Vikan


Vikan - 11.01.1968, Qupperneq 34

Vikan - 11.01.1968, Qupperneq 34
I brezkir, kanadískir og ástralsk- ir flugmenn. Þeir leystu verk sitt af hendi af dugnaði og samvizku- semi, í samræmi við þá hern- aðarreglu, sem stríðsglæpamenn hafa svo oft vitnað í sér til af- sökunar: skipun er skipun, Be- fehl ist Befehl. En það verður að segja þeim til lofs að mörgum þeirra var þungt í skapi þessa nótt, þótt sjálfir væru þeir í minni hættu en í flestum árás- um áður. Sumir höfðu komið til Dresdenar fyrir stríðið og þótti vænt um borgina og öðrum var ljós sú staðreynd, sem raunar gat ekki heldur hafa farið fram hjá yfirmönnum þeirra, að hern- aðarlegt mikilvægi skotmarksins var í mixmsta lagi. Þrátt fyrir þá grimmd, sem flestir voru orðnir gagnteknir af á þessu stigi ófriðarins (til dæmis um hana má geta þess, að brezkir flug- menn höfðu fyrir vana að taka með sér tómar flöskur og annað skran til að henda út yfir þýzk- um borgum, sem flogið var yfir í leið að skotmarkinu), þá óaði mörgum gallhörðum vígamanni við því að varpa eldi og tundri yfir varnarlausa og þrautupp- gefna flóttamenn. Fyrirliðar þeirra urðu að segja þeim alls- kyns tröllasögur til að stæla upp í þeim vígamóðinn. Liðsmöxm- um eixmErr flugsveitarirmar var sagt, að aðalbækistöðvar mikils hluta þýzka hersins væru í borg- inni, öðrum var tahn trú um að í Dresden geymdu Þjóðverjar mikið magn vopna og birgða, enn öðrum að borgin væri óvin- unum lífsnauðsynleg járnbrauta- miðstöð og kanadísku flugliðun- um var gefið til kynna að í hinni saxnesku höfuðborg væri stór- felldur iðnaður, hernaðarlega mikilvægur. Fleira varð til að auka flug- mönnunum móð. Þegar þeir komu það nærri skotmarkinu að þeir eygðu eldana, sem fyrsti árásarflotinn hafði kveikt — þeir sáust í fimmtíu mílna fjarlægð — hljóp sumum þeirra heldur betur kapp í kinn. Verulegur ríg- ur var sem sé milli hinna ýmsu sveita í flugher bandamanna, og nú þegar liðsmerm annars flota sáu verksummerkin eftir hinn fyrsta, hétu þeir sjálfum sér og hver öðrum að kynda slíka elda, að í samanburðinum yrðu þau bál, sem þegar loguðu í Dresden, lítið stórfenglegri en varðeldar hjarðmanna. Og þeir stóðu við heit sín. Fyrsti floti hafði einkum flutt þungar bombur með gífurlegum sprengikrafti; sumar allt að fjög- ur þúsund tonnum. Annar floti hafði einnig talsvert af þannig sprengjum. Þær sprengdu hvert hús í heilum hverfum sundur og saman, og þegar svo eld- sprengjurnar komu niður á eftir, átti gneistaflugið frá þeim greið- an gang ixm um mölbrotna glugga og sprungna veggi, þar sem það óðara varð að báli í skraufþurri timburklæðningu, veggfóðri, teppum og gluggatjöldum. Áður en varði var öll miðborg Dres- denar horfin í hvirfilbyl úr eldi. Eldrokið var þegar orðið gamal- kvmnugt fyrirbrigði, en árásin á Dresden var sú fyrsta, sem skipulögð var beinlínis með það fyrir augum að leysa slíkan surt- arloga úr læðingi. Glóandi tung- ur þessa jarðneska vítisbáls risu í feiknahæð og voru sýnilegar í tvö hundruð mílna fjarlægð. Um varnir af hálfu Þjóðverja varð bókstaflega ekkert. Loft- varnir borgarinnar, sem aldrei höfðu verið merkilegar, voru fullkomlega úr sögunni eftir fyrstu atlöguna. Meira að segja voru loftvarnamerki ekki gefin nema í nokkrum hverfum. í fyrstu atlögunni höfðu rafafls- stöðvar borgarinnar eyðilagzt, svo að loftvarnaflauturnar voru óvirkar. Önnur atlagan kom því flestum borgarbúum algerlega á óvart. Árásarflugmennirnir urðu hissa er þeir sáu að á öllum göt- um úthverfanna var krökkt af fólki og farartækjum, er stefndu inn að miðborginni. Þetta var slökkvilið og hjálparsveitir úr Dresden sjálfri og nærliggjandi borgum. Sir Arthur Harris tókst því ekki einungis að jafna Dres- den við jörðu, heldur lamaði hann og loftvarnir margra arm- arra saxneskra borga með því að eyða loftvarnarliði þeirra um leið. Flugsveitinni í Klotzsche hefði verið í lófa lagið að ráðast gegn óvinunum, en í annað sinn stóð á flugtaksleyfi. í fyrra skiptið hafði það fengizt of seint, en í þetta skipti fékkst það alls ekki. Ein af