Vikan - 27.03.1969, Blaðsíða 24
Hér sést Kibo, hinn mikli fjallstindur á Kílimansjaró, og umhverfis hann
hrjóstrin miklu, sem eru milli hans og Mawenzi. — Fremst á myndinni eru
þau blóm, sem síðust urðu á leið hans upp á fjallið.
Mawenzi, hið mikla eldfjall, sem rís í 5148 m hæð, er ásamt Kibo (5894 m) og
Shira (4000 m) einn af þremur hæstu tindum Kilmansjaró. Þetta eldfjall er
löngu hætt að gjósa. Heita má að tindurinn sé undir miðjarðarlínu, en rætur
og umhverfi eldfjallsins á hásléttunni er sporöskjulaga spilda, 80 km á lengd
og 50 km á breidd. Eyðimörkin umhverfis tindinn aðskilur hann frá Kibo, sem
er hæsti tindurinn. Þetta er hæsta háslétta í Afríku, og geisa þar ískaldir
vindar, en landslagið allt er undarlega framandlegt, framúrlegt, hulduheimslegt.
24 VIKAN 13-tbl-
WALTER BONATTI OEGIR HÍR
Hér segir frá því er ítalsk-
ur maður, Walter Bonatti að
nafni, þaulvanur fjallgöngu-
maður, gekk á hæsta fjall
Afríku, Kílimansjaró. Það var
ekki ætlun hans í fyrstu að
ganga á hæstu hnúkana, en
þegar hann var kominn upp
í hlíðar þessa mikla eldfjalls,
fann hann vakna hjá sér ó-
mótstæðilega löngun t il að
gera þetta. Það tókst þrátt
fyrir mikla erfiðleika, það
brast á hann iðulaus stór-
liríð efst á fjallinu.
Hann var iila útbúinn,
bar sjálfur farangur sinn á
bakinu. Á einum og sama degi
komst hann úr hitabeltis-
svækju í loftslag slíkt sem er
á Vatnajökli, og í 5000 m hæð.
Klæðnaður hans var hinn
sami sem hann hafði á ferð-
um sínum um grassléttur
Afríku (savannah) en ekki
sniðinn fyrir hið kalda lofts-
lag á háfjallinu, heldur úr
bómull að inestu leyti.
Honum segist þannig frá:
Á hinni fyrstu ævintýralegu
ferð minni til Austur-Afríku
dvaldist ég í nærri tuttugu
daga í myrkviði miklum í
grennd við Kílimansjaró. Þar
sem þetta feikna fjall bar við
himinn, risið úr þoku og
mistri, þótti mér sem ég sæi
svipmót af ferlegum tröll-
karli: vagninn hvítur af snjó,
en grá vindský fóru óðfluga
hjá. Þegar ég fór aftur til
Nairobi, ákvað ég að ganga á
fjallið, m.a. til þess að skoða
mig betur um, en náttúru-
fegurð er þarna dýrleg.
Kilimansjaró er hæsta fjall
einstakt i heimi, 5895 m. Til
eru að vísu hærri tindar í
*