Vikan - 11.01.1968, Síða 45
Hinn nýi VW
Þetta gerir hann nýjan
Hann er öruggasti V.W. sem
við höfum nokkru sinni fram-
leitt. Hann er búinn öryggis-
stýrisós og öryggisstýrishjóli,
— aðlljósum með lóðréttum
Ijósglerjum, tveggja hraða
rúðuþurrkum, haerri og sterk-
ari fram- og afturstuðurum,
öryggisspeglum, baeði að
utan og innan.
Athyglisverðasta nýjungin að innan er loftræsti-
kerfið. Með þar til gerðum snerlum, fóið þér
ferskt loft inn i bílinn að vild, öðru hvoru
megin, eða beggja megin. Enginn hóvaði eða
óþaegilegur dragsúgur.
Einnig þetta, gerir hann öruggari en nokkru
sinni fyrr, — nefnilega tvöfalt bremsukerfi. Ef
annaðhvort kerfanna bilar, þó virkar hitt og
þér getið bremsað. (Það er reyndar ókaflega
óliklegt að þetta geti skeð).
Nýir hurðarhúnar að utan, með
læsi-gikk innanvert í húninum,
Að innan eru hurðarhúnar felld-
ir inn í hurðaklaeðningu. Bóðar
hurðir eru nú opnanlegar með
lykli að utanverðu.
Þegar þér takið benzín, þurfið
þér ekki lengur að opna farang-
ursgeymsluna. Nú er benzinófyll-
ingarstúturinn í inngreyptu plóssi
i hægri hvalbak með smelliloki
yfir. Hið nýja 12 volta rafkerfi
veitir öruggari vélar-ræsingu ó
hinum köldustu vetrarmorgnum.
Og þetta gerir hann að hinutn
sígilda Volkswagen
Hann er hagkvæmur bíll og seldur við hagstæðu
verði. Þrótt fyrir 34 endurbætur, er verðið óbreytt
fró 1967 órgerðu m.
Hann er enn með loftkælda vél, sem er afturí
bílnum. Hún er óhóð kulda og hita. Vélin er
staðsett yfir drifhjólunum og veitir betri spyrnu
við erfið akstursskilyrði og tryggir lógan snún-
ingshraða og meiri vélarendingu.
Hvert hjól hefur sjólfstæða snerilfjöðrun, þannig
að ef eitt hjólanna fer í ójöfnu fjaðrar það eitt,
og hefur engin óhrif á hjólið, sem er á móti því.
V. W. er með slétta og fullkomlega þétta botn-
plötu, — en hún ver hina ýmsu mikilvægu hluti,
sem í mörgum öðrum bilum eru óvarðir, svo
sem kapla, festingar og víra.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
2. tbi. VIKAN 45