Vikan


Vikan - 15.08.1968, Page 7

Vikan - 15.08.1968, Page 7
Sannleikurinn er sá, að Darwin hélt þessu aldrei fram, heldur fundu óvinir hans þetta upp, er hann kom fram með kenningu sína. Hún sá dagsins ljós í bók Darwins, „Uppruni tegundanna“, sem gefin var fyrst út 1859. í henni heldur höfundur fram, eða öllu heldur telur, að mað- urinn og apinn eigi sama forföður. Virðingarfyilst, K. A. V. PS: Þakka fyrir allt gamalt og gott. Við þökkum kærlega fyrir þetta bréf. I»að er Iaukrétt hjá bréfritara, að Darwin hélt því aldrei fram, að „maðurinn væri kominn af öpum“. Hins vegar var kenning hans túlkuð og rangfærð á þenn- an liátt, auðvitað af þeim, sem ekki trúðu á liana og vildu gera hana hlægilega. En þessi gamla rangtúlkun hefur orð'ið býsna lífseig. Það sést bezt á því, að í umræddri grein var sagt frá kvikmynd, sem byggð er á frægri skáldsögu. Höf- undur hennar snýr dæm- inu við og ímyndar sér, að þróunin liafi verið í öfuga átt og aparnir séu „komn- ir af“ mönnum. Auðvitað veit höl'undurinn eins og allir sem þekkja kenning- ar Darwins, að það er ekki allskostar rétt, að „maður- inn sé kominn af öpuin“. Hann notar aðeins þennan ramma til þess að koma heimsádeilu sinni á fram- færi. „VIÐ VILJUM MEIRA BLÓÐ" Kæri Póstur! Ég hef aldrei skrifað þér áður, en mig langar svo að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mér finnst ein- kennilegur. Ég held, að það geti haft þýðingu fyrir mig að fá ráðningu á hon- um. Draumurinn er svona: Mér fannst ég vera dá- in og fleira fólk, sem ég þekki. Öll vorum við út- ötuð blóði, og mér leið svo illa, að mér fannst ég myndi ekki afbera þetta. Þá kemur stúlka til mín. Hún var kát og reyndi að hughreysta mig. Hún kynnti mig fyrir ungum, ljóshærðum pilti, og mér fannst ég verða ástfangin af honum. (É'g vil taka það fram, að ég er trúlof- uð). Þá sé ég dökkhærðan mann, sem mér finnst vera V illa innrættur.. Mér fannst það vera hann, sem vildi allt þetta blóð. Síðan er mér litið á vegginn og sé þar sjónvarpsskerm. Inni í þessum skermi sé ég mann. Hann var ógeðslegur á að líta. Og mér fannst hann segja: „Við viljum meira blóð.“ Mér fannst hann segja það á ensku. Þá finnst mér dökkhærði mað- urinn segja: „Þú færð ekki meira blóð.“ Þá segi ég við hann: „Þú ert ástfanginn.“ Um leið lítur hann á mig og ég er sannfærð um, að hann sé ástfanginn af mér. Lengri var draumurinn ekki. Ég vona, að þú getir ráðið hann fyrir mig. Með fyrirfram þakklæti. Virðingarfyllst, Á. G. Þetta er talsvert athygl- isverður draumur. f hon- um gætir sýnilega áhrifa frá sjónvarpinu og öllum þeim blóðsúthellingum, er þar eru sýndar. En slepp- um því. Við álítum, að draumurinn tákni, að þú munir giftast manninum, sem þú ert trúlofuð núna. En ýmislegt á eftir að ger- ast þangað til það verður, og flest af því hefur í för með sér mikla andlega áreynslu. Stúlkan, sem var kát og vildi hughreysta þig, er tákn hinna farsælu málaloka. Enda þótt þér hafi fundizt í draumnum, að hún væri að kynna þig fyrir ungum, ljóshærðum pilti, — þá erum við þeirr- ar skoðunar, að það sé ein- mitt maðurinn, sem þú ert trúlofuð núna. En þú sérð hann í nýju ljósi og end- urskoðar mat þitt á honum með mjög jákvæðum ár- angjri. Blóð í draumi er fyrst og fremst ráðið sem fyrirboði óþægilegra frétta. Þú lendir sem sagt í erfið- leikum, en allt fer vel að lokum. ÓSKIR RÆTAST Svar til Eins í vanda: Við erum á sömu skoð- un og spákonan, sem þú fórst til. Það bendir margt til þess, að úr rætist, jafn- vel strax í haust. Þú skalt því vera bjartsýnn og von- góður og varast að gera neitt þáð, sem getur spillt fyrir góðum árangri. HAGSÝN HÚSMÓÐIR NOTAR Höfum einnig fyrirliggjandi allt efni til: HITA-, VATNS- og SKOLLAGNA. Meifur JénssoB hf. BYGGINGAVÖRUVERZLUN — BOLHOLTI 4 SÍMAR: 3 69 20 — 3 69 21 V__________________________________; 32. tbi- VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.