Vikan


Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 34

Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 34
 ame. BÍLAR MEÐ INNBYGGÐA „TJAKKA“ MINI MARCOS GT 850 nr. 341 Útsöluverð kr. 130,00 , J41 KINI KARC03 OT «9« ODLSMOBIL TORONADO nr. 276 Útsöluverð kr. 110.00 M. 276 OLD3KOBILE T0SOUJ* ROVER 2000 T.C. nr. 275 Útsöluverð kr. 110.00 NO. 275 ROVER 2000 TC. Heildsölubirgðir: Páll Sæmnndsson Laugavegi 18 A - Sími 14202 irmenn Þýzku riddarareglunnar hugðu á mikil stórræði og ætluðu að byrja feril sinn á hinu nýja athafnasvæði með því að brjóta undir sig Novgorod, sem var mikilvægasta verzlunarstöð Rússa í námunda við Eystrasalt og nálega hið eina furstadæmi þeirra, sem Mongólar höfðu ekki gleypt. En í orrustu á ísi Peipus- vatns dustaði Alexander Nevský Novgorod-fursti riddarana mátu- lega til hvað frægt er í rússneskri sögu og ekki sízt kvikmyndinni er Eisenstein gerði um þann at- burð. Létu riddararnir þá af hernaði gegn Rússum, en lögðu þess í stað undir sig Kúri og Semgalla. Þar næst kom röðin að Litháum, en þeir hrundu inn- rás þýzku riddaranna álíka ómjúklega og Sverðriddaranna áður. Gerðu Kúrir og Semgallar þá uppreisn, sem um síðir var brotin á bak aftur með ógurlegri grimmd. Þjóðverjar eyddu heil héruð í löndum þessara þjóð- flokka, herleiddu fjölda fólks til annarra landshluta en byggðu sveitir þeirra aftur Lettgöllum og Lívum, sem þeir töldu trygg- ari sér. Síðustu uppreisn Sem- galla lauk 1290, er leifar upp- reisnarhers þeirra flýðu á náðir frænda sinna Litháa. Þjóðverjar ráðskuðu nú einir með Lívoníu, eins og þeir köll- uðu Eistland og Lettland, í hálfa þriðju öld. Landið skiptist milli riddarareglunnar og nokkurra biskupa. og var einn þeirra, sá í Riga, að nafninu til æðsti mað- ur alls ríkisins, sem var því að forminu kirkjuríki. Lágþýzka varð rikismál í landinu. Þýzkir riddarar og kirkjuhöfðingjar urðu að landaðli, sem drottnaði yfir öllu jarðnæði, og þýzkir kaupmenn ríktu yfir allri verzl- un. Hinir innfæddu máttu yfir- leitt ekkert vera nema ánauðug- ir kotungar. Þrátt fyrir mikla kúgun tóku íbúarnir á þessum öldum við menningu innrásar- mannanna að því marki, að síð- an hafa þeir verið vestrænar þjóðir, í hugsunarhætti og við- horfum nákomnir Vesturlanda- búum en að sama skapi fjarlæg- ir og ólíkir Rússum. Kristni náði vitaskuld tökum í löndunum þótt lengi eimdi eftir af heiðnum átrúnaði, eða allt fram á átjándu öld að sagt er. Á þessum tíma gegndi Lett- land sem jafnan fyrr og síðar miklu hlutverki í verzlun Norð- ur- og Austur-Evrópu. Riga varð ein mikilvægasta verzlunarborg Norður-Evrópu og flestar helztu borgir landsins voru þá byggðar af Þjóðverjum þar sem kaup- staðir landsmanna höfðu áður staðið. Undir aldamótin 1500 tók illi- lega að syrta í álinn fyrir þessu losaralega ríki þýzkra biskupa, riddara og Hansakaupmanna. Meginástæðan til þess var sú að Rússar höfðu þá kastað af sér oki Tartara og tekið upp þá út- þenslustefnu vestur á bóginn, sem síðan hefur verið aðal utan- ríkisstefna þeirra. Tvö voldug- ustu furstadæmi Rússa voru Novgorod, sem allt frá víkinga- öld hafði verið undir yfirgnæf- andi norður-evrópskum menn- ingaráhrifum, og Moskva, sem hafði samið sig að ósið- um Tartara. Árið 1478 braut fv- an þriðji stórfursti í Moskvu Novgorod undir sig. Það varð því ógæfa Rússlands og heims- ins alls að hin tartaríska Moskva en ekki hin norræna Novgorod mótaði hug stærstu þjóðar Evr- ópu næstu aldirnar. Með sigrinum yfir Novgorod var Rússland Moskóvíta komið í röð voldugri ríkja. Líkt og flestum rússneskum drottnurum síðan var fvan þriðja mikið í mun að ná á vald sitt austur- ströndum Eystrasalts, kaupskap og sjómennsku ríkis síns til efl- ingar. 1481 réðist hann skyndi- lega inn í Lívóníu með miklu liði Rússa og Tartara, fór um landið með báli og brandi og herleiddi fjölda manns austur til Rússlands. Skepnuskapur þessa austræna illþýðis fór langt fram úr öllu, sem þekktist í hernaði vestrænna þjóða, og þurfti þó nokkuð til. í samtímaheimild einni segir svo um framferði innrásarliðsins: „Rússarnir nauðguðu jómfrúm og húsfreyj- um, skáru af þeim brjóstin og tróðu upp í karlmennina, skáru af nef og eyru, hjuggu af hend- ur og fætur, ristu fólk á kvið og hengdu það upp á þörmunum, sprettu upp barnshafandi kon- um, lömdu presta með svipum og köstuðu þeim lifandi á bál . .. . “ Vistin í heiðnabjargi Mon- góla og Tartara hafði breytt þjóð hins forna Garðaríkis í viður- styggilega umskiptinga. Af hálfu Lívlenzku riddara- reglunnar — svo var nú kölluð sú grein Þýzku reglunnar, er ráðskaði með Lívland — varð takmarkað um varnir. Riddar- arnir voru orðnir slappir af langri friðsemd og sællífi; haft var í hámæli að drykkjarskál- ar þeirra væru þyngri en sverð- in. Þar að auki var stjórn ríkis- 34 VTICAN 43-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.