Vikan - 09.05.1968, Qupperneq 31
Fyrsta barniS
Framhald af bls. 15
göngu, líkamlegum, tilfinningalífið
fer fIjótt úr skorðum.
Það er ekki óalgengt að konur
verði miður sín og þunglyndar eft-
ir barnsburð, jafnvel þótt með-
göngutími og fæðing hafi verið
með eðlilegum hætti.
Slfkt óstand getur oft eyðilagt
ástandið á heimilinu. Ég hef þekkt
ungan eiginmann, sem var að
verða viti sínu fjær, vegna þess að
konan hans var varla til viðtals,
eftir að hún hafði fætt barn þeirra.
Hann fór að lokum til læknis henn-
ar, sem sagði honum að þetta gæti
verið fullkomlega eðlilegt, hún
hefði verið andlega og líkamlega
þreytt um meðgöngutímann, þótt
hún hefði ekki látið bera á því.
Ungu konunni fannst sjálfri að
hún gæti ekki staðið í stöðu sinni
sem eiginkona og móðir, og það
lagðist á skap hennar. En rósemi
og hvfld getur læknað mörg mein,
og þess vegna vil ég ráðleggja
ungum mæðrum að yfirvega ástand
sitt og ofreyna sig ekki fyrst f stað.
Ég veit að margar konur eru
neyddar til að vinna utan heimilis,
og verða þá oft að fara til vinnu
mjög fljótlega, en það er mjög mik-
ilsvert að þær geri þá ekki of háar
kröfur til sjálfrar sín fyrstu vikurn-
ar. Þær mega ekki vera með sam-
vizkubit, þótt þær verði að láta
hússtörfin sitja eitthvað á hakan-
um, og ekki taka tillit til þótt
bóndinn verði kannski stúrinn
vegna þess.
Unga móðirin ætti heldur að fá
samvizkubit fyrir það að æða í
skápahreingerningar, heldur en að
láta það bíða betri tfma!
Konan verður líka að gæta þess
að hinn ungi faðir fái strax hlut-
deild í öllu sem barninu viðkemur,
Þannig að það læri að elska hann
og virða á uppvaxtarárunum.
Það er eitt sem ég vil vara ung-
ar konur við, og það er að kalla
eiginmanninn ,,pabba", þótt það
sé það heiti sem barnið notar við
föður sinn! Honum gæti fundizt það
óþægilegt að vera aðeins ,,pabbi"
í augum eiginkonu sinnar.
Hann vill vera maðurinn í lífi
konu sinnar, þótt hann sé mjög
stoltur af konuheitinu. Hún vill líka
örugglega vera konan í lífi hans,
um leið og hún er móðir barn-
anna....
Það er stórum áfanga náð f lífi
hjónanna, þegar fyrsta barnið er
komið. Þau eiga eftir að upplifa
margt saman, en ég heid að ekkert
jafnist á við tilkomu fyrsta barns-
ins 'A’
Dautt tré
Framhald af bls. 13
Hann var morðingi. Hann hafði
myrt rangan mann. Hvað tók nú
við? Hugsanirnar fóru um hug hans
eins og eldingar. Átti hann að gefa
sig fram við lögregluna? Nei, hann
hafði ekki kjark til þess. Betra
fannst honum, að þeir kæmust
sjálfir að hinu sanna og ákærðu
hann. Hann ætlaði að þegja eins
og steinn. Honum var borgið, ef
hann gerði það. Engan mundi
gruna hann um slíkan verknað.
Borgið? En hvað um manninn,
sem hafði hringt; manninn, sem
hafði fylgzt með öllu sem gerðist
hér úr glugganum sínum? í fyrra-
málið mundi einhver, sem ætti leið
um skóginn, finna Ifkið. Það yrði
á allra vitorði, að morð hefði ver-
ið framið. Þessi ókunni maður
mundi óðara grípa símtólið og
hringja í lögregluna til þess að
upplýsa, hver hefði framið ódæð-
ið. En nú — í kvöld — vissi hann
ekkert um morðið og mundi senni-
lega hringja eins og venjulega.
Hann átti sér semsagt ofurlitla
von. Ef ókunni maðurinn hefði
ekki séð, þegar Georg settist upp
f bílinn hans, gat hann ekki borið
vini um neitt. Og ef hann hafði
séð það, þá var ef til vill hægt að
leiða honum fyrir sjónir, hversu
hrapalleg mistök hefðu átt sér stað,
mistök, sem hann átti alla sök á. Ef
til vill mundi það verða til þess, að
hann þegði.
Klukkan ellefu sat John og beið
við sfmann. Hann sat grafkyrr eins
og myndastytta. Biðin var hræði-
leg. Mínúturnar snigluðust áfram.
Ekki hringdi síminn. En John hélt
áfram að bíða, án þess að vita, að
hann mundi aldrei framar heyra
ákunnu röddina í sfmanum. Hún
var þögnuð að fullu og öllu. Eig-
andi hennar lá liðið Ifk á bak við
dautt tré f dimmum skógi.
☆
SíSasti keisarinn
Framhald af bls. 9
aftur til þess, að Japanir sögðu
sig úr bandalaginu. Japanir
gerðu Mandsjuriu að sjálfstæðu
ríki undir nafninu Mandsjukuo.
Til þess að undirstrika sjálfstæði
landsins, fóru Japanir að svipast
um eftir keisara fyrir landið og
völdu hinn afsetta barnakeisara
í Kína, Pu Yi. Árið 1934 var hann
lcrýndur keisari yfir ríkinu
Mandsjukuo og skírður upp á
nýtt og kallaður Kang Te.
Sérstakar ástæður lágu til þess,
að Pu Yi var valinn til þess að
verða keisari í Mandsjukuo.
Hann var síðasti afkomandi kín-
versku keisaraættarinnar, og til-
heyrði ætlinni Ching, sem réð
ríkjum í Kína frá 1644 til 1912,
þegar Pu Yi var rekinn frá völd-
um í fyrsta sinn. Og það höfðu
einmitl verið Mandsjuar sem
komu Chin-ættinni til valda á
sínum tíma og síðan hafði ættin
stjórnað Kína af mikilli harð-
neskju og kynþáttamisrétti. allt
þar til byltingin var gerð 1912.
í 300 ár höfðu Ching-keisararn-
ir haft Mandsjua í öllum æðstu
UTÁVERl
r
WM':
11
1S
Pilkington’s postulín veggflísar
Stærðir; 7V2 cm x 15 cm og 11 cm x 11 cm.
aamn-ti Sarrystaines linoleum
parket gólfflisar
I>tær?5ír 10 cm v 00 '*rr* orj 23 cm x 23 cm.
GOTT VERÐ
18. tbi. vnCAN S1