Vikan - 27.03.1969, Qupperneq 41
hreindýrurium fór stöðugt fækkandi
! Norður-Ameríku, og einhver ó-
sköp af rauðum antilópum hafði
drukknað í vatnsflóðum.
Og þrátt fyrir allar þessar hrell-
ingar, mundi Dominic eftir því að
taka af sér skóna, þegar hann kom
seint heim, færa ömmu sinni alls-
konar glingur og Lallie sjálfri súkku-
laði. Jafnvel Torq, sem var ákaf-
lega dómaharður þegar hann talaði
um fötin hans, gat samt ekki fund-
ið neitt sérstakt til að setja út á
Dominic.
Það var eins með Lallie og aðra
listamenn, ástin magnaði hæfileika
hennar. Pólskur náttúrufræðingur,
sem Dominic bauð til kvöldverðar,
til að ræða um Prhewaski-hestinn,
grét af söknuði eftir látinni móður
sinni, þegar hann bragðaði favorki-
hrökkbrauðið, sem hún bjó til sér-
staklega handa honum. Milljóna-
mæringur frá Suður-Ameríku, sem
frú Deverell hafði boðið heim, í
þeim tilgangi að vekja áhuga hans
á að bjarga tapirtegund í heima-
landi hans, féll algerlega fyrir chili
con carne, sem Lallie bjó svo meist-
aralega til, að hann lofaði strax að
gera ráðstafanir. Það var líka eftir
að hann hafði borðað gigot á la
Provincial að einn framleiðandinn
frá BBC lofaði að leggja fram fé til
að taka kvikmynd af villidýralífi á
Madagascar.
— Þú ert engill, Lallie, saglði
Dominic, — hreinn engill. Og hann
bauð henni í dýragarðinn.
Svo, eins skyndilega og það hafði
byrjað, endaði þetta dýrðarstand.
Það kom skeyti frá einhverjum villi-
dýraverði í Afrlku um það að hann
hafði séð móa fyrir stóru antílóp-
unni, sem allir héldu að væri út-
/-----------------------------------V
l.agningar, klippingar,
hárlitanir, lýsingar,
lokka litanir,
lokka greiðslur.
Permanent
margar gerðir.
HárgreiSslustofan
PIROLA
Grettisgötu 31
Sími 147 87
V________________________^
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
í Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni?
„FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.
HMflR H ÖBItlN IAH5 Hðfl?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa iþeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
Síðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Hafliði Guðmundsson, Snekkjuvogi 21, Reykjavík.
Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar.
Nafn___________________________
HelmlU
Örkin er á bls. __ ___________________
i3. tbi. yIKAN 41