Vikan


Vikan - 28.03.1968, Blaðsíða 16

Vikan - 28.03.1968, Blaðsíða 16
Þessi miskunnarlausa sól, sem nú brenndi mig, hafSi í fleiri aldir sviðið og þurrkað akrana og tært þessi gömlu, hvítu hús. Þetta var þorp sem virtist algerlega gleymt umheiminum, og þó var þetta ekki nema tíu mínútna ganga fró hótelinu. Mér fannst ég komin langt aft- ur í tímann. Sólin hafði líka sett merki sitt ó andlit sígaunakonunnar. Svarti kjólI- inn var svo slitinn að hann gat ekki talizt annað en slitur, berir fæt- urnir bóru þess merki að hafa ekki komið í skó um lengri tíma og hendurnar sýndu að hún hafði orðið að þræla mikið. Hún horfði fast á mig, augum sem voru orðin hörð af innibyrgðum tórum, starði á andlit mitt, beið eftir einhverju merki um ókvörðun, sem hún bæði óttaðist og vonaðist eftir. Það var erfitt að ímynda sér að hún hefði einhvern tíma verið ung og fögur, og ennþó erfiðara að hugsa sér, að ennþó var hún líklega tiltölulega ung, tæplega orðin fertug. Þrótt fyrir vinnulúnar hendurnar og fataræflana, var einhver geisl- un fró henni, einhver furðulegur virðuleiki, sem svo oft er að finna h|ó suðrænum konum. Mér fannst ég sjólf vera næstum ruddaleg, Ijóshærð og litlaus, og rósrauði kjóllinn, minn, sem mér fannst svo glæsilegur ó hótelsvölunum, var alls ekki viðeigandi hér. Ég var kann- ski svona miður mín út af útliti mínu og, klæðnaði vegna þess að í augum konunnar hlaut ég að vera tókn þeirrar velmegunar, sem hún hvorki þekkti eða nokkru sinni hafði möguleika á að fá hlutdeild í. Hún hélt á ungbarni f fanginu, og það eina sem ég vissi um hann varð að þetta var drengur sem hét Paquito, sex mánaða gamall. Svo vissi ég líka að mér stóð til boða að kaupa hann fyrir þúsund peseta. Hvenær sagði hún þetta? Það hlaut að hafa verið fyrir fáeinum augnablikum, en mér fannst það heil eilífð, svo oft var hún búin að segja það. Þúsund pesetar, nokkrar ómerkilegar krónur, tíu krónum minna en rósrauði kjóllinn minn kostaði. Það var eitthvað óraunverulegt yfir þessu, eitthvað sem dáleiddi mig; alger kyrrðin á torginu, glóandi hitinn, stjarfur svipur konunnar og líflaus augun. Allt í einu rétti hún barnið í áttina til mín. — Takið hann, senora, tuldraði hún. — Hann er góður, aldrei erfið- ur . . . farið með hann heim til lands yðar . . . veitið honum gott heimili og gott uppeldi Hún beinlínis þröngvaði barninu f arma mér. Ég fann hve hann var mjúkur, hlýr og lifandi, hann var raunverulegur, þótt allt annað væri V. 16 VIKAN 12. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.