Vikan - 09.05.1968, Qupperneq 7
Kæra Vika! Hvað á ég:
að gera? Hvernig á ég að
losna við þennan leiðin-
lega skeggvöxt á kinn-
beinunum?
Með fyrirfram þökk.
Siggi.
Við gerum varla annað
núorðið en skeggræða um
skegg. Þetta er þriðja bréf-
ið um það efni á stuttum
tíma. Þú mátt alls ekki
raka þig á kinnbeinunum.
Það gerir illt verra. Hættu
því og vittu hvort þetta
lagast ekki. Að öðrum
kosti verðurðu að stelast í
háreyðingarvökva mömmu
þinnar eða kærustu, þú
veizt þetta sem þær bera
á lappimar á sér, þegar
enginn sér!
ÁRÁS AFTAN FRÁ.
Kæri Póstur!
Þú verður að hjálpa mér
áður en ég verð vitlaus.
Vandinn er sá, að ég er að
farast úr myrkfælni, sem
ég veit að er sjúkleg. Ég
þori alls ekki að sofna
nema hafa gengið tryggi-
lega úr skugga um að all-
ir gluggarnir á jarðhæð-
inni séu kræktir aftur og
verð að taka á öllu mínu
til að hafa mig í að draga
gtuggatjötdin frá til að
ganga úr skugga um að
þeir séu rammtokaðir, því
það er enginn vandi til
dæmis að skjóta gegnum
gler. Ég þori ekki að loka
á eftir mér salernisdyrun-
um né vera í herbergi
nema þar sé fleira fólk, og
fari ég út að ganga eða í
búðir um miðjan daginn
víkur min sjúklega
hræðsla við allt og alla
ekki frá mér. Sólarhring-
inn á enda óttast ég árás
aftan frá, úr launsári eða
meðan ég sef. Hvað á ég
að gera til að losna við
þetta? Segðu mér ekki að
fara til læknis. Það þori
ég ekki.
Með kveðju og fyrirfram
þökk.
N. Ó.
Seldu sjónvarpstækið þitt!
ÞÚSUND-KOSSA-RÁÐ.
Vika mín!
Þú ert svo dugleg að
leysa vanda fólks, að ég
leita til þín um ráð. Svo
er mál með vexti, að ég
er 31 árs og úr sveit. Ég
er ógift, og hef aldrei ver-
ið svo mikið sem trúlofuð.
En þegar ég var 17 ára
eignaðist ég barn, sem hef-
ur alizt upp hjá foreldrum
mínum, og þetta barn —
sonur — hefur miktu
fremur verið eins og bróð-
ir minn en sonur minn. f
fyrrasumar réði ég mig í
vinnu í Reykjavík en hef
ekki verið þar áður. Nú
hef ég kynnzt manni, sem
mér þykir afar vænt um,
og hann elskar mig líka.
En því miður sagði ég hon-
um ekki strax, að ég ætti
barn, og nú get ég ekki
komið mér til þess. Hann
er þremur árum yngri en
ég og ég er eina konan í
lífi hans til þessa. Það sem
heldur fyrir mér vöku er
tilhugsunin um það, hvað
hann muni gera, þegar
hann fréttir, að ég á son,
sem á að fermast í vor.
Hvernig bregzt hann við,
og hvernig á ég að fara að
því að segja honum þetta
svo það komi honum sem
minnst úr jafnvægi?
Þúsund kossar, ef ráðið
dugir!
Þín Ein úr sveit.
Allt frá upphafi vega
hafa konur notað það
ágæta ráð, þegar þær hafa
þurft að segja mönnum
sínum einhver ótíðindi, að
gefa þeim fyrst vel að eta
og driekka, því mettur
maður stekkur sjaldan upp
á nef sér. Þú skalt reyna
þetta góða ráð, og ef mað-
urinn bregzt reiður við og
lætur öllum illum látum,
þá hefur hann heldur aldr-
ei elskað þig. Og þú mátt
vera fegin að losna við
hann. Láttu okkur vita
hvort háðið dugir. Ef það
gerir það, máttu búast við,
að við bönkum upp á hjá
þér einn góðan veðurdag
— til þess að þiggja iaun-
in.
Þetta er eitthvað skrítið,
hér er pabbadagskort frá
einkaritaranum , þínum og
Kalla litla syni hennar!
z'---------------------------1-------\
LJÓSAÚRVAL:
Loftljós
Veggljós
Standlampar
Borðlampar
og ýmsar
gjafavörur.
HEIMÍLISTÆKI:
Frystikistur
Frystiskápar
Kæliskápar
Eldavélar
og fleira.
VERZLUNARTÆKI:
Djúpfrystir
Kæliborð
Kælihillur
Kæliklefar
í þrem stærðum
og fleira.
Sendum gegn póstkröfu.
RAFTÆKJAVERZLUN
16. GnOiónsson
Stigahlíð 45 - Suðurveri - Sími 37637
i8. tbi. VIKAN 7