Vikan - 27.03.1969, Qupperneq 4
OSRAM
BURT MEÐ ALLT SORP
Kæra Vika.
Mikið þótti mér miður,
þegar þú komst út um dag-
inn með nektarmynd á
forsíðunni. Satt að segja
finnst mér þú hafa sett
drjúgum ofan við þetta.
Þú minntir mig á tímarit-
in, sem reyna að fleyta sér
á „dirfskunni".
Ég er ekki endilega
hneyksluð, en ég er frem-
úr sár. Vikan vill vera
heimilisblað, en ég vil ekki
láta slíkar myndir í hend-
urnar á hverjum sem er á
heimili mínu. Veiztu ekki,
hvílík áhrif slíkar „sak-
leysismyndir" hafa á ung-
linga í mótun? Og veiztu
ekki, hvað unglingarnir
eiga erfitt í sambandi við
þroska sinn, andlegan og
líkamlegan, nú á tímum,
þegar alls staðar blasa við
eggjandi myndir og frá-
sögur í blöðum og búðar-
gluggum? (Ekki eiga allir
óskilið mál í þessu frem-
ur en öðru). Ég veit, að þú
ert mér sammála um það,
að þetta „sex“ er gildur
þáttur hinna svonefndu
unglingavandamála nútím-
ans. Já, föt sumra stúlkn-
anna ber því ljóst vitni.
(Ef einhver heldur, að
ekki skipti máli með fötin,
má geta þess, innan sviga,
að áreiðanlegt, erlent
fréttablað sagði frá því, að
siðferðisglæpir jukust til
muna í Japan, þegar stutta
tízkan fór að ryðja sér þar
til rúms).
Svi vitum við, að meðal
unglinganna er ekki langt
frá nektarmyndum í klám-
ið, og þarf ekki unglinga
til. Og ekki skortir hér
verzlanir, sem hafa slík rit
á boðstólum, þótt þær hafi
ekki hátt um þau viðskipti.
í sambandi við það ætla ég
að segja þér frétt af dönsk-
um, hugumstórum ung-
lingum. Núna í janúar
tóku þeir sig til og út-
bjuggu auglýsingablað. Á
bví stóð: „Burt með klám-
hreinn“. Á blaðinu voru
fjögur hjörtu, og á þau
prentuð ljóð eftir ungan
Kaupmannahafnarbúa, en
erindin fjögur enda öll á
orðunum: „Kærleikurinn
(ástin) er hreinn“.
Svo fóru unglingarnir á
kreik eina nóttina og límdu
tvö til þrjú slík blöð á
hvern búðarglugga, þar
sem klámrit voru til sölu,
300 í Kaupmannahöfn og
100 úti á landi. Lagalega
séð var þetta óheimilt, en
unglingarnir eru reiðubún-
ir að taka afleiðingum
gerða sinna. Ekki skal lög-
leysi mælt bót — en er
ekki hrífandi að lesa um
slík viðhorf hjá ungling-
um í stórborgum, þar sem
sorpritin flæða yfir?
Nú skilur þú, Vika mín,
að ég er alls ekki að jafna
þér við sorpritin. Það tek
ég skýrt fram. En ég bið
þig: Hjálpaðu okkur, sem
erum að reyna að skapa
unglingunum holl upp-
vaxtarskilyrði og gott um-
hverfi og viljum vekja hjá
þeim heilbrigðar hugsjónir
og sjálfsaga í staðinn fyrir
þá nautnasýki, sem er ein-
kenni tímanna. Skemmti-
blað viltu vera. En það er
svo margt, sem er í senn
skemmtilegt og fróðlegt og
ágætlega til þess fallið að
hefja okkur upp yfir flat-
neskjuna og hringsnúning-
inn kringum sjálf okkur.
Þú átt ekki að frelsa heim-
inn. En öllum er okkur
skylt að leggja okkar skerf
af mörkum. Og stórt er
þitt pund. Þú ferð um allt
landið og hefur óhemju
mikla möguleika til áhrifa,
til ills eða góðs.
Segjum líkt og dönsku
unglingarmr: Burt með
allt þetta sorp, sem
óhreinkar heilbrigt æsku-
lif! Setjum okkur hátt
mark þegar í æsku og
keppum að1 því ótrauð!
Með vinsemd og til-
hlökkun til næsta blaðs.
Stína Stefáns.
(Ég vona, kæra Vika, að
þú birtir bréfið, þó að það
sé orðið aðeins of langt).
Viff þökkum bréfi® þitt,
Stína, sem er jafn vel
meint og þaff er langt. Satt
aff segja var þaff okkur
nokkurt undrunarefni, þvi
i'orsíffumyndin okkar var
hvorki „djörf“ né klúr,
BÆTIR ÚR SÖLARLEYSI SKAMMDEGISINS.
XAHPIB OSRAM
VEGNA GÆÐANNA.
Ul jtr mí viQavcýafa
Mik\Ö úrval af myndavélum
a, Frá Kodak - Agfa- Braun
06 POLAROID
§P0RTVAL
| Laugavegi 116
VERÐ FRA Kr. 433/*
4 VIKAN 1:!-tbl-