Vikan - 09.05.1968, Síða 2
K"
SMITH-CORONA
30 GERÐIR
Stórkostlegt úrval rit-og reikni-
véla til sýnis og reynslu i nýjum
giæsilegum sýningarsal;
ásamt Tayiorix bókhaldsvélum og
fullkomnum samstæöum skrifsto
húsgögnum
SKRIFSTOFUTÆKNI
Armúla 3, kíiiiI ■III HIHI.
V
y
Málið er í athugun
Skyndilega og óvænt fylktu
skólanemendur liði hér á dög-
unum; marséruðu með kröfu-
spjöld um bæinn og stað-
næmdust við Alþingishúsið.
Gangan var farin til að mót-
mæla úreltu skólakerfi. Og
unglingarnir létu sér ekki
nægja að sýna hæstvirtum
alþingismönnum vilja sinn í
verki; þeir linntu ekki lát-
um, fyrr en þeir fengu áheym
hjá sjálfum menntamálaráð-
herra og gátu flutt honum
kröfur sínar.
Þetta uppátæki unglinganna
rétt í þann mund sem lang-
varandi vetrarsnjóa tók að
leysa og sunnanvindur boð-
aði komu vors, hafa líklega
fáir tekið alvarlega. Við sjá-
um daglega í fréttum sjón-
varps og blaða myndir af
mótmælagöngum og uppþot-
um úti í heimi. Þar ber mikið
á unglingum í átökum við
lögreglu. „Skólagangan“
kynni að vera áhrif frá þessu.
Kn það hafa fleiri en nem-
endur skorið upp herör gegn
ríkjandi skólakerfi. Margir
kennarar, sérstaklega hinir
ungu, hafa einnig mótmælt;
hver af öðrum munduðu þeir
til dæmis pennann nýverið í
menningarriti samvinnufélag-
anna, sem lætur sig flest
vandamál þjóðfélagsins
varða. Þar voru mörg orð og
stór sögð um vankanta nú-
verandi skólakerfis.
Allt ber þetta að sama
brunni: Bæði nemendur og
kennarar álíta skólakerfið
löngu úrelt orðið. Og þessum
tveim aðilum er málið skyld-
ast. Samt bólar ekki á neinni
breytingu. Allt situr við það
sama, þótt einhverjar „til-
raunir" kunni að vera gerð-
ar. Aðgerðarleysi og aum-
ingjadómur virðast einkenna
störf þeirra, sem eiga að ráða
fræðslumáium okkar. En
hversu lengi láta menn sér
lynda hið sígilda svar: Málið
er í athugun, nefnd hefur
verið skipuð. ... ?
G. Gr.
2 VIKAN 18-tbl-