Vikan - 27.03.1969, Page 7
ÞAÐ ER HÆGT
AÐ FÁ HJÁLP ....
Þegar eggjastokkarnir
hætta að framleiða kyn-
hormóna, um 48—50 ára
aldur, kemur síðara breyt-
ingatímabilið til sögunnar
í lífi konunnar, tímabilið
þegar líffærin búa sig und-
ir það að breyta hormóna-
starfseminni. Hormóna-
framleiðsla eggjastokkanna
færist smám saman yfir á
nýrnahetturnar, og þangað
til líffærin hafa komið
jafnvægi á hormónastarf-
semina, getur verið erfitt
að búa með þessu, því að
það geta orðið mikil óþæg-
indi samfara þessari breyt-
ingu.
Um það bil 10% af kon-
um finna alls ekki fyrir
þessu, önnur 10% fá svo
mikil óþægindi að ekki
verður hjá því komizt að
leita læknis. Og svo er all-
ur hópurinn þar á milli.
Þær geta fengið mismun-
andi mikil óþægindi, og
því minna sem þær hugsa
um þetta, því fyrr losna
þær við þessi vandræði.
Það getur oft verið erfitt
að greina hvað hægt er að
rekja til breytingatímabils-
ins, eða hvort um einhvern
sjúkdóm er að ræða. Jafn-
vel læknar geta verið í
vafa, en venjulega koma
greinileg einkenni fljótt í
ljós.
Það er líka eitt, sem
margar konur hafa ekki
hugmynd um, og það er að
óþægindi gera oft vart við
sig löngu áður en breyt-
ingatímabilið hefst, jafnvel
tíu árum áður. Það lýsir
sér þá aðallega með því að
konan verður geðvond og
missir jafnvægið, án nokk-
urs tilefnis, í marga daga
á undan tíðum. Það er
nauðsynlegt að tala um
þetta við lækni, því það
vekur oft hræðslu, sérstak-
lega hjá konum, sem í eðli
sínu eru rólyndar.
Kona nokkur segir svo
frá: — Þegar maðurinn
minn og börnin eru farin
á morgnana og bituryrði
mín svífa ennþá í loftinu,
verður mér á að spyrja
sjálfa mig: „Hver er þessi
hræðilega kerling? Getur
það verið ég sjálf? Hvað
hefur skeð?
Ef ástandið er svo slæmt,
þá er nauðsynlegt að tala
við lækni. Það getur verið
að þetta sé ekki eingöngu
hormónastarfseminni að
kenna, aðrar ástæður geta
komið til, t. d. ofþreyta og
áhyggjur. En það er oftast
hægt að gera eitthvað, og
hormónagjafir, jafnvel
,,pillan“, hafa mörgum
hjálpað.
Fyrstu raunverulegu
merki þess að breytinga-
skeiðið sé á næsta leiti eru
hitakóf, og þau kannast
læknar við, en það er ekki
alltaf hægt að finna ástæðu
fyrir geðtruflunum. Hita-
kófin eru merki þess að
breytingatímabilið er geng-
ið í garð, og þau geta vald-
ið miklum óþægindum,
þótt það sé huggunarefni
að þetta ástand tekur enda.
Það er rétt að taka það
fram að þessi óþægindi
geta orðið mjög slæm. Þau
byrja með því að konan
finnur glóandi hita breið-
ast út um líkama sinn, svo
svitnar hún ofsalega og
fær að lokum kuldahroll.
Þessu fylgir sýnilegur roði
í andliti og á hálsi, og það
er ekki sízt þessi roði sem
gerir konunni lífið leitt.
Þetta er hægt að koma í
veg fyrir með hormóna-
gjöfum. En hormónagjafir
eru aftur á móti þess vald-
andi að það lengist í þ°ssu
tímabili, og bá verða sjúkl-
ingur og læknir að tala sig
saman, veea og meta hvað
firrir öðru er.
Orsök hitakófanna er sú
að blóðrásin verður fvrir
truflunum, og það getur
líka orðið til þess að ann-
arra áhrifa gæti, t. d. auk-
inn hiartsláttur, sem getur
orðið það ör að hann valdi
köfnunartilfinningu og
þrengslum í koki, svo það
er ekkert undarlegt að
margar konur verða
bræddar og haldi að eitt-
bvað annað og meira sé að.
En það má ei«inlega segía
Framhald á bls. 50.
FINNSK
GARDÍNUEFNI
DÚKAEFNI
TIFTEX
RÚMTEPPI
SLOPPAEFNI
(CHENILLE 145 cm)
KJÖLAEFNI
LÉREFT
Finnsk gæSavera.
Komið og kynnið ykkur verð og gæði,
mikið mynstur og litaúrval.
Verzlun
FRIÐRIK BERTELSEN
Laufásveg 12 - Sími 36620
13. tbi. VIKAN 7