Vikan


Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 30
 KVEIKJARAR wSsíí'}. Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borökveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavik. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú \ crður að taka betur til hendinni ef þú ætlast til ei ihvers árangurs. Undanfarið hefur verið mik- il dcyfð yfir þér og mál til að hrista drungann af sjr. Fimmtudagurinn er sérlega mikilvægur. & Vogarmerkið (24. september — 23. október): Ef þú notar tækifæri vikunnar til hins ýtrasta get- urðu átt ánægjulega og tilbreytingaríka daga. En þú verður að vera vel með á nótunum til að ekk- ert faii framhjá þér. m Naulsmerkið (21. apríl — 21. maí); Það bcr ýmislegt á góma í vikunni og ekki allt jafn skemmtilegt. Bezt er að búast við öllu. Þú veröur míkið einn en nágranni þinn sýnir þér mikla hjálp- scmi. Heillatala er fjórir. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Ekki er laust við að eftirvænting riki í starfi. Reyndu aö koma þannig fram að þú verðir ekki misskilinn, en vertu ekki opinskár. Ungt fólk get- ur vænzt nýrra ævintýra. ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vikan er hagstæð öllum þeim sem hafa kjark og áræði til að kanna ókunna stigu og leggja út á nýj- ar brautir. Vertu ekki of ráðríkur, það er ágætt að liafa holla félaga með í ráðum. f*- Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Vikan er ekki mjög spennandi, bezt að nota frí- stundhnar til lesturs og starfa heima við. Þú kynn- ist mcrkilegu fólki síðari hluta vikunnar. Þú færð innsýn í nýja heima. Krabbamerkið (22. júní — 23. júli): Vikan er óvenju viðburðarík, margt mun setja lit á hversdagsleikann og þú nærð ákveðnu marki, sem þú hefur lengi keppt að. Maður nokkur einokar þig og eru það einu dökku blettirnir. j£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þetta verður vika annríkis og viðburöa sem munu lífga upp tilveruna um stundarsakir. Reyndu nýj- ungar, allar lílcur eru til að þær heppnist. Þú átt rómantfskt ævintýri. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Ef þú verður snar í snúningum muntu geta komið í kring hlutum sem þú hefur lengi haft í huga. Reyndu að vekja áhuga fjölskyldunnar með þér, það er afar hagstætt. AM Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Það veltur mikið á þér sjálfum hvort vikan má teljast hagstæð eður ei. Ef þú leggur þig fram muntu ná góðum árangri í starfi. Gerðu þér ekki neinar gyllivonir. %L* Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Það gengur á ýmsu í byrjun vikunnar og þegar á líður mun komast á kyrrð og ró. Þú munt eiga full erfitt með að leysa verkefni þín í tíma. Þú færð lítinn böggul sem veldur þér furðu. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vikan verður erilsöm, bæði heima og heiman. Þú þarft að framkvæma ýmislegt upp á eigin spýtur og ertu fremur taugaóstyrkur. Keyptu ekkert með afborgunum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.