Vikan


Vikan - 11.01.1968, Síða 15

Vikan - 11.01.1968, Síða 15
gert sér upp glettnislega hörku og strítt honum þýðlega fyrir að taka þetta svona nærri sér. . . . — Nei. Hún hætti að hugsa og gerði það sem andinn inn gaf. Hún opnaði krepptan hnefa hans blíðlega en ókveðið og lagði lófann að sáru kinninni. — Willie . . . Leggðu ekki of mikið að þér og hafðu ekki áhyggj- ur, hvíslaði hún, — slappaðu bara af og hlustaðu á mig. Það er allt og sumt. Hún sá eitthvað í augum hans. Ef til vi11 merki um að hann heyrði og skildi. — Sjáðu nú til. Þetta er búið núna, Willie, sagði hún blíðlega. — Eg var ekki hérna í raun og veru þennan tima. Þú veizt það. Hún lagði lófa hans að gagn- auga sér eitt andartak. — Það snerti mig ekki hér. Ég er alveg eins og ég var. Hún talaði mjög hægt og greini- lega, hikaði milli setninganna til að sljór hugur hans næði að greina orð hennar. — Willie, hugsaðu um það sem ég er að segja við þig . Við höfum aldrei maldað í móinn, þeg- ar við höfuð ráðið okkur í erfiða ferð. — Við réðum okkur I þessa ferð, Willie vinur. — Það sem gerzt hefur var allt innifalið í miðanum. Þú hefur feng- ið verri hlutann, og ég hefði átt að sjá það fyrir. Ég sé það núna. — Minn hluti var svosem ekki skemmtilegur . . . það vottaði fyrir þurrlegri kímni í augum hennar. En þetta voru ekki örlög verri en dauð- inn. Hún þrýsti hönd hans ofurlítið fast að kinn sér. — Hlustaðu, Willie. Þú veizt að ég lýg aldrei að þér. Ég var þúsund mílur í burtu. — Þetta var ekkert í líkingu við það sem kom fyrir mig, þegar ég var tólf ára. Ég var hrædd þá, — þangað til leið yfir mig. — Og jafnvel það er búið núna. Ég útilokaði það fyrir langa löngu. Það kom fyrir einhverja aðra. Eins þetta. — Ég skipulagði þetta sjálf, Will- ie vinur. Og þessvegna var það svo miklu auðveldara. Nú er það búið. Afstaðið. — Við verðum að hugsa um næsta hlutann og það verður erfið- ur tími fyrir mig, því að þá er það ég, sem hugsa og hef áhyggjur af þér. Hún þagnaði og horfði lengi á hann. Svo drúpti hún höfði og hvíldi ennið á bringu hans. Hún talaði ekki með bænarhre.im. Hún var aðeins svolítið döpur, svolftið þreytt, þegar hún sagði: — Komdu aftur til mín núna, Willie. Við höf- um gengið langa, langa leið sam- an. Ég vil ekki þurfa að ganga ein núna, aftur. Það var ekki meira að segja. Hún lá kyrr, þar sem hún var komin, og beið hljóð án þess að hugsa. Það liðu mínútur, áður hún gerði sér Ijóst að andardráttur hans var orðinn dýpri og vöðvarnir ekki eins hræðilega spenntir. Henni létti og hún beið enn án þess að hreyfa sig. Hljóðið þegar hann andaði frá sér lengi og hægt var mjög hávært í eyrum hennar. Hann losaði höndina af kinn henn- ar og lagði hana um axlirnar á henni og hélt fast. Hann ræskti sig og gerði þrjár tilraunir til að tala, áður en röddin hlýddi honum, lágt, rámt hvískur. — Vissir þú Vissir þú, Prin- sessa . . . að aðeins um það bil einn kuðungur af hverjum fjórum milljónum er örvhentur? Spennan hvarf úr líkama hennar. Hún vissi að hún hafði sigrað. — Örvhentur? Nei, ég vissi það ekki. Ég vissi ekki einu sinni að kuðungar hefðu hendur, Willie. — Ekki hendur, Prinsessa. Kuð- ungsskelin er undin til hægri. Þú getur umgengizt kuðunga alla þína ævi og það eru mestar líkur til að þú sæir aldrei skel sem er undin til vinstri. — Aðeins