Vikan


Vikan - 27.03.1969, Blaðsíða 18

Vikan - 27.03.1969, Blaðsíða 18
EFTIR SIGURÐ HREIÐAR / -N Við höfum fengið með minna móti af skopsögum upp á síð- kastið, en alla jafna hafa þær verið dágóðár, og það vegur kannski nokkuð upp á móti. Það skiptir svo sem minnstu máli, að margar sögurnar eru bersýni- lega upplognar, það er nú svo um margar ágætar skopsögur, að þær verða ekki góðar, fyrr en búið er að matreiða þær með því að hreinsa úr þeim lifrar sann- leikans og snöggsteikja þær upp úr kryddi lyginnar. Engu að síður ætla ég að byrja á einni, sem kvað vera dagsönn, enda gerðist hún í Ameríku. Sag- an er ekki aðsend, heldur rakst ég á hana í ágætu tímariti, sem ber nafnið Úrval. Hún er á þessg leið: Fjölskylda, nokkur bjó í út- hverfi stórborgar og átti kött. Dag nokkurn varð kötturinn veikur og drapst. Þar sem enginn garður var nærri, sem hægt var að jarða köttinn í, varð fjölskyld- an að grípa til annarra ráða. Fjölskyldufaðirinn neyddist til að pakka hræinu inn og taka það með sér í lestina til að henda út um gluggann, þegar farið yrði yfir næstu brú. En þegar í lest- ina kom, lenti hann í áköfum samræðum við kunningja sinn og steingleymdi hræinu. Fór hann því með pakkann á skrifstofuna. Á leiðinni heim kom það sama fyrir aftur, og með pakkann und- ir hendinni kom hann heim. Vit- anlega var hann ávítaður og á- minntur um að gleyma þessu nú ekki næsta dag. En allt fór á sömu leið. Og þriðja daginn fór hann af stað með kattarhræið V__________________________________________J undir hendinni, og lagði það frá sér á bögglanetið yfir lestarsæt- unum meðan á ferðinni stóð, til þess eins að gleyma sér enn einu sinni og koma með pakkann heim einu sinni enn. En þá var konunni hans nóg boðið, og skipaði honum að fara með helvítis hræið ofan í kjall- ara og stinga því í miðstöðvar- ketilinn. Amningja maðurinn gerði eins og fyrir hann var lagt. En af einhverri rælni tók hann utan af hræinu, áður en hann snaraði því inn í ketilinn — og undrun hans verður vart með orðum lýst: f stað kattarins var þar kominn reyktur svínsbógur! Hér lýkur prýðilegri sögu. Aft- ur á móti get ég ekki stillt mig um að stela annarri sögu úr Úr- vali; það er íslenzk saga og lík- lega sönn. Nokkuð er hún þó tekin að eldast, og kannski hafa margir heyrt hana. En hún er svona: Eitt sinn var hér á ferð brezkt skip, og með því var aðalsmaður, sem bað að útvega sér góðan enskumann sem túlk, því hann hafði hug á að kynna sér Reykja- vík og umhverfi hennar sem bezt. Þetta var í miðjum sumarönn- um og því hörgull á góðum túlk- um. Loks fékkst þó piltur úr menntaskólanum, sem talinn var góður enskumaður, aðalsmann- inum til leiðsagnar og aðstoðar. Ekki er annað vitað, en allt hafi gengið að óskum hjá túlkin- um, þar til Englendingurinn bað hann seinni hluta dags að vísa sér á „lavatory“, en það þýðir L_____________________________________J /-------------------------------------------'N salerni. Svo illa vildi til, að túlk- urinn misskildi þetta og hélt, að hann myndi eiga við efnarann- sóknarstofu (laboratory). Hann fór því þangað með hann og hitti fyrir Bjarna Jósefsson, efnafræð- ing. Bjarni vildi ekkert skipta sér af Englendingnum, en skildi þó, að hann vildi kasta af sér vatni. Nú áttu menn það eina erindi til Bjarna, ef fyrir þeim vakti að láta rannsaka þvagið. Bjarni fékk því aðalsmanninum þvagflösku. Aðalsmaðurinn varð dálítið skrýtinn á svipinn, en kannað- ist þó sýnilega við flöskuna, fór út í horn og lauk sér þar af. Bjarni var vanur að taka tvær krónur fyrir rannsókn á þvagi ig lét menn greiða fyrirfram. Hann bað því túlkinn að segja Englendingnum, að hann ætti að borga tvær krónur. Þetta gerði túlkurinn. En nú kom fyrst alvarlegt hik á aðalsmanninn Hann varð enn skrýtnari á svipinn. Bjarni vissi, að Englendingar geta oft verið sýtingssamir um smámuni og hugði, að komu- manni þætti stofnunin dýr á rannsókn þvagsins. Hann þreif því flöskuna í fússi og sagði við túlkinn: — Segðu manninum, að ef hann borgi ekki þessar tvær krónur strax, þá bara helli ég því niður! Misskilningur milli mála get- 18 VIKAN 13- tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.