Vikan


Vikan - 11.01.1968, Side 46

Vikan - 11.01.1968, Side 46
VIKAN OG HEIMIÚÐ ritstjori: Gucfri'dur Gisladóttir. Gengið i búðir VÖKVAGJAFI ÞaÖ er lílclega mikilvœgara en flesta hefur lúngaö til grunaö, aö hafa rétt vökvastig í andrúmsloftinu innanhúss. Þeir, sem hafa Viökvæmar slímhimnur í hálsi og nefi, finna oft til mikilla óþæginda, þegar loftiö veröur of þurrt. Þar aö auki er sagt, aö mjög þurrt loft fari illa meö viöarhúsgögn og jafnvel ýmis tauefni, aö ekki sé talaö um blóm. Á sumrin gætir þurrksins venjulega lítiö, þar sem glugg- ar eru þá almennt opnir, en þegar mjög lcalt er á vetrum, dugar þaö elck'i einu sinni, því aö frostiö bindur vökvann í loftinu. Of þurrt loft hefur einnig áfhrif á rafmagniö i andrúms- loftinu, og hefur undanfariö veriö talaö og ritaö töluvert um áhrif þess á líkams- og sál- arástand manneskjunnar. Gömlu ofnarnir og opin eldstæöi slcöpuöu miklu 'OiAi j ivu/i ivi i uy betri loftræst- * ■ingu en miöstöövarofnarnir og geislahitunin. Þegar svo öll gólf eru þar aö auki þakin tepp- um, fer ástandiö aö veröa alvarlegt, og sagt er aö nútíma híbýli fullnægi venjulega ekki f>eim kröfum, sem gera ætti um vökvainni- hald andrúmslofts- ins, eöa þau 1>5— 70% vökva, sem talin eru nauösyn- legt heilsu manns- ins. Nútíma völcva- gjafar eru raf- magnsáhöld og sjá fyrir réttum hlut- föllum í þessum efnum, séu þeir stilltir rétt, en taka veröur tillit til herbergjastærö- ar, hitastigs og annars í því sam- bandi. Þeir eru, eins og öll slík tæki, misgóöir. Sumir valda ó- þœgilegum hávaöa, aörir hafa ekkert sigti til aö hindra aö kalklag úr vatn- inu setjist á hús- gögnin (ætti varla uö vera jafnmikil' hætta á því hér ogj víöa erlendis) sumir eyöa óþarf- lega miklum raf- straumi o.s.frv. Allt þetta þarf aö athuga vel áöur en slíkur hlutur er keyptur. Leiöar- vísar fylgja oft og á þeim má sjá hvaöa eiginleilca tœleiö hefur, en venjulega eru þeir á erlendum mál- Matur Kennedy fjölskyldunnar MATUR KENNEDYFJÖLSKYLDUNNAR Eins og ég sagöi í síöasta blaöi er alls Jconar skelfiskur eftirlœtisfœöi Kennedy- fjölskyldunnar. Slíkt er nokkuö dýrt hér í búÖum, t.d. kostar ostrudós hjá Silla og Válda i Austurstrœti kr. 36,65, en innihald- iö er ca 1 amerískur mœlibolli. Clams eöa skelfiskur i álilca stórum dósum kostar rúmar 46 krónur, kræklingur tœpar 50 krónur, Humar i skel sá ég þar á ca 250 krónur. Humar i skel sá ég þar á ca. 250 sjáanlega i ópilluöum rœkjum, sem kost- uöu 65 krónur kilóiö. Einhver heföi nú kannski samt gaman af aö reyna uppskrift- ir þessa þekkta fólks, þótt ekki vœri nema einu sinni til hátiöabrigöa. i 1 ostrur cayenne- Ostrujafningur. 5 tsk. smjör, 1 peli mjólk, Vz 1 rjómi, og vökvinn af þeim, salt, hvítur pipar pipar, söxuð persilja eða paprika. Þetta er borið fram í litlum skálum sem eru hitaðar. í hverja þeirra er sett ein teskeið af smjöri, og þessu haldið heitu þar til á að bera þetta fram. Hitið mjólk, rjóma, ostruvökvann að suðumarki, en látið ekki suðuna koma upp, bætið ostrunum í og hitið aftur á sama hátt. Kryddið eftir smekk og hellið í skálarnar. Smurt, ristað brauð er gott með. Skammtur handa fjórum til sex. Chowder er nafn á súpu, sem þó er með það miklu í af öðru, eða réttara sagt einhvers konar fiski, að það er varla súpa lengur í þeirri merk- ingu. Það er ekki borið fram sem súpa á undan mat, heldur er hún máltíðin í sjálfri sér. Sagt er að nafnið sé komið af franska nafninu chau- diére, sem er stór, franskur pottketill.. Allir í Kennedy-fjölskyldunni búa til chowder eins og ættmóðirin, móðir forsetans sáluga, nema Jackie Kennedy, hún heíur sína eigin uppskrift og eru þær báðar hér á eftir. Nafnið á súpu móðurinnar The Rose Kennedy New England Clam Chowder. 