ein af hverjum fjórum milljónum? — Rétt er nú það. Hún fann vöðva hans slakna með hveru andartakinu sem leið. — Þetta er furðulegt, Willie. — Ég hélt þér þætti gaman að vita það. — Já. Það hefur ekki svo lítið að segja. Hana langaði til að hlæja, en þess í stað tók líkami hennar að nötra og hún grét hljóðlega. Hann hélt henni í röska mínútu, þar til ekkinn leið hjá. Þá lyfti hún höfð- inu og leit á hann miður sín. — Ég hef aldrei gert þetta áður, Willie. . . . Ekki f miðju starfi . . . stundum á eftir. — Ég veit það. Það gerði samt ekkert til. Það hjálpaði þér að slappa af. Og störfin eru eins marg- vísleg og þau eru mörg. — Já. Hún reis á fætur og settist á aðra armhviluna á hægindastólnum, virti hann fyrir sér með óumræðilegri ánægju. Willie sveiflaði fótunum fram á gólfið og stóð upp. — Við skulum nú sameinast í sálmi númer fimmtíu og fjögur: — Hví skyldi ég óttast á mæðudög- um.. . . ? Hann hristi höfuðið með fyrir- litningu. — Fyrirgefðu Marlon Brando atriðið, Prinsessa. — Fyrirgefðu að ég skældi, Will- ie vinur. Hann hristi höfuðið snöggt. — Nei, það var allt í lagi. Hann tók litlu töskuna sína upp af gólfinu, tíndi upp úr henni hand- klæðið og snyrtiskjóðuna, síðan tók hann að raða á rúmið, því sem hann hafði sett þar undir — beltið hennar og hulstrið með Colt. 32 byssunni, svartan brjóstahaldara og undirbuxur; kongóvopnið, varalits- hulstrið hennar með táragasbotnin- um; lítið hylki með deyfilyfjum í bómullarhnoðrum; sex litlar niður- suðudósir með járnskömmtum; og lítinn, flatan trékassa, sem hún hafði ekki séð áður. Handtök hans voru hnitmiðuð núna og hann talaði lágt meðan hann vann. — Ég áleit að okkur myndi duga þetta til að byrja með, Prinesssa. Ekkert hefur gerzt til að koma f veg fyrir að við gætum leikið leik- inn eins og við ætluðum. Það eru bara tveir varðmenn við Dúfuna og hjá skotfærageymslunni. Ég hef lát- ið dótið þitt undir steininn, sem við völdum niður við ána, — tvær skyrt- ur, síðar buxur, hermannastfgvélin, peysu, teppi, sína ögnina af hverju, allt í venjulegum bakpoka. Hann settist á rúmið og dró upp sígarettur. Þegar hann hélt eldin- um til að kveikja í fyrir henni var höndin algjörlega stöðug. — Verst að þú skulir ekki geta flogið Dúfunni út, sagði hann. — En þú hefur bara flogið um tólf klukkustundir ein í venjulegum flugdreka, eða því sem næst og það eru tíu möguleikar á móti ein- um að þú hafir það. Ég held að þú sért jafnvel betur sett á fæti. Hann leit á hana, en þegar hún svaraði ekki hélt hann áfram: — Jæja, Jæja, það verður skipt um mann þar klukkan þrjú. Þá verðum við komin þangað upp eftir og bíð- um eftir þeim. Ég opnaði eina af innsigluðu dyrunum, sem liggja hingað inn. Þá sem liggur í gegnum tæknideildina, svo við getum kom- ið okkur þá leiðina út, vandræða- laust. Hann leit á glóðina í sfgarettunni sinni og hélt áfram í lágum hljóð- um: — Það er mín deild sem er á verði í nótt og byrjar klukkan níu, svo það er ég sem ákveð vaktirn- ar og hverjir eru á verði. Þeir tveir sem taka við klukkan þrjú eru Gam- arra og Zechi. Hann hélt hratt áfram áður en hún gæti sagt nokkuð og horfði enn á glóðina. — Eftir að við höfuð séð fyrir þeim komum við aftur hingað. Þú slærð mig flatan og bindur mig. Þú getur látið líta svo út. Við lát- um líta svo út að þú