Vikan


Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 16

Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 16
EFTiR CHRISTINE RANDEL Það sem áður er komið: Barbara Marsten er nýkomin frá Nýja Sjálandi og heldur til sem stendur í litlu, skozku veit- ingahúsi. Skammt þar frá er gömul höll, The Towers. Hún laumast inn í garðinn og virðir fyrir sér íbúa hallarinnar: hall- arfrúna, Lady Macfarlane, sem er yfir áttrætt og lasburða, og ungan frænda hennar Rick Fras- er sem á að erfa öll hennar auð- æfi. Margir álíta að það hafi verið hann sem myrti son gömlu konunnar, þótt dómstólarnir yrðu að sýkna hann, vegna skorts á sönnunargögnum. — f þriðja sinn sem hún fer inn í garðinn, kemur sú gamla auga á hana og fær taugaáfall, þegar hún sér stúlkuna með rauða hár- ið. Hún heldur að Barbara sé Lísa, sonardóttir hennar, sem rænt var fyrir ellefu árum. Af æsingunni fær hún hjartakast og Rick Fraser veitir Barböru verstu útreið sem hún hefur á ævinni fengið og bannar henni að stíga fæti inn í garðinn fram- ar. Barbara segir Peter Conway hvað gerzt hefur en Peter er vin- gjarnlegur, ungur maður, kenn- ari á heimavistarskóla I ná- grenninu. Hann varar hana við Rick Fraser, en hún er hrædd um gömlu konuna og næsta dag fer hún til hallarinnar, þrátt fyr- ir viðvaranir Peters. Henni er hleypt inn til sjúklingsins, þar sem læknirinn álítur að það muni róa hana. Og þegar gamla konan biður „Lísu“ að vera kyrr lofar Barbara að yfirgefa hana ekki. Rick Fraser verður illur viðskiptis, þegar hann finnur hana þar. Hann gerir hana orð- lausa með því að benda henni á að ef Lady Macfarlane nái sér og komist að því að Barbara sé ekki Lísa verði hún fyrir djúp- um vonbrigðum. Hann lætur hana vera um nóttina í bama- herbergi Lísu, sem enginn hefur fengið að koma inn í þessi ár, og Barbara les dagbók lítillar, óhamingjusamrar stúlku, sem hún finnur í púltinu. Um morg- uninn segir hún Rick Fraser, í áheyrn læknisins og hjúkmnar- konunnar Dobie: — Lady Mac- farlane verður ekki fyrir von- brogðum. Ég er Lísa, sonardóttir hennar. — Ég hef annað þarfara að gera en standa hér og hlusta á sögur, sagði Rick Fraser kulda- lega. — En fyrir alla muni — ég hef þegar séð sýnishom af hæfileikum yðar sem leikkonu og listamanni. Ég get ekki sagt að ég hafi orðið djúpt snortinn, en kannske eruð þér betri að segja sögur. ■—- Ég verð bara að senda ein- hvern fyrst til Lady Macfarlane, muldraði Dobie og hringdi bjöll- unni. Þau biðu þegjandi þar til Daisy hafði komið, fengið sín fyrirmæli og var farin aftur. — Það er eins gott að við fá- um okkur sæti, sagði Craig og Barbara lét fallast þakklát niður í stól. Hnén titruðu undir henni svo hún átti fullt í fangi með að standa á fótunum. Læknirinn og Dobie settust einnig en Rick Fraser stóð kyrr. — Þér fáið fimm mínúlur, sagði hann stuttaralega og leit á klukkuna. Æðisleg löngun til að grípa til fótanna og flýja greip hana, enn var það ekki of seint. Hún þurfti ekki annað en segja að þetta væri ekki satt, viðurkenna að Rick Fraser hefði rétt fyrir sér og fara síðan með hlátur hans klingjandi í eyrunum. Og láta þau um að róa Macfarlane eins vel og þau gætu. — Fjórar mínútur, sagði hann þreytulega. Hún renndi niður munnvatni sínu. — Þetta. er einkennileg saga og ég vissi ekki nákvæmlega vhernig hún var fyrr en nú al- veg síðustu dagana, en það er bezt að ég byrji á upphafinu. Hún hélt áfram af meiri hraða og forðaðist að horfast í augu við þau. — Ég man ekki eftir neinu af sjálfu ráninu, bara að ég vakn- aði í ókunnu rúmi. Síðar fékk ég að vita að ég hafði verið svæfð með klóroformi, næstum hættulega. Ég var meðvitundar- laus í meira en sólarhring og veik í viku á eftir. Þessa viku hugsaði kona um mig. Hún var vingjarnleg og góð við mig og ég var alls ekki hrædd. Hún átti dóttur á aldur við mig og mér féll einnig vel við hana. Mér hafði alltaf fundizt ég vera ein- mana og.... — Sleppið hörkunni og blóm- unum, greip Fraser stuttaralega fram í. Haldið yður við stað- reyndimar og leggið fram sönn- unargögn — ef þér hafið ein- hver. Hún dró djúpt andann og hélt áfram: — Konan var gift Ný-Sjá- lendingi og átti þrjú böm. Hún hafði komið til Englands með dóttur sína til að heilsa upp á móður sína sem var lasin. Eftir nokkra mánuði dó móðirin en þá voru peningarnir búnir og. .. . — Og þá rændi þessa góða og 16 VIKAN 18-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.