2 dósir stórir skelfiskar (clams) eða 3 dósir af minced clams (innihald hverrar dósar 10y2 únsa), 225 gr sneitt, magurt, salt flesk eða bacon, 1 bolli saxaður laukur, 3 bollar flysjaðar kartöflur skorn- ar í sneiðar (hráar), 1 tsk. salt, y4 tsk. hvítur pipar, 4 bollar skelfisksoð (eða vökvinn úr dós- inni), 2 bollar þunnur rjómi, 2 bollar mjólk, 2 matsk. smjör, paprika. Séu nýir skelfiskar notaðir (sem varla kemur til greina hér) eru þeir soðnir þar til þeir opnast, síaðir og soðið geymt, annars eru dósaskelfisk- arnir síaðir og vökvinn af þeim geymdur. Flesk- ið eða baconið steikt, þar til það er gulbrúnt og síðan tekið úr feitinni, en y4 bolli af henni hafð- ur á pönnunni og laukurinn látinn malla þar í 5 mín., ekki steikjast. Þá er kartöflunum, pip- arnum og skelfiskvökvanum bætt í, og sé vökv- inn ekki 4 bollar, er vatni bætt í því sem á vant- ar. Látið malla þar til kartöflurnar eru soðnar. Þá er skelfiskinum bætt í ásamt rjóma, mjólk og smjöri. Hitið aftur, en látið ekki sjóða. Stráið harðsteiktu bacon og papriku ofan á. Skammtur handa fjórum til sex. — Hin súpan heitir: pr-vTT'vzznzrmvtc- -yKirt- * í * * * Jackie Kennedy's Clam Chowder. 125 gr sneitt, salt flesk eða 4 sneiðar bacon i bitum, 1 stór laukur í sneiðum, bolli grænn skornar gulrætur, \í b. skornar gulrófur eða næp- ur, 3 b. skornar, flysjaðar kartöflur, 3 bollar vatn, 1 tsk. salt, 1 skelfiskur og vökvinn af honum, J/B tsk. timian, 3 boliar niðursoðnir tómatar, salt og pipar, 2 matsk. söxuð persilja. Steikið án þess að brúna baconið eða fleskið, takið upp úr og haldið eftir 1 matsk. af feitinni, bætið lauknum í ásamt piparnum og selleríinu og steikið þar til það er ljósbrúnt. Bætið þá gul- rótunum í, rófunni, vatninu, saltinu og því sem hart er af skelfiskinum og merjið það eða saxið, einnig vökvanum af fiskinum. Saxið mjúka hluta fisksins og geymið. Látið lok yfir og látið malla í 30 mín. eða þar til grænmetið er soðið, bætið þá fiskinum í, ásamt timian og tóiyiötum. Kryddið eftir smekk og látið malia 10 mínútur. Berið fram sjóðandi heitt og stráið persilju yfir. Fiskisúpa, sem forsetahjónin notuöu í sumarbú- stað sínum: Bouillahaise Port Hyannis Port. 3 pund biandaður, hvítur fiskur (t. d. ýsa, lúða o. f].), 3 pund humar, 36 kræklingar, 3 púrrur, 2 stórir laukar, 3 hvítlaukslauf, 3 tómatar, ‘/s bolli olívuolía, grisjupoki með: timian, lárviðarlaufum, persilju, sellerí, rosemary. Dálítið saffron ef vill, salt, pipar, cayennepipar, fisksoð eða vatn, smá- brauð, steikt í hvítlauksbragðbættri olívuolíu. Skerið fiskinn í hæfilega stór stykki og takið grófu hlutana frá fíngerða fiskinum. Brjótið hum- arinn að neðan, takið innýflin úr og brjótið og merjið klærnar, skerið haia og skrokk í stykki. Þvoið kræklingana og púrruna, flysjið og saxið laukinn og hvítlaukinn, flysjið tómatana og tak- ið kjarnana úr þeim. Hitið olívuolíuna i stórum potti með þykkum botni, setjið grænmetið í og sjóðið í nokkrar mínútur. Bætið grysjupokanum með kryddgrænmetinu í. Leggið grófari og þykk- ari stykkin af fiskinum ofan á grænmetið og lát- ið soðna við gufuna af því I 8 mín. Bætið þá mýkri stykkjunum í ásamt saffroninu og humarn- um. Kryddið eftir smekk. Þekið með vökvanum (soðinu eða vatninu) og látið suðuna koma upp og síðan malla í 15 min. Bætið kræklingunum í og sjóðið áfram þar til þeir opnast. Takið fiskinn og humarinn upp úr og látið suðuna aftur koma upp á vökvanum. Þekið fiskinn í skálinni með vökvanum og setjið brauðið út í rétt áður en súpan er borin fram. Skammtur handa sex. Uppskrift að fiskisúpu, sem Kennedyfjölskyld- an fékk frá Rússlandi: I’eace Corps Chowder Selianka. pipar saxaður, :,2 bolli skorið sellerí, V2 bolli % úr pundi af þorski, ýsu eða öðrum hvítum fiskflökum, 1 bolli vatn, 4 þunnar sneiðar af reyktum laxi, 1 matsk. tómatpurré, 2 matsk. Framhald á bls. 33. Framhald á bls. 33. ^★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★^★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★Tfcttá AÐ HREINSA FISK. Notið stálsvamp til að taka hreistrið af fiskinum og losnið við að það þeytist yf- ir háift eldhúsið. FOST LOK. Grófur sandpappír Ectur verið ágætur til að hafa í lófanum, þegar þarf að ná fastskrúfuðum lokum eða töppum úr flösk- um og krukkum. KALKIPAPPÍR. Þegar þið liafið drcgið munstur yfir á hvítt efni með kalkipappír, vill dökki liturinn af pappírnum oft rcnna út fyrir munstrið, meðan vcrið er að sauma. Sé strauað yfir munstrið á efn- / inu, er oft hægt að ( koma í veg fyrir ' það. 46 VIKAN 2. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.