Vikan - 27.03.1969, Page 15
Sveinn og Gunnar Guðjónssynir — Roof Tops.
Guðni Pálsson
Roof Tops.
Væntanleg er hljómplata með Sigrúnu
Harðardóttur, áður en langt um líður.
un, mun þessi plata koma á
markaðinn í apríllok.
Logar frá Vestmannaeyjum
munu á næstunni leika inn á
hljómplötu fyrir Fálkann. Á
plötu Loga verða m.a. lög eftir
Gunnar Þórðarson og Magnús
Eiríksson. Gunnar er löngu
þekktur sem einn okkar fremsti
lagahöfundur, en Magnús hefur
lika látið að sér kveða, m.a. sam-
ið ágæt lög fyrir Kristínu Ólafs-
dóttur, Erlu Stefánsdóttur og
Pónik, hljómsveitina, sem hann
lék með í eina tíð. Logar hafa nú
endurheimt sinn fyrrverandi
gítarleikara, Þorgeir Guðmunds-
son. Þótt þeir hafi lítið látið á
sér kræla utan heimahaganna
hafa þeir þó verið í full fjöri í
allan vetur. Logar eiga sem
kunnugt er fyrirtaks söngvara,
þar sem er Hermann Hermanns-
son, en hann tók við af bróður
sínum, Helga, fyrir alllöngu.
Hljómar munu á næstunni
leika inn á plötu fyrir SG-hljóm-
plötur, en óráðið er enn, hvort
um fjögurra eða tólf laga plötu
verður að ræða. Að líkindum
verða öll lögin á næstu plötu
Hljóma eftir Gunnar Þórðarson.
Síðasta plata þeirra hlaut mjög
góðar viðtökur sem kunnugt er,
og það var athyglisvert, að það
voru lögin Gunnars, sem mestum
vinsældum náðu, ásamt laginu
,,Að kvöldi dags“.
Dúmbó sextett mun væntan-
lega senda frá sér plötu snemma
í sumar á vegum SG. Þessi gam-
algróna hljómsveit tók rnikinn
fjörkipp, þegar Guðmundur
Haukur Jónsson bættist í hópinn
sem söngvari. Óhætt er að segja,
að hljómsveitin hafi aldrei verið
betri, og er þá nokkuð sagt. Und-
irtektirnar, sem þeir félagarnir
hafa fengið að undanförnu, sýna
þetta ljóslega. Guðmundur
Haukur er nemandi í Kennara-
skólanum. Hann lætur það þó
ekki á sig fá, þótt hann verði að
skreppa upp á Skaga af og til til
þess að æfa með hljómsveitinni.
Auk þess að syngja með Dúmbó
og sinna ströngu námi, hefur
hann ritstýrt skólablaði Kenn-
araskólans, Örvar Oddi, og starf-
að með Tenglum. Sannarlega að-
dáunarverður dugnaður!
Söngflokkui-inn „Nútímabörn“
mun að öllum líkindum syngja
inn á plötu hjá SG-hljómplötum
síðar á þessu ári. Þau eru fimm,
sem flokk'nn skipa, og þau
syng'a einkum lög í þjóðlagastíl.
Aðalsprautan er Ómar Valdi-
marsson. margfróður um þessa
músik. hafandi nýlega dvalið ár
í Bandaríkiunum. Það sem eink-
um einkennir Nútímabörn er
fr’álsieg og óþvinguð framkoma
og skínandi góðar raddir. Eink-
um er gaman að fvlgiast með
dömunni í hópnum, Drífu Krist-
'ánsdót.tu’-. en með fiöri sínu og
Játlausr1 framkomu hefur hún
m'ög dvífandi áhrif á aðra liðs-
menn flokksins.
Geislar frá Akureyri munu
senda frá sér fjögurra laga plötu
áður en langt um líður, og er út-
gefandi SG-hljómplötur. Þótt
veldi Geisla sé með mestum
blóma nyrðra, eru þeir ekki með
öllu óþekkt stærð sunnanlands.
Þeir hafa leikið í Reykjavík af
og til og hlot:ð ágætar viðtökur.
Þeir félagar í Geislum hafa eitt-
hvað fengist við lagasmíðar, og
verða því einhver laganna á plötu
þeirra frumsamin, ef að líkum
Jætur. Margir okkar vinsælustu
söngvara. og hljómsveitir, eru
norðanmenn, og þess vegna verð-
ur fróðlegt að fylgiast með út-
ltomunni hjá Geislum, þegar
plata þe'rra kemur í umferð.
Heiðursmenn eru með hlióm-
plötu í undirbúningi, og er Tóna-
útgáfan útgefandi. Heiðursmenn
eru Þórir Baldursson, orgelleik-
ari. Baldur Arngrímsson, gítar-
leikari, Rúnar Georgsson, saxó-
Framhald á bls. 50.
J