Vikan - 28.03.1968, Page 32
mmmm
C O N1O U
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Kona, sem þú þekkir ekki mikið, kemur þér til
hjálpar á elleítu stund. Vertu ekki of skeytingarlaus
viö þá sem næstir þér standa: þeir hafa nokkurn
rétt á að vita um áætlanir þínar.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Illar tungur koma af stað leiðinlegum orðrómi, sem eifitt verður að berjast gegn. Þú verður að taka að þér verk fyrir aðra. Þú verður fremur fúll yfir því vegna þess að það tekur nokkuð af frítíma þínum.
£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. lanúar): Þú ert orðinn harla vonlítill um að þér takist að standa við skuldbindingar þínar. Láttu ekkert tæki- færi ganga þér úr greipum; reyndu að sýnast harð- soöinn. Þér verður boðið í mat.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú átt í brösum við nágranna þína og ert raunar í mikilli klípu. Kunningi þinn svíkur þig illa; þú munt verða fyrir miklum töfum fyrir bragðið. Þú ' færð heimsókn sem á eftir að valda þér heilabrotum.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur miklar áhyggjur út af fatnaði og fjármál- um, sem engan veginn fer saman. Þú kaupir hlut sem þú getur ekki notað og lendir í miklu basli við að koma í verð á ný.
SCHICK
framleiddi fyrstu rafmagnsrakvélina
- fremst ávalt síðan.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þér líkar ekki sem bezt afstaða fjölskyldu þinnar til
viss málefnis. Reyndu að taka lífinu rólega og gera
ekki uppsteit út af smámunum. Þú finnur upp ráð
sem fleytir þér yfir örðugan hjalla.
Tvíburamerkið (22. mai — 21. júní):
Þér verður komið á óvart eftir helgina. Þú breytir
fyrirætlunum þínum af óviðráðanlegum orsökum. Þú
tekur til að spara fyrir ákveðnum hlut. Haltu i
skemmtanir við þig og vertu sem oftast heima.
Krabbamerkið (22. júni — 23. júlí):
Þú hefur átt annríkt undanfarið við að komast að
hagstæðum kjörum. Þú ert illa stæður fjárhagslega,
en ef til vill gætu vöruskipti greitt úr fyrir þér. Þú
verður boðinn í samkvæmi.
Ljónsmerkið (24. júlí •— 23. ágúst):
Á miðvikudag tekurðu ákvörðun sem skiptir þig og
þína miklu. — Þú átt í einhverjum flutningum.
Gleymdu ekki að láta vita af þér á vinnustað, ef þú
getur ekki mætt.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Ahugamál þín taka upp allar frístundirnar og meira
til. Reyndu að halda þeim innan skynsamlegs ramma.
Kunningi þinn færir þér fréttir sem verða til þess
aó þiö breytið ferðaáætlun ykkar.
v/ogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú ferð á skemmtun og lendir í furðulegum félags-
skap. Þú ættir að hafa gætur á þér. Vanræktu ekki
fjolskyldustöríin, það kemur verst niður á sjálfum
þér. Þú færð óvenjulegan gest.
beztu tækifærisgjafirnar handa
vininum
unnustanum
eiginmanninum
Heildsölubirgðir:
I. Guðmundsson & GO h.f.
Sími 11999.
Hverfisgötu 89.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú skemmtir þér nokkuð öðruvísi en venjulega og
átt góða daga. Laugardagurinn er varasamur fyrir
fólk undir tvítugu. Þú verður fyrir nokkrum von-
brigðum vegna tafa á ákveðnu máli.
Draumur ferðamannsins.
Fyrir 110—220 v. rafstraum.
32 VIKAN 12-tbl'