hinum þungu sprengjum Bretanna hafði rammað á síma- línu til Berlínar, svo að ógern- ingur reyndist að ná í hlutað- eigandi yfirmenn. í annað sirrn þessa nótt tvístigu því kapparnir úr Luftwaffe úti á Klotzscheflug- velli og störðu ráðþrota á ragna- rök borgarinnar, sem þeir hefðu átt að verja. Og þótt svo að log- ar heljarbálsins lékju „við him- in sjálfan," þá þorði yfirmaður flugsveitarinnar ekki fyrir sitt litla líf að takast á hendur þá ábyrgð að senda menn sína til gagnárásar. Skýrslur og dagbækur flug- mannanna, sem brenndu Dres- den, eru merkilegur vitnisburð- ur um hugarástand þeirra sjálfra og hvernig hryllingurinn kom þeim fyrir sjónir. Ástralskur flugforingi skrifaði hjá sér við sjálfan hita atlögunnar: „Er beint yfir skotmarkinu, borgin svo að segja öll í ljósum loga. Engin loftvarnaskothríð." Siglingafræðingur eins af fyrir- liðum flotans rifjaði upp síðar: „Ég hef aldrei séð annað eins eldrok; við vorum komnir niður í sjö þúsund feta hæð og reyk- urirm að neðan lukti þegar um okkur. Ég man að ég sagði við sjálfan mig að við værum trú- lega fyrirferðarmesti tarfur, sem nokkurn tíma hefði komizt inn í þessa postulínsverzlun (Dres- den var fræg fyrir postulín sitt, samanber söguna um Ágúst sterka og kínversku kerin).“ „í fyrsta sinni kenndi ég nú í brjósti um Þjóðverja", er haft eftir sprengjumiðara einum. „Birtan af eldinum var slík,“ ritaði flug- maður nokkur í dagbók sína, „að við sáum eigin flugvélar allt um kring.“ Annar loftsiglingafræð- ingur skrifaði: „Ég trúði naumast eigin augum. Hver gata í allri Dresden kom mér fyrir sjónir sem dökk lína milli langelda“. Tilfinningum fólksins, sem á þeirri sömu stund naut ylsins af bálför borgar sinnar, er líklega öllu erfiðara að lýsa. En ekki er ólíklegt að einhverjum í þess hópi hafi flogið í hug að nú væru loks upp rurmin þau ragnarök, sem syndugum heimi höfðu oft- lega verið spáð, samanber orð Tómasar frá Celano, sem uppi var meðan Sturlungar og Hauk- dælir hentu grjóti hverjir í aðra uppi á íslandi: Dagur reiði, dagur bræði. drekkir jörð með logaflæði, votta heilög Völufræði. Þegar miðborgin var orðin eitt bál, beindu fyrirhðar flugsveit- anna þeim til ytri borgarhluta, svo að áður en lauk mátti heita að Dresden yrði öll eyðingunni að bráð. Flugmaður Lancasters þess, er síðastur lagði af stað heimleiðis, segir svo frá: „Eldhafið undir okkur náði yf- ir á að gizka fjörutíu fermílna svæði. Hitirm frá þessum hrylli- lega risaofni var slíkur, að ég fann greinilega til hans, þar sem ég sat í stjórnklefanum. Himirni- inn var alþakinn hvítum og skarlatsrauðum leiftrum, og inni í flugvélixmi var rauð birta eins og frá sólarlagi um haust. Við vorum svo frá okkur numdir af ógnarloga þessum að góð stund leið áður en við snerum heim- leiðis, yfirkomnir af tilhugsun- inni um þær skelfingar, sem yfir borgarbúa hlutu að ganga á þess- ari stundu. Við sáum bjarmann af eldrokinu í hálftíma eftir brottförina.“ Axmar brezkur flugmaður, sem leit um öxl í hundrað og fimmtíu mílna fjar- lægð frá Dresden og sá þá að bjarminn yfir borginni var skær sem aldrei fyrr, hripaði í dag- bók sína: „Þetta var í fyrsta sinn sem Konunglegi Flugherinn réð- izt á Dresden. Ég á ekki von á að við þurfum að gera það oft- ar.“ Þetta mátti víst kallast spak- lega mælt. Tjón bandamanna í leiðangr- inum var smávægilegt sem fyrr. Fjórar sprengjuflugvélar týnd- ust, en af þeim skutu þýzkar orrustuvélar aðeins niður eina og ekki yfir Dresden, heldur á heim- leiðinni nálægt Stuttgart. Önnur lenti í árekstri og um örlög tveggja er ókunnugt. En hafi þeir Dresdenarbúar, er enn voru lífs, talið að ósköpin væru liðin hjá með heimflugi annars flugflotans, þá skjátlað- ist þeim einnig að þessu sinni. Nú var röðin komin að banda- ríska flughernum að reka smiðs- höggið á verkið. Árásarfloti þeirra, sem nú var. að hefja sig til flugs, var meiri en hinir báð- ir til samans. í honum voru hvorki meira né minna en eitt þúsund þrjú hundruð og fimmtíu 34 VTKAN 2- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.