Vikan


Vikan - 27.03.1969, Blaðsíða 19

Vikan - 27.03.1969, Blaðsíða 19
/ Mannætan Jim var boð- in í hádegisverð til mannætunnar Jom. Allt í einu sagði mannætan Jim: — Jom, mér fellur ekki við konuna þína I*á svaraði mann- ætan Join: — Jim, þegiðu þá og éttu bara kartöflurnar. ★ í troðfullum Ár- bæjarvagninum lagði ungi inaðurinn höndina á öxl stúlkunnar, sem spurði illskulega: — Getið þér ekki haft lúk- una á einhverjum betur viðeigandi stað? Ungi maðurinn kafroðnaði og sagði feimnislega: — Ég þekki yður ekkert, svo ég kann eiginlega ekki við það. — ur oft verið ærið skoplegur. Ég man alltaf eftir verkstjóranum, sem ég var hjá á vellinum; það var vænsti karl og mér var vel við hann. En hann kunni ekki stakt orð í ensku og hafði tölu- verða minnimáttarkennd af því. Ævinlega, þegar kanarnir voru að segja eitthvað við hann, svar- aði hann því sama: — Ja, det kommer. Og ef þeir létu sér ekki segjast við það, kaUaði hann í einhvern okkar skólastrákanna, sem nærstaddir voru, og sagði: — Tala þú við helvítið, hann skilur ekkert, sem maður segir. En málamisskilningur þarf ekki alltaf að vera milli tveggja tungumála. Það er allt eins hægt að misnota og fá misskilning út úr einu og sama tungumálinu, til dæmis íslenzkunni. Nýlega var í fréttatíma útvarpsins talað um „sýningu á vegum Braga Ás- geirssonar“. Varðandi það sagði kunningi minn, sem er listamað- ur í frístundum, að hann hefði nú haldið, að vegir Braga væru órannsakanlegir. Um svipað leyti var eftirtekt- arverð klausa í dánartilkynn- ingadálki Morgunblaðsins. Ég tilfæri hana hér, auðvitað með breyttum nöfnum: Sérstaklega þökkum við Jónasi Jónassyni forstjóra (hér var nafn drykkjarvöruverksmiðju) og fjölskyldu hans fyrir rausnarlega aðstoð við fráfall Friðriks. Já, rausnarlegir menn eru rausnarlegir í hverju sem þeir taka sér fyrir hendur. V________________________________________) Áður en við snúum frá tungu- málum, langar mig að hafa yfir eina stöku, sem ég sá í erlendu blaði í vetur. Hún er um skraut- miða, sem ákveðið olíufélag gef- ur á bíla, og gefur þar með til kynna að þeir bílar, sem nota ákveðna bensíntegund séu öðrum frískari, því þeir hafi óargadýr í tanknmn. Þið hafið sjálfsagt séð svona miða, á þeim er mynd af æðandi tígrisdýri og við stendur: TIGER IN THE TANK. Stakan sem ég sá og nam var kveðin á enska tungu og ég reyni ekki að þýða hana, þessir fjór- ir fimmtu hlutar þjóðarinnar, sem ekki höfðu aðstöðu til að læra ensku af Keflavíkursjón- varpinu, eru löngu búnir að læra ensku af íslenzka sjónvarp- inu. En vísan er svona: Tiger, tiger in my tank, I don‘t care how much you drank. But I ask you, now when I’m towed, that next time you leave me one for the road. Og svo mikið er víst, að sé fiskisagan rétt, að hækka eigi bensínið upp í 15 krónur líterinn (sumir segja raunar 17 krónur, og guð má vita hvað bensínverð- ið verður þegar þessi orð koma út á prenti), mun mörgum þykja sem þeir hafi ærið þorstlátan tígur í tankinum, en það verður sjálfsagt álíka áhrifamikið fyrir bílaeigendru- að biðja það villi- dýr griða og ríkisstjórnina. Mað- ur nokkur, sem er sjálfmenntað- ur hagfræðingur og drekkur í V_________________________________ V sig allar tölur eins og þerripappír blek, sagði mér um daginn, að ef einkabílaeigendur og leigubíl- stjórar gerðu allir verlcfall í 17% dag og notuðu ekki bíla sína þann tíma, yrði fjárhag ríkisins að endalegu hruni. En nóg vun það, við skulum ekki fara út í þau alvörumál hér. Það er ekki hægt með bros á vör. Vendum nú okkar kvæði í kross. Sagt er frá slökkviliði úti á landi, er eftirlitsmaður að sunnan var að aðgæta, hvernig liðið væri tækjum búið. Hann spyr: — Hafið þér handdælur, vél- dælur, haka og stiga? — Já. — Kúbein, járnkalla og axir? — Já. — En lúktir? — Hvaða luktir? — Það stendur í reglunum, að það verði að vera til luktir. — Það varðar okkur fjanda- kornið ekkert um. Fyrr mætti nú vera eldsvoðinn, að það þyrfti að leita að honum með logandi ljósi! Þótt prestar séu nú til dags ekki meiri forvígismenn bind- indissemi en aðrir, eimir samt enn eftir því, að þeir reyni að hvetja sóknarbörn sín til guðs- ótta og góðra siða. Fræg er sag- an af listamanninum þjóðkunna, sem bjó í kaupstað úti á landi, og var allmjög fyrir ölið. Eitt sinn sem oftar var hann staddur á aðaltorgi staðarins allvel punt- aður, þegar prestinn ber að. Framhald á bls. 48. V_________________________________________> y i3. tw. viKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.