hafir sparkað mér upp að vegg, síðan heppnazt að skera af þér böndin með einum hnífnum mínum. Síðan ferð þú í hina áttina, ekki framhjá varð- mönnunum og stíflunni, heldur suð- ur eftir litla dalnum. Þeir senda hálfan herinn að leita að þér í norður. Karz verður ekkert yfir sig hrifinn af mér, en hann hefur ekki efni á að tapa fleiri fyrirliðum, svo ég býst við að ég hafi töluverða möguleika á að halda lífi. Hann hugsaði sig um andartak, svo leit hann á hana og sagði: — Er þetta ekki rétt? — Alveg rétt, Willie. Allt í einu, þrátt fyrir bólgnar varirnar birti yf- ir andliti hennar af prakkaralegu brosi. — Nema hvað við gerum þetta ekki svona núna. — Ekki? Honum hnykkti við í svip, en leið betur þegar hún hrisfi höfuðið. — Nei, þetta verður miklu betra. Rödd hennar var hlý og áköf. Hún lyfti pilsfaldinum og fór að fást við innábrotið. — Allt hefur breytzt, Willie vinur. Við erum ekki hlekkj- uð lengur. Að lokum er leikurinn heiðarlegur og jafn. Hún dró fram þessa tvo þum- lunga af bendli sem einu sinni hafði verið hvítur og rétti honum. A bendilinn var skrifað með rauðu nafnið Lucille Brouet. Willie leit upp og starði. — Þetta er eitt af fatamerkjunum hennar, sagði hann rámur. — Svona er saumað f öll fötin hennar, sam- kvæmt reglum skólans. Hvar fannstu þetta, Prinsessa? — Það hlýtur að hafa losnað úr einhverju sem hún hefur verið í, Willie. Hún hallaði sér áfram og lagði hönd sína yfir hans. — Ég fann þetta hér í þessu herbergi. Það var í horninu, bak við dívaninn. Garvin sat grafkyrr. Augun tóm meðan hugurinn þaut á eftir hugs- unum hennar. — Við hefðum getað gert okkur það í hugarlund, sagði hann lágt. — Auðvitað er hún hér, Prinsessa. Karz gefur alltaf viðvörun ef ein- hver verður Oheilbrigður. Ef að því kæmi að drepa Lucille ætlaði hann að gera það hér og gera veður úr því, svo að allir gætu séð að hann stæði ævinlega við orð sín. — Og samtöl þín við hana í gegnum senditækin, Willie. — Þau komu ekki langt að. Hún hlýtur að hafa talað í gegnum talstöð hér, aðeins nokkur hundruð fet frá tal- stöðvarherberginu. Hann kinkaði kolli annars hugar og reis á fætur. Það var ráðgáta í augum hans. — Prinsessa.... Hversvegna sagðirðu þetta ekki áð- ur, þegar ég Iftillækkaði mig með þessu dramatíska atriði? — Þú varðst að losna undan því af eigin rammleik, Willie. í þeirri trú að við yrðum að gera þetta á þann hátf sem við höfðum ætlað. Ég vildi ekki færa þér hraðsaum- aða lausn til að losa þig undan farginu. Hún sá í augum hans að hann skildi hana, var henni sammála og þakklátur. Hann gekk yfir herberg- ið og stóð þar með hendur á mjöðm- um, eins og maður sem var að horfa á undurfagurt sólsetur og dró andann djúpt og ánægjulega. Hægt og gætilega lagði hann flata lóf- ana að þykkum leirsteinaveggnum, undir skærlitu chiffonhenginu, og starði á hana, lyfti annarri auga- brúninni í brosandi spurn. — Ég gæti kollvelt þessum and- skotans kastala, Prinsessa, sagði hann. — A ég að sýna þér? Hún hló. — Ég trúi þér. En láttu hann standa um hríð. Við eigum töluvert ógert. — Þá það. Hann kraup og hellti vatni í járnskálina á gólfinu. Með- an hann þerrði svitann af andlitinu og þurrkaði sér fast á handklæð- inu, sem hann hafði haft með sér, Framhald á bls. 29. 2. tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.