR VINSÆLLAR
HLJÖMSVEITAR - THE MONKEES.
Davy Jones
IVIicky Dolenz
Mike NesmSth
Peter Tork
Skömmu eftir að hin nýja tveggja laga plata Bítlanna með lag-
inu „Hello, Goodbye" kom á markaðinn í Bretlandi, sendu þeir
frá sér all merkilega bók, sem hafði að geyma tvær hljómplötur
og 32 síður af litmyndum og teikningum. Á plötum þessum eru
lög úr kvikmyndinni „Magical Mystery Tour“, sem Bítlarnir hafa
nýlega lokið við að leika í, cn þessi kvikmynd mun ekki verði
sýnd í kvikmyndahúsum heldur mun hún eingöngu vera gerð
fyrir sjónvarp. Plöturnar eru gefnar út í mono og stereo. Meðal
laga á plötunni er eitt, sem nefnist „Flying“_ og er það eftir Ge-
orge Harrison. Þetta lag er eingöngu leikið. — Ljósmyndirnar í
Bítlahókinni eru úr kvikmyndinni „Magical Mystery Tour“, en
einnig eru teikningar i litum, sem skýra þráð myndarinnar. f
bókinni miðri er aukablaðsíða, þar sem er að finna texta við öll
lögin á báðum plötunum. Bítlunum var mikið í mun að bókin
yrði ekki dýr og verð hennar í Bretlandi er nálægt einu pundi
eða um 130 ísl. krónur.
Þá er þess að geta, að gcrð hefur verið kvikmynd, sem nefnist
„Yellow Submarine", og er liún af fullri sýningarlengd kvikmynda.
Lennon og McCartney hafa samið nokkur lög sérstaklcga fyrir
þessa mynd, cn Bítlarnir munu að sjálfsögðu ckki leika í henni,
þar sem hér er um teiknimynd að ræða!
Meðfylgjandi mynd af Bítlunum var tekin, er þeir sóttu sálu-
hjálparfund með jóganum Maharishi. Bítlarnir liafa sjálfir iátið
svo ummælt, að kynni þeirra af þessu vísa öldurmcnni hafi gjör-
breytt afstöðu þeirra til tilverunnar. Þeir eru líka tii, sem ætla,
að boðskapur þessa stórspekings muni koma í staðinn fyrir trú-
arbrögð í þeirri mynd, sem við þekkjum þau, einkum og sér í
lagi hjá ungu fólki, sem er í leit að sönnum tilgangi í þessari
skrýtnu veröld, sem er svo erfitt að henda reiður á!
Fyrir nokkrum árum kom Maharishi liingaö til lands og hélt
fyrirlestur í Stjörnubíói. Einnig bauð hann upp á einkatíma f
fræðum sínum fyrir þá scm nema vildu — að Hótel Sögu, þar
sem hann bjó. Ekki vitum við samt, hve margir íslendingar hafa
snúið frá villu síns vegar eftir að hafa hlýtt á orð spámannsins.
a. tw. VIKAN 13