Vikan


Vikan - 25.01.1968, Síða 16

Vikan - 25.01.1968, Síða 16
 inOIN UPP A iOFT Smáeaga efffir Joseph Payne Ðrennan Ur* saffni Alfred HRehcocka Einkapétlups VIKAN Þetta gerðist fyrir þrjátíu árum. Ég var þá ungur og staðráðinn í að gerast rithöfundur. Ég hafði sagt upp starfi mínu til þess að geta helgað allan tíma minn ritstörfum. En árangurinn var ekki að sama skapi. Enn hafði mér ekkert orðið ágengt. Loks var svo komið, að ég gat ekki lengur greitt leiguna fyrir herbergið mitt. Þetta var hlý- legt herbergi búið þægilegum húsgögnum. Ég neyddist til að fá mér ódýrara herbergi. Eftir tveggja daga flæking knúði ég dyra á húsi frú Midgelington við Farnaby Street. Þetta var stórt og gamalt hús. Frúin leigði einstaklingum herbergi langan eða skamman tíma eftir atvikum. Hverfið var sóðalegt og ljótt, og mér hraus hugur við að þurfa að ganga um það á hverjum degi. Hellur gang- stéttanna voru víða brotnar, grindverk umhverfis hús ó- máluð og fúin og gras hvarvetna óslegið. Ég hafði áður búið í snotru og hreinlegu hverfi, svo að þetta voru mikil viðbrigði fyrir mig. En ég átti ekki annarra kosta völ. Fimmtíu doliarar voru aleiga mín. A þeiin þurfti ég að lifa, þar til gæfan mundi gerast mér hliðholl. A meðan ég hringdi dyrabjöllunni, virti ég fyrir mér máð slcilti, scm á var letrað: „Herbergi búin húsgögnum til leigu.“ Frú Midgeiington tók mér dauflega. Hún var klædd stórrósóttum sloppi, rauðeygð og hárið skoileitt. Það hafði bersýnilega hvorki verið þvegið né greitt í langan tíma. Við gengum eftir mjóum og dimmum gangi og síðan upp þröngan og slitinn stiga. A leiðinni varð mér hugsað til þess, hversu margir auðnulitiir menn hefðu gengið þessi þrep dag eftir dag. Ef til vill höfðu sumir haft heppnina með sér og flutt í vistlegri húsakynni. En fleiri höfðu h'k- lega farið úr öskunni í eldinn. Herbergið sem frúin bauð mér var h'tið, dimmt og búið slitnum og tötralegum húsgögnum. En það kostaði ekki nema fimm dollara á viku, svo að ég tók það á leigu. Eg kom dótinu mínu fyrir í þessari herbergiskytru, hengdi einu fötin mín á snaga og setti ferðaritvélina mína, sem ég hafði keypt á fornsölu, á borðskrifli. Baráttan gekk erfiðlega. Ég vaknaði eldsnemma á morgn- ana og skrifaði til liádegis. Þá fór ég í gönguferð, en hélt síðan áfram að skrifa fram á nótt. En handritin, sem ég sendi ritstjórum blaða og tímarita, fékk ég öll endursend. Þegar ég átti ekki nema þrjátíu og sex cent eftir, sendi ég tilboð um vinnu eftir blaðaauglýsingu. Ég fékk starfið, þótt það væri ekki ýkja glæsilegt. Ég var ráðinn sem lagermaður við heildsölu. Vinnutíminn hentaði mér vel. Ég vann frá klukkan sex síðdegis til klukkan ellefu um kvöldið sex daga vikunnar. Ég fékk einn dollara á tímann. Eg hafði ímugust á vinnunni, en launin voru tuttugu og sex dollarar á viku, og ég gat lifað þolanlegu lífi fyrir þá upphæð. Þegar ég hafði greitt húsaleiguna, átti ég eftir þrjá dollara á dag fyrir mat. Mér þótti það liarla gott. Ég var ekki vanur meiri fjárráðum. Ef ég þurfti að kaupa i mér föt eða eitthvað annað smávegis, sparaði ég við mig mat, og þannig fékk ég endana til að ná saman. Ég kom heim úr vinnunni um miðnættið og háttaði um eitt leytið.’Eg fór á fætur klukkan átta og gat því skrifað mestan hluta dagsins. Eg var í þann veginn að ná mér á strik, þegar heild- salan ákvað að loka klukkan sex á laugardögum og klukk- an tíu aðra daga vikunnar í stað ellefu áður. Laun mín lækkuðu að sjálfsögðu stórum við þessa ákvörðun. Ég varð að spara enn meir en áður. Ég hafði ekki ráð á að kaupa, mér máltíðir nema endrum og eins. Þegar hér var komið sögu, voru fötin mín farin að slitna ískyggilega mikið. Ég hafði engin tök á að fá mér ný. Eg reyndi að bæta og staga gömlu leppana eftir beztu getu. Þegar göt voru komin á báða sólana á skónum mín- um, setti ég pappa innan í þá. Lífið sniglaðist, áfram, ef líf skyldi kalla. Mér tókst að selja eitt kvæði fyrir fimm dollara, en handritin að sög- unum mínum fékk ég öll endursend. Nýir leigjendur komu og fóru. Ég kynntist þeim ekki; kinkaði aðeins lítillega kolli til þeirra, þegar ég mætti þeim á göngunum. V___________ 16 VIKAN 4 tbI-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.