Vikan


Vikan - 25.01.1968, Síða 10

Vikan - 25.01.1968, Síða 10
HISTOE EÐ4.... Ve(jna mistaka, eða jafnvel af lcæruleysi getur það hent, að læknirinn gefi þér lcoltvíildi í staðinn fyrir eter, taki úr þér lifrina í staðinn fyrir hotnlangann, eða gleymi hníf eða skær- um innan í þér. Þótt slíJc slys séu kölluð „einstök tilfelli“, eru nú ekki færri. en 15.000 mál þessarar tegundar á döfinni í BandariJcjunum, og læknar þar leggja miJcla áherzlu á að finna orsökina fyrir þessum „mistökum". John Murphy sogaði hægt að sér reykinn úr sígarettunni sinni, lagðist á körfu, sem stóð á óhreinni bryggjunni, sem lá frá New York vestanverðri út í Hudson fljótið. Þetta var á þrúgandi heit- um sumardegi, fyrir nokkrum árum, og hitinn þarna á bryggj- unni var eins og í kyndiklefa á gufuskipi. Murphy reykti af ákafa; það var á móti reglunum að reykja þarna í höfninni, en eins og flestir hafnarverkamanna fór Murphy á bak við lög og reglur, vegna þess að það var of heitt til að ganga þessi 200 fet upp bryggjuna. — Komdu, tíminn er búinn, vinurinn, sagði verkstjórinn. Murphy slökkti í sígarettunni, steig vandlega ofan á hana, gekk upp á bryggjuna og teygði letilega úr sér. Þegar hann var kominn tvö eða þrjú skref í áttina að krananum, sem var að flytja vörurnar frá skipinu upp á bryggjuna, sá hann eða réttara sagt hann fann að reipið, sem hélt netinu, var að gefa sig. — Varið ykkur! kallaði hann. Það var mikið fum, þegar menn- irnir hlupu undan stykkjavörunni, sem nú rigndi yfir þá. Murphy, sem var nokkuð stirður í hreyfingum, hrasaði, þegar hann sneri sér við. Lítill kassi, sem hrökk úr netinu, lenti á höfði hans, og hann féll miðvitundarlaus til jarðar. Þegar hann rankaði við sér, voru hinir verkamennirnir að stumra yfir honum, héldu votu handklæði yfir sári fyrir ofan hægra auga hans. Blóðrennslið stöðvaðist og honum var hjálpað inn á skrif- stofu verkstjórans. Gamli læknirinn, sem hafði verið þarna í grennd með lækninga- stofu sína svo lengi sem verkamennirnir mundu, kom strax. Hann skoðaði Murphy vandlega: —Þetrfca er ekki svo slæmt, sagði hann. — Það þarf að sauma fimm eða sex spor. Hann hjálpaði Murphy 10 VIKAN 4- tbl' upp á slitinn leðurbekkinn, sprautaði hann svo með procaini og saumaði sárið saman. Sex — sjö — átta sinnum ýtti hann nálinni inn, Murphy deplaði augunum og barðist gegn löng- un sinni að hlaupast á brott. Hann leið miklar kvalir og blóðið streymdi niður andlit hans. Þegar læknirinn hafði lokið við að sauma, hreinsaði hann andlit Murphys, setti gasbindi yfir sárið og festi það með plástri. — Komdu eftir viku, þá tek ég sauminn úr þér, sagði læknirinn. — Það er samt betra fyrir þig að halda kyrru fyrir fram yfir hádegi. — Allt í lagi, læknir, sagði Murphy. — En getið þér ekki gefið mér eitthvað við sárs- aukanum? Þetta er hræðilega sárt. — Sjálfsagt, ég skal gefa þér verkjatöflur sagði læknirinn. Hann gekk að lyfjaskápnum, náði í pilluglas, sem ekki var með neinni áletrun, hristi nokkr- ar töflur í lófa sinn og setti þær í lítið umslag. Taktu eina, þegar verkirnir eru verstir. Hann gaf engar aðrar skýringar og Murphy spurði einskis, enda hefði hann ekki haft neitt gagn að því. Murphy var nokkuð skárri eftir hádegið. Hann var nokkuð þung- ur í höfðinu og verkirnir komu stöðugt aftur, og í hvert sinn sem hann fann til þeirra, tók hann verkjatöflu. Áður en hann fór til vinnu sinnar út á bryggjuna, tók hann eina töflu oð aðra klukkutíma síðar. — Heyrðu John, þú mátt ekki taka of mikið af þessum töflum, sagði einn vinnufélagi hans. — Fjandinn hafi það, sagði Murphy og yppti öxlum. — Þær duga ekki nema í klukkutíma, þá byrja verkirnir aftur. Ég geri líka ráð fyrir, að þetta sé allt í lagi. Klukkan fjögur, þegar hafnarverkamennirnir hættu vinnu sinni þann dag, hafði Murphy gleypt átta töflur. Hann skreiddist upp í bílinn sinn og ætlaði að kafna af heitu og innilokuðu loftinu í bílnum. Hann skrúfaði strax niður rúðurnar og reyndi að ræskja sig. Tuttugu mínútum síðar, þegar Murphy tók beygju út af hraðbraut- inni, einni mílu eða svo frá heimili sínu, féll höfuð hans niður á bringu og hendurnar slepptu af stýrinu; en um leið steig fóturinn, sem hafði hvílt létt á bensíngjafanum, fast í botn. Bíllinn þaut áfram, braut trégirðingu, sem var við enda götunnar, rakst á ljósastaur, en stöðvaðist svo á járngirðingu við sjávarborðið, einum eða tveim þumlungum frá hinni votu gröf. Þetta hafði auðvitað engin áhrif á John Murphy, því þegar lög- reglan kom á vettvang var hann látinn. Nokkrum vikum síðar höfðaði ekkja Murphys mál á hendur lækni hafnarfyrirtækisins, sakaði hann um að hafa orsakað lát manns síns, vegna kæruleysis. Það kom í ljós við líkskoðun að Murphy hafði ekki misst meðvitund eða fengið slag við stýrið, lieldur hafði hann ein- faldlega sofnað. Við rannsókn af töflunum, sem voru í skyrtuvasa hans

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.