Vikan - 27.03.1969, Qupperneq 47
einhverri furSuIegri skepnu í, og
flýtti sér niður f eldhús.
Lallie sat á eldhúsborðinu og var
að skera niður grænmeti. EyraS á
henni (sem Minnie hafði tekið fyr-
ir cornflakes) var vafið, og það
setti einhvern raunalegan blæ á
hana. Gnýrinn, sem hún hafði orS-
ið að gefa róandi lyf undanfarið, lá
á gólfinu við hlið hennar, með
aulalegan hausinn upp á ristum
hennar og ropið í fiskunum heyrð-
ist frá glugganum.
— Sæl, sagði Dominic.
Lallie leit upp. Hamingjan við
það að sjá hann Ijómaði andartak
um andlit hennar, en hvarf strax og
henni datt í hug það sem hún átti
eftir að játa fyrir honum. — Yana
er farin, sagði hún vesældarlega,
og varð ennþá aumari þegar hún
sá svipinn í augum Dominics.
— Ó, nei, ég trúi þvf ekkil
Lallie kinkaSi kolli. Vinstra aug-
að, sem alltaf var veikara fyrir
fylltist af tárum. — Torq tók hana.
Þau struku saman.
— Ó, nei, sagði Dominic aftur.
Andlit hans var náfölt. — Lallie
segðu að þetta sé ekki satt.
— Jú, það er satt, sagði Lallie
og kyngdi munnvatninu.
Dominic hné niður á stól. — Jæja
sagði hann svo, og rödd hans var
eins og í gömlum manni. — Það eru
þá endalok Oryx-antilópunnar.
Lallie leit undrandi á hann. —
Hvað segirðu?
— Já, Oryx-antilópunnar í Arab-
fu. Þú getur ekki fmyndað þér hve
hún er falleg. En þeir skjóta hana,
hugsaðu þér, þeir skjó.ta hana frá
Cadillac-bflunum sfnum, þessi olíu-
auðkýfingasvín.
Lallie starði á hann.
— En svo hitti ég einn höfðingj-
ann, hélt Dominic áfram. — Og
hann var vitlaus eftir Yönu. Ég skil
nú reyndar ekki hvers vegna. Ég
hefi aldrei séð neitt eins fábjána-
legt og hana. Finnst þér það ekki
Ifka?
Vinstra augað á Lallie þornaði á
stundinni og hjartað fór að hamast
í brjósti hennar.
— En það var búið að breyta
lögunum í ríki hans, og ekki leyft
að eiga nema þrjár konur, og hann
átti þrjár fyrir. Ég stakk þá upp á
því að taka Yönu fyrir hann, koma
henni fyrir þangað til hann gæti
komizt til Englands. Hann á villu f
Cowes. En í staðinn átti hann að
friða antilópurnar. En nú . . . . Hann
andvarpaði.
Lallie sem var að berjast við
sælutilfinninguna sem leið um hana,
rétti fram höndina. Þetta var smá-
gerð hönd, öll f plástrum, en Dom-
inic var sama um þá.
— Vesalings Liallie mín, sagði
hann og strauk særðu fingurna. —
Ég hefði ekki átt að senda þér öll
þessi dýr. En ég held að þetta erfiði
beri nú árangur.
Lallie tók andann á lofti og sagði:
— Heldurðu það?
Dominic lagði særða eyrað var-
••' ■
JACOB’S
Meira en 100 ára reynsla og kunnátta í
að framleiða Jacob's Cream Crackers,
er ástæðan fyrir bragði og gæðum
þessarar afbragðs vöru. Kau'pið pakka
af Jacob‘s Cream Crackers og þér
sannfœrizt um bragð og gæði.
Made In Engtand by
W 4 R Jacob 4 Co (L’poo') Ud. Liverpool England
English
Cream
Crackers
NETWEIGHT T'/í OZ • 213 g
Malt, Salt, Baklng Powdar 4Yea»t. aico.MNNA.oirr.Afa.
'Hacob’s Crtam Cracktrs fœst i nœsiu búð. 7ftcsi sclda ktxið á markaðinum
i3. tbi. viiíAN 47