Vikan - 28.03.1968, Síða 29
Egyptaland
Frahald af bls. 9
minnisstætt, en skýringu á því kann
ég enga.
Islendingar tala oft um vin í
eyðimörk. En ekki hefur mér orðið
Ijós raunveruleg merking þessara
orða, fyrr en við komum að hótel-
inu, þar sem við gistum í Assúan.
Eftir að hafa séð lengi lítið annað
en ömurlega og að því er virðist
endalausa eyðimörk og gróðurleysi,
er umhverfi hótelsins sannkölluð
vin. Það stendur við Níl og er um-
vafið fegursta hitabeltisgróðri. Milli
pálmanna sést í hvít segl á sólgyllt-
um og spegilsléttum fleti fIjótsins.
Sól er enn hátt á lofti, er við
stígum um borð í seglbát og líðum
hægt út á fljótið. Við siglum beint
yfir það og stígum á land á grýttri
strönd.
Á bakkanum skammt frá stendur
hvít höll umgirt pálmalundum. Hér
bjó Aga Khan á vetrum, og ekkja
hans býr hér enn. Við göngum upp
geysimargar tröppur og síðan gang-
stíg, sem liggur að grafhýsi Aga
Khans, en þangað er ferðinni heit-
ið.
Aga Khan lézt í júlí 1957. Átján
mánuðum síðar var þetta grafhýsi
byggt. Það er reist í moskustíl. Sér-
hvert smáatriði er samkvæmt gam-
alli hefð og frægur prófessor ( isl-
am var fenginn til að fylgjast með
teikningunni.
Maður dregur skó af fótum sér
fyrir utan og stígur varlega fæti á
þykkt, mjúkt og dimmrautt teppi.
Á vinstri hönd er stór marmara-
tafla, þar sem skráð eru helztu ævi-
atriði Aga Khans. Ofarlega á töfl-
unni er eyða fyrir nafn konu hans.
Súlur eru á báðar hendur, unz kem-
ur að grafhvelfingunni. Undir henni
miðri er leiðið sjálft: þykk hella úr
ítölskum marmara.
Á leiðinni aftur yfir fljótið er sól-
in að setjast: eldrauð sígur hún
hægt og hægt ofan í fljótið. Frá
landi berst sönglandi rödd.
Það er verið að kalla til bæna.
—o—
Við erum aftur komnir í loftið —
á leið til Lúxor til að skoða hofið
mikla í Karnak. Ut úr flugvél, upp
í bíl, inn á hótel. Það er gangur
lífsins á yfirgripsmiklum ferðalög-
um.
Lúxor er fátæklegt þorp á bökk-
um Nílar. Það má vissulega muna
sinn fífil fegri. Hér stóð í fornöld
önnur höfuðborg Egyptalands, Þeba;
þar voru hundrað borgarhlið og
meiri auðæfi geymd en nokkurs
staðar annars staðar.
Sölumenn hópast strax í kringum
okkur. Þeir veifa framan í okkur
skrautlegum hálsfestum og öðrum
munum. Það er hægt að gera reyf-
arakaup við þá, því að hér stend-
ur hvert hótelið á fætur öðru gal-
tómt á þeim t(ma, sem venjulega
er ekki hægt að þverfóta fyrir ferða-
mönnum. Mann klæjar í lófana að
eiga viðskipti við þessa skemmti-
legu og ágengu náunga. Það er ef
MEDÁSKRIFT
ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÓNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA
ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ
VIKAN EIl HEIMILISBI.AÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUIt OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASXIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL.
KLIPPIÐ HÉR
KLIPPIÐ HER
I
I
I
L
Vinsamlegast sendiS mér Vikuna í áskrift
□ 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert b!að á kr. 30,77.
□ 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað á kr. 28,85.
Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember.
SKRIFIÐ GREINILEGA
NAFN
HEIMILI
POSTSTOÐ
HILMIR HF.
VIKAN
PÖSTHÖLF 533
SlMAR:
36720 - 35320
SKSPHOLTI 33
REYKJAVÍK
1
I
I
I
J
12. tw. VIKAN 29