Vikan - 28.03.1968, Qupperneq 3
Lítill snáði var að leika póst-
inn. Hann bankaði og spurði
eftir pabba sínum með nafni;
það væri bréf til hans. „Jú,“
svaraði móðir hans, og til að
gera leikinn sennilegri bætti
hún við: „Er þetta nýr póstur?
Gömlu póstarnir vita allir
hverjir eiga heima héma. Ég
hef heldur ekki séð þennan
póst áður.“ Þá gengur litli
karlinn að móður sinni og
hvíslar að henni: „Jú, mamma,
þú hefur víst séð mig áður.
Manstu ekki, að þú hnepptir
upp um mig áðan?“
Þetta er ein af mörgum
skopsögum í þættinum Með
bros á vör, sem birtist í næsta
blaði.
Langt er síðan dularfullir
hlutir tóku að sjást á svifi um
himingeiminn hingað og þang-
að, einkum í Ameríku. Hafa
hlutir þessir oftast verið
nefndir fljúgandi diskar og er
trú margra, að þeir séu farar-
tæki fólks frá öðrum hnött-
um. Aldrei hafa þessir gestir
úr geimnum gert neinum mein
hér á jörðu — utan einu sinni.
Frú nokkur í Kólóradó og ná-
grannar hennar eru sannfærð
um. að menn utan úr geimn-
um hafi slátrað reiðhesti frú-
arinnar, slitið úr honum líf-
færin og þar á ofan sogið úr
honum merg og'blóð. — Frá
þessu einkennilega máli segir
í greininni Hrossaþjófar í
liimingeimnum.
Pósturinn ........................... Bls. 4
MUSTERI LIFS OG DAUÐA ............... Bls. 8
LUCY — HEIMSINS MESTI NJÓSNARI....... Bls. 10
EFTIR EYRANU......................... Bls. 12
ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN ........... Bls. 14
BARN TIL SÖLU ....................... Bls. 16
UNGA KYNSLÓÐIN 1968 ................. Bls. 18
HIN VOTA GRÖF ....................... Bls. 22
ÍSLENZK BÍLAHÚS ..................... Bls. 24
VIKAN OG HEIMILIÐ.................... Bls. 46
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hrciðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Þorvalds-
dóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð 1 lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr.
órsfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, mai og ágúst.
Þá verður einnig sagt frá
nýjustu kvikmyndinni um
Angelique; birtar myndir af
öllum sex þátttakendunum í
fegurðarsamkeppni Vikunnar
og Karnabæjar; f sjónmálinu
verður grein og myndir af
Patrick McGoohan og Harð-
jaxlinum hans, og smásagan
verður úr safni Alfreds Hitch-
cocks.
VÍSUR VIKUNNAR:
Ennþá virðist með okkar þjóð
eitthvað mikið á seyði:
á Bessastöðum er búsæld góð
beit og grásleppuveiði.
Flest er þar marki frægu brennt
og fornir svipir á róli,
en vonaraugum er rauðum rennt
að ríkisins höfuðbóli.
FORSIÐAN:
Þá er röðin komin að tveimur síðustu þátttakendunum, sem
Vikan kynnir i fegurðarsamkeppni sinni og Kamabæjar. Þær
heita Henny Hermannsdóttir og Soffía Wedholm. Stutt spjall
og fleiri myndir á blaðsíðum 18, 19, 20 og 21. — í næsta blaði
birtum við svo myndir af öllum stúkunum sex í einu. (Ljósm.
. Óli Páll Kristjánsson).
ÚR SPEKISJÓÐI:
Áður drógu íslendingar fram lífið á skóbótum; nú lifa þeir
allir
krit
INffSTU
12. tbi. VIKAN 3