Vikan - 28.03.1968, Qupperneq 16
Þessi miskunnarlausa sól, sem nú brenndi mig, hafSi í fleiri aldir
sviðið og þurrkað akrana og tært þessi gömlu, hvítu hús. Þetta var
þorp sem virtist algerlega gleymt umheiminum, og þó var þetta ekki
nema tíu mínútna ganga fró hótelinu. Mér fannst ég komin langt aft-
ur í tímann.
Sólin hafði líka sett merki sitt ó andlit sígaunakonunnar. Svarti kjólI-
inn var svo slitinn að hann gat ekki talizt annað en slitur, berir fæt-
urnir bóru þess merki að hafa ekki komið í skó um lengri tíma og
hendurnar sýndu að hún hafði orðið að þræla mikið. Hún horfði fast
á mig, augum sem voru orðin hörð af innibyrgðum tórum, starði á
andlit mitt, beið eftir einhverju merki um ókvörðun, sem hún bæði
óttaðist og vonaðist eftir. Það var erfitt að ímynda sér að hún hefði
einhvern tíma verið ung og fögur, og ennþó erfiðara að hugsa sér, að
ennþó var hún líklega tiltölulega ung, tæplega orðin fertug.
Þrótt fyrir vinnulúnar hendurnar og fataræflana, var einhver geisl-
un fró henni, einhver furðulegur virðuleiki, sem svo oft er að finna
h|ó suðrænum konum. Mér fannst ég sjólf vera næstum ruddaleg,
Ijóshærð og litlaus, og rósrauði kjóllinn, minn, sem mér fannst svo
glæsilegur ó hótelsvölunum, var alls ekki viðeigandi hér. Ég var kann-
ski svona miður mín út af útliti mínu og, klæðnaði vegna þess að í
augum konunnar hlaut ég að vera tókn þeirrar velmegunar, sem hún
hvorki þekkti eða nokkru sinni hafði möguleika á að fá hlutdeild í.
Hún hélt á ungbarni f fanginu, og það eina sem ég vissi um hann
varð að þetta var drengur sem hét Paquito, sex mánaða gamall. Svo
vissi ég líka að mér stóð til boða að kaupa hann fyrir þúsund peseta.
Hvenær sagði hún þetta? Það hlaut að hafa verið fyrir fáeinum
augnablikum, en mér fannst það heil eilífð, svo oft var hún búin að
segja það.
Þúsund pesetar, nokkrar ómerkilegar krónur, tíu krónum minna en
rósrauði kjóllinn minn kostaði.
Það var eitthvað óraunverulegt yfir þessu, eitthvað sem dáleiddi
mig; alger kyrrðin á torginu, glóandi hitinn, stjarfur svipur konunnar
og líflaus augun. Allt í einu rétti hún barnið í áttina til mín.
— Takið hann, senora, tuldraði hún. — Hann er góður, aldrei erfið-
ur . . . farið með hann heim til lands yðar . . . veitið honum gott
heimili og gott uppeldi
Hún beinlínis þröngvaði barninu f arma mér. Ég fann hve hann var
mjúkur, hlýr og lifandi, hann var raunverulegur, þótt allt annað væri
V.
16 VIKAN
12. tbl.